Heima er bezt - 01.10.1962, Page 20

Heima er bezt - 01.10.1962, Page 20
ÞATTUR ÆSKUNNAR RITSTJORI HVAÐ UNGUR NEMUR GUÐLAUGUR JÓNSSON: Noröan - Grána Guðlaugur Jónsson, lögregluþjónn í Reykjavík, hef- ur leyft mér að birta þennan þátt um Norðan-Gránu. En þátturinn er sannsögulegur. Norðan-Grána barðist fyrir lífi sínu í heiðum Kolbeinsstaðafjalls frostavetur- inn mikla 1911—1918. Þessi hlíð er nefnd Áslaugarhlíð í Grettissögu. — St. J. Svo má illu venjast að gott þyki,“ segir máltækið, og má það oft til sanns vegar færa. „Við erum ekkert nema vaninn,“ segja menn, bæði í gamni og alvöru, en hvort sem heldur er, þá breytir það engu um sannleiksgildi orðanna. Vaninn, í ýmsum myndum, er staðreynd, sem ekki verður gengið fram hjá, en hann er ekki ævinlega góður og ekki heldur sú vanafesta, sem kemur ekki auga á það, sem betur má fara, eða hafnar því, af því annað er vani. Og í sumum greinum virðist koma fram svo mikið ósamræmi í orð- um og athöfnum manna, án þess að þeir verði þess sjálfir varir, að kalla mætti það regindjúp. Vaninn hef- ur náð þar fullum tökum og lokað fyrir aila útsýn, sem smugulaus veggur. Sem dæmi um þetta má nefna, að lengi, og með réttu, hefur hesturinn verið talinn þarfasti þjónninn hér á landi, og engu öðru húsdýri íslenzka bóndans hefur verið sungið annað eins lof og honum, bæði í bundnu og óbundnu máli. En þrátt fyr- ir allt það dálæti og ástfóstur, sem menn hafa tekið við hestinn og ekki verður vefengt, þá er hitt jafn satt, að ekkert húsdýra sinna hafa hérlendir menn sýnt jafn- litla mannúð og hestinum, jafnvel umhugsunarlaust og án þess að nauðsyn bæri til. Vaninn hefur lagt þar sina köldu hönd á plóginn og því miður mun hann hafa þar á nokkur tök enn í dag. Á meðan ég var á æskuskeiði og lét stjórnast af þeim, sem voru mér eldri og reyndari, var ég að öllu leyti háður þessu vanans valdi. Þá var ekki vöknuð hjá mér sú spurning, hvers vegna hestunum var yfirleitt ætlað lakara fóður en öðrum skepnum, og að þeir voru látn- ir standa úti og bjarga sér sjálfir, þegar allar aðrar skepnur voru hýstar við fóðurgjöf, svo og nokkur hluti þess hrossapenings, sem til var? Og hvernig stóð á því, að sums staðar var hrossunum, eða nokkrum þeirra, hvorki ætlað hús né hey? Þau voru beinlínis sett á Guð og gaddinn, eins og það var orðað, en það þýddi, að þau urðu að lifa og deyja við þá næringu eina, sem þau gátu aflað sér sjálf, hvernig sem viðraði og hvernig sem var umhorfs á jörð. Þetta lánaðist oftastnær von- um framar, en enginn maður getur þó gert sér fulla grein fyrir þeim þjáningum hungurs og kulda, sem þetta líf kostaði skepnurnar. Þess eru líka orðin sorg- lega mörg dæmi hér á landi, að útigangshross hafa orð- ið að láta lífið í heljargreipum vetrarins. A fullorðins- aldri hefur mig oft hryllt við harmsögunni að baki þeirri staðreynd að stóðhrossið, svellgróið að holdum á haustnóttum og þoldi sig ekki fyrir fjöri, átti fullt í fangi með það næsta vor, að bera sinn eigin kropp, sem þá var orðinn lítið annað en beinin innan í hár-

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.