Heima er bezt - 01.09.1963, Side 36
208. Dagarnir liðu. Fjárhaldsmaður
minn og lögfræðingur hans leitast við
að ráða fram úr málefnum jarðeignar-
innar. Einn daginn kemur frú Tomsson
og segir mér, að fjárhaldsmaður minn
þurfi að bregða sér til útlanda.
209. „Eri verst af öllu er samt það, að
þú missir eignarréttinn á herrasetrinu,"
segir hún angurvær og snökktandi. „Það
verður að selja jarðeignina. Skuldirnar
eru svo miklar, og skattar gífurlegir.'1
210. Seinna um daginn kemur maður,
sem á að vera í staðinn fyrir fyrrverandi
fjárráðamann minn. Þetta er ákaflega
brosleitur maður. Og auðvitað er hann
lögfræðingur .... Hann heitir Haukur.
211. Erfðaeign minni verður þá ekki
bjargað. Jæja, ekki dugir að gráta út af
því. Til eru þeir, sem verr eru settir. Eg
geng frá eignarhlutum mínum og fer
síðan með Hauki lögfræðingi heim til
hans.
212. Við erum tvær-þrjár klukkustund-
ir á leiðinni heim til hans. Þessi nýi
forsjármaður minn kynnir mig fyrir
syni sínum, Serkir. Við tökumst í hend-
ur og heitum lögfræðingnum og einnig
hvor öðrum, að verða góðir félagar.
213. Serkir hefur heyrt sagt frá ævin-
týrum þeim, sem ég hefi lent í, og þeg-
ar við erum orðnir einsamlir, biður
hann mig að segja sér allt, sem á daga
mína hafi drifið. Eg tek þá til óspilltra
málanna, og hann hlustar spenntur.
214. Þegar ég segi honum frá því, að
einu sinni hafi lögreglan verið á hælun-
um á mér, dáist hann að því: „Þú ert
sannarlega kall í krapinu og af rétta
taginu,“ segir hann. „Þú átt heima í
okkar hóp!“
215. Ég reyni að koma Serki í skilning
um, að ég hafi verið alveg saklaus um
þau lögbrot, sem ég var grunaður um.
En Serkir hlustar ekki á neinar skýring-
ar og afsakanir — þess háttar er honum
utangátta og aukaatriði.
216. Þegar Haukur lögfræðingur er
farinn til Stokkhólms um kvöldið, tekur
Serkir mig út með sér: „Nti skaltu fá að
kynnast kumpánunum mínum,“ segir
hann. „Þeim mun eflaust geðjast frá-
bærlega vel að þér!“
332 Heima er bezt