Heima er bezt - 01.07.1963, Page 24

Heima er bezt - 01.07.1963, Page 24
Skáldsaga eftir Magneu frá Kleifum HOLD OG HJARTA ÁTTUNDI HLUTI: Rúmið var svo breitt, að það var miklu meira en nóg pláss fyrir hann ofan við mig. Hann gat haft mína sæng. Okkur Birni nægði ein. Ó, hve það var yndislegt að búa um þennan litla sæta anga, bara ég ætti hann! Björn kom með volgan pelann, um leið og hann kom upp. Sá litli sneri sér til veggjar, greip pelann tveim höndum og bjóst til að fara að sofa, en við og við sleppti hann túttunni og starði stórum augum á stórrósótt gluggatjöldin. „Ég vil eignast bam sjálf!“ tilkynnti ég Bimi kveld- ið eftir. Dagurinn hafði verið eitt óslitið ævintýri. Dengsi litli var ekkert nema þægðin, síbrosandi svo skein í tvær mjallhvítar tennur í hvomm góm. „Ekki strax,“ svaraði Bjöm dræmt. „Enn ertu of ung. Þú veizt ekki, hve bindandi er að eiga barn.“ Við jöguðumst um þetta stundarkom, en hann var ósveigjanlegur. „Sérðu eftir að hafa kvænzt mér?“ spurði ég gröm, „fyrst þú vilt ekki einu sinni eignast afkvæmi með mér! “ „Það er ekki það. Seinna eignumst við börn, ef við búum saman. Enn get ég varla trúað því, að þú viljir búa með mér ævina á enda. Ég skil vel, að stúlka með þitt skap og þitt uppeldi á ekki gott með að sætta sig við að vera sífellt númer tvö!“ Rödd hans var svo þreytuleg, að ég roðnaði við til- hugsunina um, hve oft ég var önug og ill við hann, þeg- ar hann kom seint heim, eða þurfti að fara fyrirvara- laust út, ef til vill einmitt þegar kveldið virtist ætla að verða svo indælt. Þetta voru hlutir, sem hann réð ekki við. Vildi ég að hann vanrækti starf sitt mín vegna? Nei, til þess var ég of hreykin, þegar ég heyrði fólk hæla honum og dást að störfum hans. Þá fylltist ég metnaði og talaði smndum, eins og ég ætti ekki svo lítinn þátt í heppni hans og hamingju, — ég sem gerði lítið annað en nöldra og nudda yfir því, hve lítinn tíma hann hefði afgangs fyrir mig. En myndi ekki einmitt lítið bam bæta úr einmanaleik og leiðindum mínum? Ótti Björns um að ég færi frá honum, var fáránlegur. Hvert ætti ég að fara, hvernig gæti ég lifað án hans. Pétur litli varð strax eins og ljúfur sólargeisli á heim- ilinu. Meir að segja Páll gat ekki stillt sig um að koma inn til hans og tala við hann tæpitungu, og eftir fáeina daga var hann búinn að kenna honum að kalla sig afa. Ég hljóp strax niður í búð og keypti gam, alls kon- ar gam, gróft og fínt, ótal liti. Nú skyldi litli karl svei mér verða fínn! Svo fékk ég mér nokkur prjónablöð og settist niður með prjóna mína. Pémr fékk strax áhuga á hnyklinum og skreið um allt eftir honum. Verst var þegar hann beit í hann og sleit sundur bandið. „Sussu, sussu!“ sagði Anna. Þetta sagði hún að væri ekkert uppeldi. Strákurinn bleytti og sliti garnið, og hvemig væri svo prjónaskapurinn? Hún athugaði nú vandlega, það sem ég var búin með. Svo hló hún og dró prjóninn úr og rakti það lítið, sem ég var búin með, upp aftur. Svo fitjaði hún upp og byrjaði fyrir mig. Það var auðséð, að hún hafði haldið á prjónum fyrr. Ég vildi samt ekki gera henni til geðs að gefast upp, því ég fann að hana dauðlangaði til að prjóna úr þessu fína garni sjálf. Svo lofaði ég henni að sjá allt það, sem ég hafði keypt, og gaf henni nokkrar hespur í peysu á Dengsa. Hrærð yfir gjafmildi minni fór hún fram að leita sér að prjónum, því strax átti að fitja upp. Sá litli átti ekki að þurfa að fara fatalaus heim aftur. Bjöm hældi mér fyrir dugnaðinn og sagði íbygginn, að seinna meir kæmi mér æfingin í góðar þarfir. Eftir mánuð var ég búin að gera strákinn svo óþæg- an, að hann var alveg óþekkjanlegur, keipaði og rellaði, fengi hann ekki allt, sem hann vildi. Og reyndi ég að 248 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.