Heima er bezt - 01.07.1963, Side 8

Heima er bezt - 01.07.1963, Side 8
ekra með kartöflum 1928 Ein 1 dag 2000 ekrur r Rauðárdalnum í Norður-Dakóta, þar sem fyrsta flokks ræktun og uppskera er aðaltekjustofn þessa héraðs, er m. a. starfandi hámarks vélvæddur, af- burða velrekinn og arðvænlegur kartöfluræktar-iðn- aður Hall-feðga. Hér í Edinborgar-hverfi í Walsh-héraði vinna fimm bræður að því starfi föður síns, sem hann hóf á önd- verðum þriðja tug aldarinnar. Árið 1928 hófu fimm synir J. G. Hall: Bill, Bamey, Ed, Joe og Johnny,* starf sitt og beittu allri sérþekk- ingu sinni og kartöflu-kunnáttu á einni ekru lands, sem þeir fengu sér útmælda. (Ekra er allt að því hálfur hekt- ari.) Fullum 30 árum síðar, 1959, hafði starfssvið Hall- feðga aukizt upp í 2000 ekrar, og nam sala þeirra á úr- vals-kartöflum allt að 400.000 bushels (eða um 800.000 skeppum). Hall-feðgar reka alla kartöflurækt sína með fjór-raða vinnslutækjum. Að uppskerunni beita þeir átta tví-raða uppskeru-plógum, 24 dráttar- og flutningabílum, færi- böndum og lyftum. Og vinnulið þeirra eru 62 verka- menn. Ábyrgð, umsjón og stjórn þessa víðtæka starfs er skipt milli bræðranna fimm. Vilhjálmur og Jón standa fyrir birgðakaupum og sölu, ráðningu starfsmanna og launagreiðslu. Þessar ágætu úrvals-kartöflur feðganna eru flokkaðar og settar í umbúðir í tveimur fjölyrkjustöðvum, sem þeir feðgar eiga í Edinborg og Hopple N. D. Eru kart- öflurnar settar í 100, 50, 25, 10 og 5 punda poka. * Þ. e. Vilhjálmur, Bjarni, Eðvarð, Jóel og Jón. Á þremur áratugum hafa Halls-feðgar tröllaukið kart- öflurækt sína og gert hana að einu allra mesta ræktunar- og fjölyrkju-fyrirtæki fylkisins Norður-Dakóta. Síðan eru vörubirgðirnar merktar umboðsmönnun- um og sendar á sölustaði með vörubílum og jámbraut- um. Meginhluti kartöflu-birgðanna er Rauðár-Rauður, sem er mjög verðmæt tegund og bragðgóð, bæði soðin og glóðbökuð. Bræðumir Jósef og Bjarni gera allar áætlanir um byggingu og skipulagningu geymsluhúsanna (skemm- anna) og annarra bæjarhúsa. Endurbyggingar eru gerð- ar eftir þörfum til að fylgjast með framförum á þess- um vettvangi. Stærsta kartöflu-skemma þeirra feðga rúmar 120.000 bushel. Er þetta ef til vill stærsta kartöflu-skemma í einkaeign í heimi. Alls rúma skemmur þeirra um 500.000 bushels. Allar eru skemmurnar í nánd við þvotta- eða fjöl- yrkju-stöðina, svo að kartöflunum er fleytt eftir straum- rennum beint í þvottakerfið. Eðvarð ber ábyrgð á vinnustofunum (verkstæðum), sem eru mikilvægur hluti fyrirtækis, þar sem vélvæð- ing er hvívetna á svo háu stigi. Mestallt land þeirra Hall-feðga undir kartöflurækt hafa þeir tekið á leigu fyrir 15 dali ekruna að meðal- tali, í fimm áföngum (leigan endumýjuð á 5 ára fresti). Einnig rækta þeir talsvert af korni, svo sem hveiti og bygg. Vafalaust eru Hall-feðgamir brautryðjendur og for- ystumenn í kartöflurækt og iðnaði, og nafn fyrirtækis þeirra, Champion (Brautryðjandi) á því vel við. (American Vegetable Grower, ágúst 1960.) Hinir 20 dráttarbilar (vörubilar), sem aðallega eru notaðir til að flytja karötflurnar af ökrunum. 232 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.