Heima er bezt - 01.03.1965, Síða 16

Heima er bezt - 01.03.1965, Síða 16
MAGNUS GUNNLAUGSSON: HETJUR í HARÐVIÐRI Sunnudagurinn 8. febrúar 1925 mun lengi verða minnisstæður þeim, er þá voru komnir til vits og ára. Þann dag gekk yfir meginhluta landsins eitt mesta hríðarveður af norðri, með frosti, fannkomu og veðurofsa, sem komið hefur á þessari öld, og er þá mikið sagt. I þessum veðurhamförum urðu víða miklir skaðar, en stórkostlegast var hið mikla manntjón, er tveir tog- arar fórust á Halamiðum með allri áhöfn. Víðast hvar um byggðir landsins var veður allgott um morguninn, sums staðar nokkur hríðarmugga, en hægviðri. Víða var því búfé rekið til beitar um morg- uninn, þrátt fyrir fallandi loftvog og mjög tvísýnt veð- urútlit, enda var vetrarbeit búfjár mjög þýðingarmikili þáttur í búskap sveitanna á fyrstu áratugum aldarinn- ar, þó að ekki sé farið lengra aftur í tímann. Vegna þess, hvað veðrið var milt um morguninn, brugðu margir sér burtu frá heimilí sínu ýmissa erinda eins og gengur. Sums staðar voru tveir eða fleiri á ferð, og var þá allt mikið auðveldara. Annars staðar aðeins einn, og þá urðu sumir að beygja sig undir ofurvald þessara hríðarhamfara, en aðrir báru gæfu til þess, að komast á leiðarenda, þó að mjóu munaði sums staðar. í Svarfaðardal var svipað veður og víða annars stað- ar þennan minnisstæða sunnudag. Vegna þess, hvað veðrið var milt árdegis, og þrátt fyrir nokkra snjó- muggu, höfðu ýmsir farið að heiman nokkru fyrir há- degi, sumir ætluðu til kirkju, en urðu að setjast að á næsta bæ við kirkjustaðinn þegar bylurinn skall á. Nokkrir voru að fara á fund, sem halda átti þennan dag í fundarhúsinu að Grund, en höfnuðu á fyrsta bænum, sem þeir komu að þegar bylurinn skall á. Varð því ekki meira úr ferð þeirra eða fundi í það sinn. Hér verður lítillega sagt frá tveimur mönnum, sem háðu harða baráttu úti í þessum minnisstæða hríðarbyl. Annar þeirra var Pétur Gunnlaugsson, þá bóndi í Brekkukoti í Svarfaðardal. Hinn var Ingimar Gutt- ormsson, þá til heimilis í Ytra-Garðshorni í sömu sveit, harðskarpur unglingspiltur, þá líklega nær tvítugsaldri. Hann giftist síðar Jóhönnu Jónasdóttur, er var systur- dóttir Sigurjónu konu Péturs Gunnlaugssonar. Þau Jó- hanna og Ingimar hafa búið mest af sínum búskap í Skeggjastöðum þar í sveit, en munu nú vera hætt bú- skap þegar þetta er ritað. Verður nú fyrst sagt frá ferð Ingimars: Hann mun hafa farið fram að Auðnum og trúlega lagt það snemma af stað heimanað frá sér, að hann átti að vera kominn heim aftur kl. 1—2 e. h. ef ekkert óvænt hindraði. Þó fór þetta á annan veg sem brátt verður að vikið. Er hann hafði lokið erindi sínu vildi hann ekkert tefja og sneri brátt heim á leið. Þegar hann var kom- inn nokkuð út fyrir Urðir, skall hríðarveggurinn í fang honum, og var þá þegar um leið komið ofsaveður með frosti og fannkomu, svo varla sá fram fyrir fætur sér. Líklega hefur Ingimar hugsað eins og margir fleiri, að fljótlega myndi rofa til og verða sæmilegt ferðaveður a. m. k. öðru hvoru. Hann tók því þann kostinn, sem hættulegur reyndist, að beita sér í veðrið og reyna að fylgja símanum, sem eins og kunnugir þekkja lá nálægt bænum Bakka þar í sveit. A þeirri leið, er Ingimar fór með símanum, eru tvær hættulegar torfærur. Sú fyrri er svokallað „Ingudý“ milli Urða og Hreiðarsstaðakots. Er til gömul sögn um það að eitt sinn hafi stúlka með þessu nafni farizt í dýi þessu og síðan hafi það verið nefnt þessu nafni. Hin torfæran, sem hér um ræðir er hin svonefnda „Jónshúsbrekka“ hjá Hreiðarsstöðum. Suður af þessari brekku skefur ætíð í norðanhríðum og myndast þá allmikill skafl eða hengja, sem getur orðið býsna örðug eða jafnvel hættuleg, en um þessa brekku liggur símalínan, sem margir urðu að nota sem vegvísir. Þar á meðal Ingimar í þessum minnisstæða hríðarbyl. En því er minnzt á þessar torfærur eða hættur, að svo virðist sem Ingimar hafi fengið eins konar hugboð um hættuna á réttu augnabliki, án þess þó að missa af símalínunni nema örstutta stund. Og þannig mjakaðist hann áfram, þó að hægt gengi, þar til honum virtist hann sjá ljós í gegnum hríðarkófið. Já, það var ekki um að villast, því að þarna sá hann það aftur, enda hafði þá rofað örlítið til, en þetta stutta hlé milli bylja var líka notað fljótt og vel, því að eftir litla stund stóð Ingimar við bæjardymar á Bakka. Hér þarf varla að taka það fram að viðtökurnar á Bakka voru svo sem bezt varð á kosið, enda hvort tveggja, að heimilið er þekkt að gestrisni og hvers kon- ar fyrirgreiðslu, og Ingimar í fullri þörf fyrir góða að- hlynningu. Eins og áður er að vikið, varð Pétur Gunnlaugsson bóndi í Brekkukoti allhart úti í þessum byl, þó að ekki hlytist tjón af. Þau Pétur og Sigurjóna áttu 9 böm, 96 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.