Heima er bezt - 01.03.1965, Blaðsíða 29

Heima er bezt - 01.03.1965, Blaðsíða 29
FJÓRÐI HLUTI. — Þetta vissi ég, sagði Sonja hreykin. Skúli er fall- egastur af strákunum, segja allir, en hann er líka lang- verstur. Nú skaltu koma heim og sjá þá, sagði Sonja og dró Hönnu af stað. — Nei, ég þarf að fara heim og gefa Hörpu, sagði Hanna ákveðin, ég vil ekki sjá strákana. Það var sama hvernig Sonja bað, lengra fékkst Hanna María ekki til að fara. Þær settust á sína þúfuna hvor, og Neró á milli þeirra. Og þar sátu þær, þegar amma kom út á hlaðið og kallaði hástöfum á Hönnu. I sömu andránni var kallað á Sonju heiman frá bæ, hún átti að passa Sverri. Komdu og sæktu strákinn með mér, svo fer ég með þér ofan í Kot og fæ að gefa Hörpu. Hanna var treg til, en lét þó undan, því ekki er hægt að eiga vinkonu, ef maður vill aldrei neitt fyrir hana gera. Heima á hlaðinu stóð faðir Sonju og hélt í hendina á Sverri. — Sæl, sagði hann og kyssti Sonju. — Hvar fannstu þetta trippi? — Þetta er hún Hanna María í Koti, og hún er ekk- ert trippi, við erum vinkonur, og ég á Neró með henni, sagði Sonja sármóðguð. Jón rétti Hönnu höndina: — Sæl, kindin mín, sagði hann og glotti ofurlítið. Hanna stakk höndunum aftur fyrir bak og lét sem hún heyrði ekki í Jóni. — Hvað ertu að stríða barninu, sagði ókunnug stúlkurödd. Hanna sneri sér við. í dyrunum stóð ung og falleg stúlka með glóbjart, liðað hár, eins og prinsessurnar í ævintýrunum. Hún kom nú út á hlaðið til þeirra og rétti Hönnu höndina: — Sæl og blessuð, en hve það er gaman fyrir Sonju, að þú skulir eiga heima svona nálægt, ég vildi bara, að þú ættir stóra systur, sem gæti orðið vinkona mín. Hún brosti og strauk gegnum úfið hárið á Hönnu, sem roðnaði af gleði yfir hve vingjarnleg stúlkan var. — Nei, og átt þú þennan hund, en hve hann er stór og fallegur, sagði Ninna með aðdáun. Neró dillaði skottinu í ákafa. — Heilsaðu! sagði Hanna og benti á Ninnu. Neró reis upp á afturlappirnar og rétti Ninnu hægri framfótinn, svo bofsaði hann ósköp kurteislega þrisvar í röð. Ninna faðmaði Neró að sér, þvílíkan hund hafði hún aldrei séð, jafnvel Jón gat ekki dulið aðdáun sína, og Sverrir heimtaði að fá að koma á bak á ho, ho hundi. Loks var allt heimilisfólkið komið út á hlað og dáð- ist að Neró. Hanna gaut augunum til bræðranna, sem hún hafði ekki séð áður. Það var satt, Skúli var allra fallegastur. Hún leit á Áka, sem brosti til hennar. Allt í einu varð henni svo hlýtt um hjartaræturnar, hún var viss um að Áki var vinur hennar, og þá gerði ekki nokkurn skap- aðan hlut til, þó þau öll hin stríddu henni. Sonja og Áki, hún leit á Ninnu, jú, hún var svo góðleg, þau þrjú vildi Hanna eiga að vinum. Jón bóndi tók nú að benda sonum sínum tveim, sem ekki höfðu komið þarna áður, á hólmana og eyjamar: — Þið verðið að fara að laga til í varpinu strax í dag, gamli maðurinn sagði, að það mætti ekki dragast úr þessu. — Hvernig á að laga þar til? spurði Skúli. Jón yppti öxlum: — Æ-i, það má skollinn vita, en karlinn tók nú svona til orða. — Hvaða karl? — Hann þarna í Kotinu. Það er verst, að hann vill ekki selja kotið strax, en ég fæ það seinna. — Nei! kallaði Hanna María og horfði leiftrandi augum á Jón. — Þú færð aldrei það, sem afi á, og við eigum eyjar líka, sem þú færð ekki, ég ætla að búa, þegar afi er hættur. —• Sú þykir mér segja fréttir, sagði Jón, en kotræksn- inu verð ég nú búinn að ná, áður en þú verður komin á giftingaraldurinn. — Ég ætla ekki að gifta mig, ég ætla að búa með afa, svaraði Hanna reið. Jón skellihló. — Þá læt ég bara einhvern strákanna minna ná í þig, ég á nóga stráka, sýnist þér það ekki? — Ekki vil ég sjá hana, sagði ÓIi með fyrirlitningu. — Ekki ég eiga hana, sagði Sverrir, hinir hlógu. — Ég skal láta Neró bíta ykkur alla, sagði Hanna með grátstafinn í kverkunum. Heima er bezt 109

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.