Heima er bezt - 01.07.1963, Blaðsíða 11

Heima er bezt - 01.07.1963, Blaðsíða 11
vor og haust. Og þá er hún einstæð, öldruð og þreytt hafði lokið ferð sinni í kaldrænum efnisheimi, buðust margir til þess — minnugir góðra kynna — að hafa fram- kvæmd um útför hennar að sóknarkirkjunni að Ufs- um, þar sem náfjölum og látnu líki var búin gröf. KVONFANG OG NOKKRIR DVALARSTAÐIR. Árið 1901, þann 10. september, kvæntist Jóhann Jóns- son og gekk að eiga Önnu Pálsdóttur frá Atlastöðum Bjömssonar fyrrv. bónda þar, Sigurðssonar frá Þverá í Skíðadal Sigurðssonar bónda á Þverá Hallgrímssonar bónda sama stað Jónssonar. Móðir Önnu Pálsdóttur var Kristín Gísladóttir bónda á Auðnum Gíslasonar bónda á Göngustöðum Jónssonar bónda sama stað Péturs- sonar kirkjusmiðs að Hólum í Hjaltadal. Páll Björns- son kvæntist síðar Guðrúnu Magnúsdóttur. Synir þeirra vom þeir Magnús Pálsson lengi bóndi að Gmnd í Svarfaðardal, síðar búsettur á Siglufirði (d. á Siglu- firði 1962). Hann átti Þóranni Sigurðardóttur sldp- stjóra, síðast bónda að Grund. Annar sonur Páls og Guðrúnar er Björn Pálsson, ókvæntur, hefur lengi dval- ið á Siglufirði og nú, þegar hér er komið, meira en átt- ræður að aldri. Kristín Gísladóttir giftist ekki, en síðar átti hún son með Jóhanni Árnasyni iir Þingeyjarsýslu. Sonur þeirra Jóhanns og Kristínar er Ingólfur Jóhanns- son, er nú, þegar þetta er ritað, dvelur hjá dóttur sinni og tengdasyni að Brúnagerði í Fnjóskadal. Kristín Gísla- dóttir móðir Önnu Pálsdóttur og Ingólfs Jóhannssonar var vel verki farin, góðviljuð, greind að náttúru, um flest hin mætasta kona. Anna Pálsdóttir var frá barn- æsku alin upp og í fóstri þeirra hjóna, Önnu Sigríðar Björnsdóttur og Árna Runólfssonar, er lengst og síð- ast bjuggu að Atlastöðum í Svarfaðardal. Anna Páls- dóttir gerðist snemma þroskavænlegur unglingur, var bróðurdóttir Önnu Sigríðar húsfreyju og þeim hjón- um báðum harla kær, svo og uppeldissystkinunum þar á Atlastöðum og börnum þeirra hjóna. Önnu Pálsdótt- ur gekk ágætlega allt sitt æskunám og bæði til munns og handa. Góðlynd hversdagslega, geðfelld öllum í skapi og mátti segja hugljúfi hvers manns. Hinn vöxtu- legasti kvenmaður, þrekmikil, og afkastaraun hennar langt yfir meðallag. Heilsugóð öU uppvaxtarárin, svo að segja mátti, að aldrei yrði henni misdægurt. Anna átti skammt til tvítugs, þá er hún yfirgaf fósturgarðinn að Atlastöðum. Fór þá að Hreiðarsstöðum, en þar var þá Jóhann Jónsson vinnumaður, og hófust þar kunn- leikar þeirra og ástafar. Svo bar við, þegar Ánna Páls- dóttir ól annað bam sitt (Önnu Stefaníu) í marzmán- uði 1905, að þá veiktist hún af bamsfararsótt. Er stutt frá að segja, að rúmlæg var hún í 19 vilcur og svo vilt- um skipti svo sem milli heims og helju. Sigurjón Jóns- son læknir, þá á Grenivík — síðar og fyrsti læknirinn í Svarfdælalæknishéraði — var læknir Önnu í þessari heljarglímu, samvizkusamur jafnan og skyldurækinn með yfirburðum — lét svo ummælt síðar, að meðfædd hreysti konunnar og góð meðferð á yngri árum hefði Jóhann Jónsson. sigrað í baráttunni við illræmdan háskavald. En brátt sást á, að loknu og langvinnu sjúkdómsstríði, að Önnu Pálsdóttur var brugðið. Heilsa hennar og þrek hafði lamazt. Og minjar illhrifanna bar hún til æviloka. Þau hjónin Jóhann og Anna voru bæði alin upp í sveit og við sveitabúskap og vönust framleiðslustörfum þeim, er þar til heyra. Og þá er þau gengu að eigast, helzt hugsað sér að fá jörð til ábúðar, helzt í Svarfaðar- dal, ef þess væri nokkur kostur. En langt fram yfir síð- ustu aldamót vora flest býli sveitarinnar byggð og enn þröngt setið. Þau urðu því að gera sér að góðu hús- mennsku, að vísu hjá góðu fólki, sem alloft bjó við þröngan og ófullkominn húsakost, landþrengsli og mjög takmarkaðar slægjur og þess vegna litlu eða engu hægt að miðla húsmennskufólki. Húsmennska við slík skil- yrði var ætíð mjög óbjargvænlegur atvinnuvegur. Reyndar enginn atvinnuvegur fjölskyldufólki, enda stóð fjarri öllum vonum um batnandi hag. Öryggisleys- ið, í hvaða átt sem litið er, og sífelld lífsnauðsyn að vera öðram háður, hefur löngum verið fjandsamlegt mannlegu eðli og eins fyrir því, þó í kristnu landi sé. Og þau Jóhann og Anna urðu að gera sér að góðu húsmennskuna, fyrst að Hofi, þá að Hrafnsstöðum, því- næst að Hamarkoti og síðast um nokkur ár að Garða- koti, grasbýli í Vallalandi. Árið 1915 fluttu þau frá Garðakoti til Akureyrar, borin von um bjargræðis- möguleika í Svarfaðardal, sveitinni sem þeim var þó allra sveita kærast á íslandi. HVAÐ SVO? Óráðinn og atvinnulaus kom Jóhann til Akureyrar með konu sína heilsutæpa og tvö börn. Húsnæðið var leiguíbúð í kjallara. Fljótlega fékk hann atvinnu við Heima er bezt 235

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.