Heima er bezt - 01.10.1962, Síða 18

Heima er bezt - 01.10.1962, Síða 18
sveitum. Yfir Lágheiðina var þó seinfarið sökum stór- hríðar. Léttum við nú ekki fyrr en á Hvanná á Jökuldal, var |>á klukkan um 5 að morgni. Sáum við.nú að ekki mundi þýða að halda á heiðina í náttmyrkrinu, þar sem svona slæmt veður var niðri á Dal. Akváðum við því að leggja okkur um stund og bíða birtunnar og þess er hún bæri í skauti sér. Um sjö leytið litum við svo út að nýju, var þá orðið nokkuð bjart af degi, hékk nú stórhríðarbakk- inn ofan fyrir brúnir en niðri í dalnum var nokkuð bjart, en þó voru él. Tókum við nú benzín sem við gátum, kvöddum og héldum af stað í flýti. Þegar við ókum nú inn dalinn í grárri morgunskím- unni, fannst okkur að lítil von væri til þess að koma bílnum vestur yfir fjallgarða, og þó svo væri, var lengsti og versti kaflinn eftir frá Möðrudal út í Vopna- fjörð, og gæti svo farið að við yrðum að fara sömu leið til baka, og sigla heim, en það skyldi ekki verða fyrr en í fulla hnefana. Er í Skjöldólfsstaði kom var fólk að koma á fætur, þáðum við þar kaffi, settum keðjur á framhjólin á bíln- um og 'héldum svo á heiðina. Færð var ekki til tafar upp iVIúlann en fór nokkuð að þyngjast er upp kom hjá Ármótaseli. Veðri var þannig farið að nokkur stormur var á, hvítir hríðar- bakkar allhátt á lofti allt í kring en kollheiður upp í, snjókoma lítil og skyggni allgott stutt frá sér. I Löngu- hlíðinni þurftum við að moka fyrsta skaflinn, og gekk það greiðlega og nudduðum við nú áfram og kræktum fyrir skafla alls staðar þar sem mögulegt var. Það vildi okkur til happs að snjókoma hafði ekki verið mjög mikil á meðan við vorum fyrir austan, en snjórinn nokkuð barinn á austurbrúnunum en lausari því vestar sem dró. Við eruni staddir í Heljardal, sem er í aust- ari Möðrudalsfjallgarði. Einhvers staðar hér er talið að Stefán Jónsson frá Möðrudal hafi gist sína fyrri nótt, er hann var á ferð milli Jökuldals og Möðrudals í rúm fimm dægur í íslenzkri öræfastórhríð, eins og hún verður verst, sem löngu er frægt orðið. Ömurlegur þykir manni þessi staður til gistingar og er þó nú blíða hér, hjá því veðri. Dimmt hríðarél hefur gert hér nú og sér varla fyrir ruddum veginum, sem er fullur af snjó, en yddir á steina meðfram, og þannig hélzt veðrið yfir Geitasand- inn og eigum við fullt í fangi með að tapa ekki af veg- inum. Heldur er bjartara á nyrðri fjallgarðinum og paufumst við yfir hann, oftar utan vegar, og sjáum nú heim í Möðrudal, en þangað komum við kl. 11.30 fyr- ir hádegi og hafði ferðin þangað gengið framar von- um. Vilhjálmur bóndi Jónsson býður okkur í bæinn að þiggja hádegismat. Fáum við nú að hringja til Vopna- fjarðar til að láta vita hvert við séum komnir og telj- um æskilegt að fá jeppa á móti okkur því vafalaust er orðið vont færi út yfir heiðina. Meðan við borðum ræðir ihinn aldni skörungur Jón í jMöðrudal við okk- ur, hann er nú á áttunasta aldursárinu, en hvergi farið að förlast. Spjallar hann aðallega um tónfræði við okk- ur, en það fer að mestu leyti fyrir ofan garð og neðan hjá okkur, sem berum lítið skyn á slíka hluti, en hann er sem kunnugt er listhneigður mjög og víða heima, enda margur menntamaðurinn fundið sárt til smæðar sinnar í viðræðum við Jón. „Borðið þið vel af kjötsúpunni,“ segir Jón, „hún svíkur ekki í vetrarferðum.“ í Möðrudal hefur líka margur ferðamaðurinn hlotið góðan beina og orðið aðnjótandi margs greiðans, síð- ustu 50 árin, og ekkert þykir Jóni bónda verra en ef farið er að bjóða greiðslu fyrir og held ég Jóni sé nautn að gefa og hjálpa náunganum. Það sem við álítum að helzt geti tálmað för okkar heim er óbrúuð á, sem Skarðsá heitir og á upptök sín í Langadal, sem er 20—30 km utan við Möðrudal, en hún frýs frá botninum í miklum frostum og belgir þá upp, en nokkur krapi var orðinn í henni þegar við fórum að heiman. Þökkum við nú fyrir góða máltíð, kveðjum og höld- um af stað út í síðasta áfangann kl. 12.30. Var þá hríð- arskodda, en sá vel til vegar, ber nú ekkert til tíðinda og getum við víðast hvar farið veginn en er að Jökul- kinn kemur eru miklir skaflar og þurfum við þar að þræða okkur að mestu utan vegar. Nú erum við komnir að Skarðsá í Langadal og sjá- um við strax að hún er fær, hafði lítið dýpkað og fór- um við stanzlaust yfir hana. I niðurgröfnum veginum handan við ána verðum við fyrir því óhappi að festa bílinn og tók okkur nærri klukkutíma að losa hann en þýður sandur er undir í veginum og fær bíllinn Htla viðspyrnu þó við losum snjóinn undan honum, en þessa stundina er sæmilegt veður, það bezta sem við fengum þennan dag. Þarna er heiðin einna hæst, og eru þar óslitnar urðir, fremur smágrýttar. Hröðum við okkur nú sem við megum til að komast sem lengst áður en dagsbirtu þrýtur, en þó þarf að hafa gætur á sköflunum, og reynum við að þræða fram hjá þar sem það er hægt, heldur en að moka, þó freistast ég til að renna í skaflana þar sem ekki er hægt að komast fram hjá og stundum festum við bílinn en tímafrekt reyndist að moka undan honum. Nú gengur á með dimmum éljum og er nokkurt frost. Við þokumst nú svona áfram út heiðina og erum komnir í Bruna- hvammsháls þegar veðrið fer að versna verulega. Má nú heita samfelld blindhríð og nokkur stormur, og er við komum í Kálffellið skellur myrkrið yfir, og reyn- ist nú örðugra að rekja sig áfram og þurfum við nú víða að moka, en leitumst við að komast fram hjá sköflunum þar sem mögulegt er. Við höfðum nóg nesti og neyttum þess dálítið áður en veðrið versnaði fyrir alvöru. Við erum nú nokkuð teknir að blotna fyrir neðan úlpurnar, þar sem alltaf þarf að fara út og inn, en moksturs snjókoma hleður á okkur gaddinum, 346 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.