Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1963, Qupperneq 16

Heima er bezt - 01.07.1963, Qupperneq 16
ÚLFUR RAGNARSSON: Abskiljanlegir partar úr einni romsu (TIL SÉRA SIGURÐAR í HOLTI SNEMMA Á ÁRINU 1961) Komið þér sælir, minn séra! Sárfátt mun tíðinda vera af mannfólki „milli Sanda“. Mannheilt er þar að vanda. Leiðindi lýðum helzt granda loðmolla óheilags anda. English þarf aldrei að spíka Orðinu sjaldan að flíka þessu, sem prestarnir pranga. Pestir framhjá oss ganga. Ég heyrði þó karlæga kvennsu kvaka um inflúenzu „þarnana í Þokuvík“ — þjóðlandsins kórónuflík. Þar púlserar pólitík og pössunarsemi rík að grunda ei grundvallarmál Guð eða mannlega sál. Varla ég gjöri víðreist á næstu veraldarbönd halda skapi æstu. Reisur hefur sá fáar í frammi sem firrtur er gúmbarðagammi. Um langsímu fregn nam þó fljóta nú fari að bregða til bóta með lausn minna latgengu fóta Land-Rovergæðingnum skjóta. En heldur lízt mér þó ljótor sá langþolni diesel-rótor. Liðlegri miklu en mótor er meyjar vel skapur fótor. En mikið er veröldin merk þessi mannheimsins rúllandi bolti. Og gott er að vita svo gáfaðan klerk guðrækja bæinn í Holti. í hjarta mér geymast hans gustukarverk þótt glamri mér málbein í skolti. — Sín ítök á einnig þín kvinna í innbúi hugsala minna svo lengi sem lofþráðinn spinna Ijóðsnældur góðvinakynna. Upphaf míns Ijóðs var þó lítið og líklega dálítið skrítið. Upp rekinn eldsnemma á lappir ég óðara flæktist í pappir. Snepla er nauðsyn að nýta. Niður má rímleysur kríta mergníð um Moskóvíta málandi west-bófa hvíta elskandi þarfleysuþruglið þrástag og dagblaðarughð. Já, seint þrýtur vatn á þá voða túrbínu er víxlstrauma drífur frá rafurmaskínu á huga míns háspennulínu með hoppkátri reimskífu-pínu. Forláts ég aldregi bið forkólfalið á framhleypni minni. Húslestra vantar á heimilið. Því húsbóndaverki ég sinni. Héraðskjáninn á Klaustri kveður skútuna leka og stendur í stífasta austri — gleymirin á gúmmífleka og gallharðan assúrans einmitt þann sjúra sjans að láta þá borga vorn brúsa Kennedý, vin vorn, og Krúsa. Væri það kannski vansi að vaða í gulli og glansi? Hvern sosum ætli það geti glatt þó glæpist eitt flón á að segja satt og glopri því út um borg og bý sem betur er þagað gröfina í? 240 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.