Heima er bezt - 01.06.1964, Blaðsíða 2

Heima er bezt - 01.06.1964, Blaðsíða 2
Lýðveldið 20 ára I þessum mánuði minnumst vér þess, að 20 ár eru lið- in frá stofnun lýðveldis á Islandi, en með því var skráð- ur lokaþátturinn í rúmlega 100 ára frelsisbaráttu, enda þótt fullur sigur í því máli væri að vísu unninn 1. des- ember 1918. Svo má kalla, að frelsisbarátta vor hefjist um 1830, þegar Baldvin Einarsson tekur að rita um endurreisn Alþingis, og íslenzkir Hafnarstúdentar kalla málfundi sína Alþingi. Fyrsti sigurinn var endurreisn Alþingis 1843, þótt hvorki fengi það löggjafarvald né fjárráð. Þá tekur við hin langa, viturlega og þrautseiga barátta Jóns Sigurðssonar, og lokaþáttur hennar er Stjórnar- skráin 1874, sem með öllum sínum göllum var þó „fast- ari trappa til að standa á“, eins og Jón Sigurðsson komst að orði. Eftir þann sigur má kalla, að kyrrstaða verði í þess- um málum í nær aldarfjórðung. Olli því annars vegar afturhaldssöm stjórn Dana, og hins vegar baráttuaðferð Islendinga sjálfra, sem nú hafði fengið annan svip en um daga Jóns Sigurðssonar og einkenndist af samþykktum en ekki samkomulagsumleitunum, ef einhverju mætti þoka áleiðis. Laust fyrir aldamótin tekur hnúturinn að rakna. Val- tý Guðmundssyni tekst að fá dönsku stjórnina, til að samþykkja sérstakan íslenzkan ráðherra með fullri ábyrgð gagnvart Alþingi, þótt sá böggull fylgdi skamm- rifi, að hann skyldi búsettur í Kaupmannahöfn. En með þessu komst loks skriður á málið og fyrir atbeina Hann- esar Hafstein fékkst ráðherrann inn í landið og full- komin heimastjórn íslenzkra sérmála 1904. Með þeim atburðum er séð, hversu fara mundi í framtíðinni, og að ekki verði aftur snúið á braut til fullkomins sjálf- stæðis, og raunverulega var Sambandslagauppkastið 1908 viðurkenning Dana á því, að ísland skyldi vera sjálfstætt land. Þótt íslendingar höfnuðu Uppkastinu, sem oss raunar hlýtur að ýmsu levti að undra, þegar það er skoðað í Ijósi hlutlausrar athugunar, var það samt stærsti stjórnmálasigurinn, sem vér fram að þeim tíma höfðum unnið í deilunni við Dani, og ef til vill stærsti sigurinn í allri sögu frelsisbaráttu vorrar. Þótt fall Uppkastsins að vísu frestaði fullveldisviðurkenningu landsins, mátti nú ganga að því vísu, að hún fengizt, enda þótt heimsstyrjöld þyrfti fyrst að koma, til að hrinda málinu áleiðis og koma því farsællega í höfn. Enginn mun neita því, að samningslipurð og lagni Jóns Magnússonar forsætisráðherra ætti drjúgan þátt í úrslitunum 1918. En þó mun þar hafa miklu ráðið um afstöðu Dana og hversu fúsir þeir reyndust til samninga og leiðitamari við samningaborðið en 1908, að forystu- menn þeirra gerðu sér ljóst, að þeim væri ekki lengur stætt á að halda Islandi í viðjum, ef þeir ættu að endur- heimta Suður-Jótland í lok heimsstyrjaldarinnar. Eftir 1918 var ísland sjálfstætt ríki, enda þótt vér hefðum sameiginlegan konung með Dönum, og Danir færu með utanríkismál vor, sem hvort tveggja var skyn- samlegt eins og enn stóðu sakir um mál vor. Engum mun þó hafa dulizt, að hér væri einungis um bráða- birgðaráðstöfun að ræða, eins og uppsagnarákvæði Sam- bandslaganna ber ljósast vitni. Lýðveldið hlaut að koma fyrr eða seinna og baráttulaust. Stofnun þess var rök- rétt og óhjákvæmileg afleiðing þess sem gert var 1918. Deilur þær, sem urðu við stofnun þess, voru aðeins formlegs eðlis, hvort rætt skyldi við hinn aðilann eða eigi. Úrslit málsins hefðu orðið hin sömu, þótt svo hefði verið gert. Þegar lýðveldið var stofnað, geisaði heimsstyrjöld, og land vort var hersetið. En það gerði gæfumuninn, að það var vinsamlegur her, landinu til vamar en ekki til að þrúga undir sig landsfólkið. Fullvíst má telja, að her- nám Breta og síðan hervernd Bandaríkjamanna hafi forðað þjóðinni frá ósegjanlegum hörmungum, sem leitt hefðu af þýzkri innrás í landið. En um leið og vér æsktum herverndar Bandaríkjanna hurfum vér frá hinu yfirlýsta hlutleysi frá 1918, sem reynslan hafði sýnt að var haldlítil skjólflík, þegar til átaka kæmi. En um leið tryggðum vér oss viðurkenningu Bandaríkjanna á vænt- anlegu lýðveldi voru og stuðning þeirra, til að fá önn- ur ríki til að gera hið sama. Atburðir þeirra ára sýndu oss ljósast samstöðu vora með hinum vestrænu þjóðum, og að menning vor, stjórnarhættir og hagsmunir skipa oss í þeirra sveit og annars staðar ekki. Tuttugu ár eru liðin af lýðveldi voru. Ar mikillar sögu og viðburða. Framfarir og breytingar í þjóðlífi voru hafa orðið með ævintýralegum hraða. Fólkinu hef- ur fjölgað ört og velmegun aukizt, svo að þar erum vér nú í fremstu röð meðal þjóðanna. Oss hefur lærzt í rík- ara mæli en áður að hagnýta oss tækni og vísindi nútím- ans, þótt margt sé ólært enn, enda tekur það meira en 20 ár að losast undan baslhagmennsku og brjóstviti og taka upp vísindaleg vinnubrögð. Vér höfum tekið margvíslegan þátt í samskiptum við aðrar þjóðir. En minnisstæðast í þeim efnum verður þó sigur vor í land- helgismálinu, sem vakti athygli vítt um heim. 206 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.