Heima er bezt - 01.07.1963, Page 32

Heima er bezt - 01.07.1963, Page 32
vísaði prestinum inn. Á leiðinni inn göngin mættu þeir Jórunni. Hún gekk til séra Hálfdans og rétti honum hendina. „Komið þér sælir, séra Hálfdan,“ sagði hún, og í augnaráði hennar var bæði spum og ótti. Séra Hálfdan tók hönd hennar í báðar sínar og horfði í augu hennar. Það lýsti föðurleg blíða úr svipnum. Hann vissi að nú, er hann flytti Jóranni tíðindin myndi þetta lífsglaða barn, sem aldrei hafði mætt mótvindi á ævinni fyrr, hljóta sár er seint greri að fullu, — hvemig myndi hún standast þessa raun? Þannig stóðu þau dálitla stund. Þá sleppti prestur hönd hennar og gekk áfram inn göngin. Hann opnaði dymar að svefnherbergi hjónanna og gekk inn. Jórunn og Erlendur komu á eftir. Erlendur lokaði; séra Hálfdan tók stól, settist og hallaði sér fram á borð- ið. Hann leit á þau feðginin til skiptis; síðan sagði hann: „Kallaðu á móður þína, Jórunn.“ Jórann gekk út, og eftir andartak komu þær mæðg- umar inn. Séra Hálfdan ræskti sig. Það var eins og hann gæti ekki hafið máls á því sem hann nú þurfti að segja. „Er Agnar dáinn eða slasaður?“ spurði Jórunn. Hún gekk til séra Hálfdans, studdi hendinni á öxl hans, horfði á hann, og augu hennar voru myrk af skelfingu. „Nei, kæra bamið mitt. Agnar er hvorki dáinn eða slasaður — hann er farinn.“ „Farinn?“ endurtóku þau öll þrjú. „Já, farinn — hann fór með skipinu í morgun til Hafnar.“ Það varð dauðaþögn, þegar séra Hálfdan hafði sagt þessi tíðindi. Jómnn stóð litla stund eins og steingervingur. Allt í einu riðaði hún við og virtist að því komin að hníga niður. Faðir hennar flýtti sér til hennar og rétti henni stól. Hún hneig niður á stólinn, spennti greipar og hall- aði sér fram á borðið og stundi eins og sært dýr. Hún grét ekki, en úr augum hennar skein ósegjanleg sorg. „Hver sagði þér þessi tíðindi, séra Hálfdan?“ spurði Halldóra. „Kristján kaupmaður gerði mér orð að finna sig um hádegisbilið í dag. Erindið var að biðja mig að tilkynna ykkur þetta. Ég átti erfitt með það, en ég hélt að þið mynduð ekki frekar kjósa að einhver annar segði ykk- ur þessar hörmulegu fréttir.“ „Ert þú að koma frá Kristjáni fyrst nú?“ spurði Er- lendur. „Nei. Hingað kem ég beint frá altarinu í Borgar- kirkju. Ég hafði ekld kjark til að fara hingað umsvifa- laust, þó að ég vissi að það væri skylda mín, bæði sem prestsins ykkar og heimilisvinar. Ég leitaði því þangað, og þar hef ég kropið og beðið Guð um styrk handa mér og ykkur hjónum, en fyrst og fremst bað ég fyrir þér, Jórunn mín, — bað Guð almáttugan að hjálpa þér og styðja á þessari hryggilegu smnd, er höll drauma þinna hrynur í rúst.“ „Þakka yður fyrir, séra Hálfdan.“ Rödd Jórunnar var lág, nærri því hvíslandi. Hún reis á fætur og gekk út að glugganum; hún studdi höndunum í gluggakist- una, barmur hennar reis og hneig ört, það fóru skjálfta- kippir um allan líkama hennar, og við og við heyrðist niðurbælt gráthljóð. Þannig stóð hún góða stund. Allt í einu sneri hún sér við. Þau litu á hana öll þrjú. Þeim hnykkti við. Hún var náföl og augnaráðið kalt og fjarrænt. Hún líktist mest fallegri h'fvana marmara- mynd. Hún gekk til foreldra sinna, staðnæmdist frammi fyrir þeim og sagði með óeðlilega hárri rödd: „Verið ekld hrædd um mig. Agnar Olafsson er ekki þess virði að syrgja harm.“ Síðan gekk hún út úr herberginu hnarreist en köld eins og lifandi líkneski. Þegar dyrnar lokuðust á eftir Jórunni brast Hall- dóra í grát. „Guð minn góður! Hví leggur þú þetta á vesalings barnið mitt,“ smndi hún upp. Erlendur krepptt hnefana svo að hnúarnir hvítnuðu. „Agnar Ólafsson nýtur þess nú, að ég næ ekki til hans; annars yrði Jórunn mín síðasta fómarlambið hans,“ sagði hann. Séra Hálfdan leit á hann; friður og mildi lýsti úr augum hans. „Mín er hefndin, segir Drottinn. Hafðu það hugfast, vinur minn.“ „Já, séra Hálfdan, en stundum finnst manni Forsjón- in vera dálítið svifasein að rétta hlut þeirra, sem hart em leiknir.“ Að svo mæltu gekk Erlendur út úr herberginu, stað- næmdist á miðjum ganginum, leit yfir gestahópinn og sagði hátt og snjallt: „Vinir mínir! Ég bið ykkur að fyrirgefa að ég hef gabbað ykkur hingað. Það verður ekkert brúðkaup hér á Heiði í dag.“ Gestimir risu úr sætum sínum, gengu til Erlendar einn eftir annan og þrýsm hönd hans. Enginn spurði neins. Allir fundu að skuggi mikilla örlaga hafði lagzt yfir Heiði. Það var undir kvöldið að Jómnn kom út úr herbergi sínu. Hún var ennþá í brúðarkjólnum sínum og hafði lagt kápu yfir herðar sér. Hún gekk til dyra. Móðir hennar fór í veg fyrir hana. „Hvert ætlar þú, barnið mitt?“ „Ég ætla út í hvamminn til Gáska og sitja þar svo- litla stund, móðir mín.“ „Vilt þú ekki bíða ttl morguns, Jórunn mín. Það er orðið skuggsýnt, og svo ættir þú að fara úr hvíta kjóln- um þínum. Hann getur óhreinkast, góða mín.“ „Mér er gatan lcunn, mamma, og þessi kjóll hefur þegar verið ataður verri aur en komið getur á hann hér úr tröðunum á Heiði.“ Að svo mæltu gekk hún út. Foreldrar hennar horfðu 256 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.