Heima er bezt - 01.10.1962, Side 22

Heima er bezt - 01.10.1962, Side 22
Kolbeinsstaðajjall. I suðurhlíðum fjallsins gekk Norð- an-Grána úti. sér nú með það erindi til bóndans í Syðstu-Görðum, Þórðar Arnasonar. Björn óskaði þess að geta fengið hjúkrun fyrir folana, þegar kæmi fram á miðveturinn eða eftir atvikum, en vildi láta hryssuna með tryppinu bjarga sér á haga að öllu leyti. „Eftir því sem mér hef- ur verið tjáð um haglendi hér,“ sagði Björn, „þá trúi ég ekki öðru en að sú gráa bjargi sér og tryppinu þó nokkuð harðni að.“ Var nú samið á þessum grundvelli. Þórður bóndi tók öll hrossin til hagagöngu, og lofaði að sjá um hjúkrun fyrir folana, er liði á veturinn. Var hrossunum svo sleppt á hagann og sýndust þau una sér hið bezta. Þau héldu ávallt hópinn og gerðu enga til- raun til þess að strjúka. Þeir, sem eru orðnir miðaldra og þar yfir, munu all- ir minnast greinilega veðráttunnar veturinn 1917—18. Þá upp úr áramótunum gerði frosthörkur þær, sem mestar hafa orðið hér á landi á þessari öld. Frostið í mínu byggðarlagi komst í 32 gráður á Celsius og fylgdi þar oft með norðan bálviðri og stórhríðar. Svo mikil frostharka stóð að vísu ekki mjög lengi, en harðindi og jarðbann héldust stöðugt fram á útmánuði. iVleð hverjum degi sem leið fjölgaði þeim hrossum, sem menn tóku á hús og hey, og ekki leið á löngu þar til Norðan-Grána og tryppið hennar voru einu hrossin, er áttu engan annan kost en að glíma við Guð og gadd- inn í brunafrosti og stórhríðum skammdegisnáttanna. Það var ekki nema í dúrum milli bylja, að maður gæti séð til ferða Norðan-Gránu og dóttur hennar, á meðan hríðarnar geisuðu sem mest. En það var auðséð á háttum hvítgráu hryssunnar að hún var vmsum veðr- um vön. Hún var prýðis vel fundvís á staðina, þar sem helzt var afdrep og eins á þá fáu og smáu hagabletti, sem stóðu upp úr hjarninu, en þar var ekki um að ræða nema nokkra þúfnakolla og börð á víð og dreif. Væri veðrið þolanlegt rásaði Grána mikið og leitaði að haga. Mátti sjá hana á ýmsum stöðum sama daginn, jafnt á láglendinu sem upp um alla hlíðargeira svo hátt, sem henni var unnt. Hygg ég, að það hafi verið mos- inn í hlíðargeirunum, sem einkum nærði þessi olnboga- börn meðan harðast var á jörð. Dag nokkurn í hríðar- lausu veðri og miklu frosti rásaði Grána með allra mesta móti. Þá komst hún alveg heim að fjárhúsum í túnjaðrinum. Hún var þá enn í góðum holdum, en kviðdregin og auðsjáanlega svöng. Ekki sást neinn vott- ur þess að hana langaði í húsaskjól, enda þekkti hún ekkert til slíkra lífsþæginda. Eiganda hennar sagðist svo frá, að hún hefði aldrei komið undir þak þá 16 vetur, sem hún var búin að lifa. Grána nagaði ákaft húsveggina, þar sem hún fann einhverja ögn af grasi, satt að segja langaði mig til að gefa henni góðan bita, en ég þorði það ekki af því að mér hafði verið kennd sú speki, að ef þess háttar væri gert við gaddhesta heima við hús, þá mundu þeir hvergi tolla annars stað- ar úr því, og hætta að reyna að bjarga sér. Samt gat ég ekki setið á mér að öllu leyti, heldur kastaði ég fyrir hana nokkrum saltsíldum, sem átti að gefa kindum, án þess þó að búast við að hún vildi þær. Okunnugt er það, hvort Grána hafði nokkru sinni áður komizt í kynni við fæðutegundir úr sjó, en hún át síldarnar með góðri lyst, og að því búnu hélt hún burt og var að skammri stund liðinni komin hátt upp í hlíðargeira. Af áðursögðum ástæðum varð ég því feginn að Grána hvarf á brott, en satt að segja hafði ég alls ekki góða samvizku út af móttökunum á þessum málleysingjum, sem mér fannst að hefðu þarna leitað á náðir manna í neyð sinni. Fór mér þar sem öðrum, er afla sér rósemi með því, að halda sér í nógu mikilli fjarlægð frá um- komuleysingjum til þess, að sjá þá ekki. Þetta var í eina skiptið, sem Grána kom heim til bæjar um vetur- inn, svo að ég muni til. Þegar loks harðindin tóku enda og hláka fór að, þá var Grána ekki sein að finna staðina, þar sem fyrst blánaði fyrir jörð. Og úr því að þær mæðgurnar gátu fengið sæmilega nóg í munn og maga, varð líðan þeirra að sjálfsögðu allt önnur og betri. Utkoman var sú, að þegar hinn grimmi vetur var á enda og vorið byrjaði að næra hin langhrjáðu náttúrubörn með birtu sinni og gróðurmagni, þá voru þær, Grána og dóttir hennar, í betra ástandi að holdum og útliti en við hefði mátt búast eftir svo langa og stranga útivist, sem um var að ræða. Þegar leið á vorið hurfu þær mæðgur báðar úr hög- unum, og leið svo nokkur tími að enginn vissi hvert þær höfðu farið. Loks urðu menn þeirra varir innst í botni Haffjarðardals, sem liggur inn í fjallgarðinn til norð-austurs frá Hnappadal. Jafnframt kom þá í ljós, að Grána hafði eignazt folald, en ekki var það kunnugt fyrr, að hún hafði verið með þeim hætti. Það þótti ekkert vafamál, að fæðingarhríðirnar hafi vakið Gránu til umhugsunar um átthagana norðanlands, og þangað hafi hún ætlað sér til þess að fæða. Stefnuna hafði hún tekið rétta og hnitmiðaða, en tíminn reynzt henni allt- of naumur til svo langrar ferðar. Með þessu var það upplýst, að þrekvirki Gránu var stærra en kunnugt hafði verið. Jafnframt því að afla sér sjálfri viðurværis langan fimbulvetur með því að berja klakann og naga mosa af börðum og þúfnakollum í hríðum og bruna- frosti, hafði hún fætt afkvæmi sitt að einhverju leyti 350 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.