Heima er bezt - 01.07.1963, Side 19

Heima er bezt - 01.07.1963, Side 19
A smalaþúfunni „Hann var alltaf að smala frá því að hann gat skriðið, smala kvöld og morgna, smala á daginn, og á nóttunni líka, þegar kindurnar tolldu hvergi, nema við sjóinn.“ Helgi Hjörvar. — Smalaskórnir. Þannig lýsir Helgi Hjörvar, í upphafi sögunnar Smalaskórmr, kjörum smaladrengsins um síðustu alda- mót. — Nú eru svo margir áratugir liðnir, síðan ég hef verið á smalaþúfimni, sem svo var nefnt í gamla daga, að ég veit ekki, hvort þessi beiskyrta lýsing á við kjör nútíma smaladrengs, en hún er vissulega rökrétt og lif- andi lýsing á kjörum smalans um síðustu aldamót.---------- En þessi hvassyrta, skáldlega lýsing á starfi smala aldamótanna, er ekki nema ein hliðin á aðbúð og kjör- um smalans. Smalastarfinu þá og ætíð fylgja margar ánægju- og gleðistundir. Ogleymanlegir eru margir vordagar, þegar kvöldblíðan lognværa kyssir hvern reit, og lagðprúðar ær með léttstíg lömb dreifa sér um hlíðar og daladrög, en fjörhá folöld fara á þeysispretti um rennsléttar grundir og melabörð. Þau kvöld gleym- ir smalinn vosbúð og forblautum mýrum. Áhyggjurn- ar rjúka út í veður og vind, fegurð vorsins hrífur hug- ann og smalanum finnst sem hamingjan búi í hverju hans fótspori. í þessum þætti langar mig til að bregða upp nokkr- um skyndimyndum úr minni smalaævi og smalareynslu. En sum atvik frá mínum smaladögum eru mér eins ljóslifandi í minni og þeir atburðir, sem eru að gerast nú daglega. En áður en ég vík að því efni, vil ég bera lauslega saman aðbúð og kjör smalanna um og eftir síð- ustu aldamót og nú á yfirstandandi áratug. Urn aldamótin þekktist ekki gúmmí-skófatnaður. Allir unglingar og fullorðnir gengu á íslenzkum skóm, annað hvort úr sauðskinni, selskinni eða leðri. Oftast voru smalarnir á leðurskóm. Stundum voru leðurskórn- ir slyddublautir, en í þurrviðrum voru þeir glerharðir. í frosthörkum hertu þeir mjög að fætinum og þurfti helzt að vera í tvennum þykkum sokkum í frosti, ef vel átti að fara. Enginn smali átti þá upphá stígvél, en nú eiga allir í það minnsta hnéhá gúmmí-stígvél. Þeg- ar leið smalans lá um mýrar og forblauta flóa, var reynt að láta þá klæðast skinnsokkum, sem náðu upp undir hné, en erfitt var að fá þá vel vatnshelda. Marg- ur drengur gladdist þó yfir nýjum skinnsokkum, eins og þeir væru skrautflíloir. í forblautum mýrum var þó mikill munur að vera í skinnsokkum, heldur en vera allan dagiim fenblautur, svo að vatnið bullaði upp úr skónum. Sunnan fjalls á Snæfellsnesi, þar sem við Helgi Hjörv- ar erum uppaldir, eru víða mýrar og blautir flóar, enda lætur Helgi Hjörvar aðalsöguhetjuna í Smalaskónum vera þreyttan á að ösla forblautar mýrarnar og fyrir- verða sig fyrir fótabúnaðinn, er hann kemur heim að Starhólmum og sér þar kaupmannssoninn á gljáburst- uðum leður-stígvélum. — Góð verjuföt þekktust varla á unglingum um og eftir síðustu aldamót, en nú á hver unglingur bæði skjólfh'kur gegn kulda og regnkápur. Ég tel því víst, að kjör smalans nú séu miklu betri en

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.