Heima er bezt - 01.06.1964, Blaðsíða 34

Heima er bezt - 01.06.1964, Blaðsíða 34
— Síðan í fyrrahaust. — Er hún Steinvör mín ekki hér ennþá? — Jú, hún er hérna, en hún datt og fótbrotnaði síð- astliðið haust, og þá kom Svanhildur hingað. — En er Steinvör ekki orðin heil heilsu aftur? — Jú. — En verður þá þessi unga stúlka bústýra hér áfram? — Já, hún verður hér í framtíðinni. Þorgrímur lítur eins og ósjálfrátt á son sinn, ungan og glæsilegan, og einhver óþægileg kennd vaknar í sál hans: Svanhildur og Trausti! Þar eru hlutföllin í réttu samræmi, þýtur gegnum vitund hans, en hann hrekur þá hugsun óðar burt úr vitund sinni, rís snöggt á fætur og segir hvat- lega: — Við skulum ekki láta kaffið verða kalt. — Nei, það skulum við ekki gera. Trausti rís þegar á fætur og fylgir föður sínum fram í eldhúsið. Eldhúsið á Fremra-Núpi er í gömlum stíl, en stórt og rúmgott, og það er jafnframt borðstofa heimafólks- ins. Þangað hefur gestum einnig verið boðið til að neyta góðgerða frá fyrstu tíð, nema stórhöfðingjum svo sem sýslumanni og hans jafningjum, en þeim hefur verið borinn beini í gestastofunni. Umgengni í eldhúsinu hef- ur ætíð verið með hinni mestu prýði, en þó hefur Svan- hildi tekizt að gera það enn vistlegra en nokkru sinni áður. Þar er allt svo hreint og fágað hjá henni, að slíkt hlýtur að vekja eftirtekt og aðdáun þeirra, sem þangað koma. Feðgarnir ganga nú fram í eldhúsið, og Trausti lit- ast þar um eftir langa fjarveru. En þetta gamla eldhús hefur aldrei verið eins vistlegt í augum hans og nú. Undir glugganum stendur stórt dúkað borð með fram- reiddu veizlukaffi fyrir þá feðgana, og það minnir hann helzt á stórveizlur hér heima á æskudögum hans, en þær voru alltaf með mesta myndarbrag. Þorgrímur býður syni sínum sæti við borðið, og þeir setjast saman að kaffidrykkjunni. Svanhildur var ein í eldhúsi, er feðgarnir komu þangað, og Þorgrímur spyr: — Er vinnufólkið búið að drekka kaffið, Svanhildur? — Já, það er búið að drekka og farið út aftur. — Sagðir þú því ekki, hver kominn væri? — Nei, ég gerði það nú ekki. Trausti brosir til Svanhildar. — Það var ágætt. Mér þykir líka mest gaman að koma því öllu að óvörum. Ég fer strax að kaffinu loknu út og heilsa því. Svanhildur hefur ekkert sérstakt að starfa í eldhús- inu núna þessa stundina. Kanna með nægu kaffi stend- ur á borðinu hjá þeim feðgum, svo að þeir geta drukk- ið eftir vild, og hún vill lofa þeim að vera í næði. Hún gengur því inn í búr, sem liggur inn af eldhúsinu og dvelur þar, meðan feðgamir ljúka kaffidrykkjunni. Svanhildur hlustar lítið eftir samræðum þeirra feðg- anna undir borðum, en hún heyrir þegar þeir ganga fram úr eldhúsinu og út, og nú er hún aftur ein í bæn- um. Hún hraðar sér fram í eldhúsið og fer að rýma kaffiborðið. En eins og ósjálfrátt verður henni litið út um eldhúsgluggann, og hún sér þá feðgana ganga sam- an suður túnið. Augu hennar fylgja þeim eins og í leiðslu. Mikið eru þeir ólíkir menn. Þorgrímur fremur lágur vexti, þrekinn og stirðlegur í hreyfingum, en son- ur hans hár og grannvaxinn, en þó karlmannlegur að vallarsýn, og hreyfingar hans allar léttar og fjaður- magnaðar. Hann er klæddur Ijósgráum ferðafötum með Ijósan hatt á höfði, og það er eitthvað frjálst og fram- andi í framkomu hans og jafnframt heillandi. Hann er á að gizka svona mitt á milli tvítugs og þrítugs að aldri, líklega fjórunr— fimm árum eldri en hún. — Og hún er tilvonandi stjúpmóðir þessa manns! Framhald. Frá byggðum Breiðafjarðar Framhald af bls. 231. -------—-------------------- inu. Þrautin var unnin og nú var aðeins eftir að damla í land. Það voru kampakátir veiðimenn, sem heilsuðu húsfreyjunni, er í land kom í Elliðaey. Flyðran reynd- ist hátt á annað hundrað pund, er hún var vegin. Þetta eru einu flyðruveiðarnar, sem ég hef tekið þátt í um mína daga og er mér veiðiförin ógleymanleg. Sér- staklega er mér minnisstætt, er ég sá flyðruhöfuðið koma upp við borðstokkinn, og ég verð að segja það, að þá hefði ég kosið að báturinn sem við vorum á, hefði verið dálítið stærri. Ég hélt að þessi fagri, sprettharði fiskur yrði okkar banabiti. Báturinn okkar litli var eins og smáskel, þegar til átaka kom við flyðruna. En allt fór þetta vel, og þakka ég það sjómannsleikni Ólafs, en hann hafði stundað sjó á sínum æskuárum við ísafjarðardjúp á smáum og stórum bátum. En örugg handtök og leikni og lag á sjó, veitir meira öryggi en miklir kraftar sé þeim ekki rétt beitt. Sumarleyfinu í Elliðaey var Iokið. Ég kom heim úr sumarleyfinu hress og endurnærður og miklu fróðari um hið fjölbreytta líf eyjamanna, en ég áður var. Og mörg kvöldin hafði ég hugfanginn dáðst að hinni und- ursamlegu kvöldfegurð við Breiðafjörð. Stefán Jónsson. LEIÐRÉTTINGAR. MaiblaS. Magnús Bjarnason er ekki höfundur greinarinnar um Bjarna Jónasson í Blöndudalshólum, heldur Magnús heitinn Björnsson á Syðra-Hóli. Á bls. 171, neðstu línu, aftari dálki, stendur: „fóstra", les: „fóstru". Á bls. 182, undir mynd efst á síðu, stendur: „Taglið", les: Eyjan. Á bls. 183, 13. 1. a. n., fyrri dálki, stendur: „Bláskógaheiði", les: „Bláskógaháls". í Húsmæðraþætti í apríl-hefti, bls. 157 segir að Hólmfríður Pét- ursdóttir, Víðihlíð við Mývatn, sé formaður orlofsnefndar i Þing- eyjarsýslu, en það er Elín Aradóttir, Brún, Reykjadalshreppi, sem er formaður nefndarinnar. 238 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.