Heima er bezt - 01.09.1963, Blaðsíða 13

Heima er bezt - 01.09.1963, Blaðsíða 13
BÖÐVAR MAGNÚSSON, LAUGARVATNI: Draumar (Framhald.) BJÖRN Á BREKKU. Nóttina 4. júlí 1921 dreymdi mig, að Björn á Brekku kæmi í ferðafötum inn í herbergið til mín. Eftir að hafa heilsað mér vinalega að vanda, kvaðst hann vera mjög þrevttur og beiddi mig að lofa sér að hvíla sig dálítið. Ég þóttist ekki kominn á fætur, en sagði hon- um, að ég skyldi strax klæða mig, og svo mætti hann hátta í rúmið mitt. Þótti mér hann verða þessu feginn. Fer ég svo í fötin og fer út, en Björn virtist fara að hátta. Eftir dáhtla stund kem ég inn aftur, og dettur mér þá í hug að líta inn í svefnherbergið og sjá, hvern- ig Birni liði. En þá bregður mér heldur í brún. í stað þess að hafa farið að hátta var hann að breiða rúm- teppi yfir tvær líkkistur í herberginu ásamt Þorsteini Jónssyni, fyrr bónda í Eyvindartungu, — en þeir voru gamlir vinir, — og fóru þeir sér að engu óðslega. Ég spurði Björn, hvað þetta ætti að þýða. Hann gaf mér ekkert út á það annað, en að ég sæi það seinna. Ég setti vel á núg stærð kistanna, svo og Iit og gerð ábreið- anna. Varð svo draumurinn ekki lengri. Nokkrum dögum síðar fæ ég bréf um það, að hjón- in frá Hurðarbaki í Villingaholtshreppi hafi bæði dáið með mjög stuttu millibili úr lungnabólgu. Þessi hjón voru bæði vinir mínir, og hún frændkona mín, Bergur Jónsson, Bergssonar frá Skálholti dó 9. júlí 1921, og kona hans, Ingigerður Hjartardóttir frá Eystri-Kirkju- bæ á Rangárvöllum dó fáum dögum síðar, og var í bréfi þessu farið fram á, að ég yrði við jarðarför þeirra að Skálholti 23. júlí, og yrði líkmaður að þeim. Þetta var vitanlega sjálfsagt að gera. Ég kom í hlað- ið í Skálholti alveg samstundis því, að kisturnar tvær komu í hlaðið. Brá mér þá heldur en ekki við að sjá, að stærð þeirra og rúmteppin yfir þeim voru nákvæm- lega eins og ldstur þær voru, sem þeir Björn og Þor- steinn voru að hagræða í svefnherberginu mínu í draumnum. Voru þeir Björn og Þorsteinn báðir trú- menn, söngmenn góðir og drengir ágætir. í draumnum mínum vissi ég, að þeir væru báðir dánir, eins og líka var. Alltaf hefur mér fundizt, að með þessum draumi hafi Björn verið að láta mig vita, að hann vissi um þennan atburð og vildi láta mig vita um hann. Eða hvernig á að skilja hann öðruvísi? GUNNLAUGUR ÞORSTEINSSON, KIÐJABERGI (F. 15/5 1851 - D. 3/5 1936.) Eins og fyrr getur, var Gunnlaugur Þorsteinsson, hreppstjóri í Kiðjabergi einn þeirra manna, sem lofaði mér því að reyna að fræða mig um eitthvað úr lífinu handan við dauðann, færi hann þangað á undan mér, og hann hefði möguleika til þess. Oft hefur mig dreymt hann, en einatt hefur það ver- ið svo óljóst, að ég hef ekki getað ráðið það. Þó er hér einn draumur, sem mér þótti öðrum draumum skýr- ari og gleggri, og mér þótti rætast strax. Um langt tímabil voru aðalstjórnendur og samverka- menn í Grímsnesshreppi þeir Gunnlaugur á Kiðjabergi, Ásmundur Eiríksson, bóndi á Neðra-Apavatni og Magnús Jónsson í Klausturhólum. Höfðu þeir skipzt á um oddvitastörfin, en Gunnlaugur alltaf verið hrepp- stjóri, og þeir Gunnlaugur og Magnús verið sýslu- nefndarmenn. Allir voru menn þessir á líkum aldri, Ásmundur fæddur 1857, Magnús fæddur 1861, og vinir alla tíð, Magnús lifði lengst þeirra. Svo er það eina nótt, að mig dreymir, að ég þykist fara fram að Neðra-Apavatni. Þegar ég kem þar í hlað- ið, þykir mér að ég hitti þar fyrir þá Gunnlaug og Ás- mund saman í mjög alvarlegu samtali. — Voru þeir þá báðir dánir. Þykir mér þá Gunnlaugur hætta strax samtali sínu við Ásmund og víkja talinu að mér og spyrja mig, hvort ég vilji ekki vera sér samferða upp á þjóðveginn, sem liggur fyrir ofan túnið. Kvað ég já við því. Þótti mér hann halda í taum á brúnum hesti, sem hann reið. Virt- ist mér hann þá vera ferðbúinn og herti á mér að flýta mér, — og fannst mér það ólíkt honum. Benti hann mér á tvo menn, sem voru að koma framan veginn og sagði, að þessa menn þyrftum við að finna, og mættum við því engan tíma missa. Svo var áhugi hans mikill, að hann dreif sig af stað á undan mér, svo að ég náði honum ekki fyrr en uppi á veginum. En í því við komum á veginn, var þetta fólk komið, og voru það Klausturhóla-hjónin gömlu, Sig- ríður Jónsdóttir, þá dáin fyrir nokkrum árum, og Magnús maður hennar, sem enn var á lífi, að því er ég bezt vissi. Þótti mér vera allmikill fagnaðarfundur hjá þeim Gunnlaugi og Magnúsi, en ég, sem var vinur þeirra beggja, stóð álengdar og hafðist ekkert að.- Draumurinn var ekki lengri. En daginn eftir frétti ég lát Magnúsar, og að hann hefði dáið þessa sömu nótt. Var þetta ekki bending frá Gunnlaugi til mín, að þetta gæti hann þó látið mig skyggnast inn í þessa hluti? Heima er bezt 309

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.