Heima er bezt - 01.03.1965, Page 26

Heima er bezt - 01.03.1965, Page 26
sækja slíka staði og láta hugann reika um liðna viðburði sögunnar. — Örnefnin mega ekki gleymast. Landið verður svipminna og málið snauðara, ef örnefnin glat- ast. Þetta þarf æskulýður landsins að skilja og meta og læra örnefnin af eldra fólkinu og geyma þau næstu kynslóð. Ég dvel þá ekki lengur við Helgafell, en held sem leið liggur um í Kársstaðabotn. Á þeirri leið má segja að hver bær, dalur, lækur og skógarás sé sögulega merkur, en það yrði of rúmfrekt í þessum þætti, að minnast allra þeirra merku staða, og munum við því lítt nema staðar fyrr en komið er í Kársstaðabotn, en þar eru margir sögulega merkir staðir, þótt Bólstaður, bær Arnkels goða, sé þeirra merkastur. ------Þegar ég settist að í Stykkishólmi fyrir meira en fjórum áratugum, þekkti ég ekkert nágrennið, hinar sögulegu sveitir norðan fjalls á Snæfellsnesi. — En þetta er þó ekki alveg rétt frá sagt. Ég hafði vitanlega lesið Landnámu, Eyrbyggju, Laxdælu, Víga-Styrssögu og fleiri Islendingasögur, er gerzt höfðu á þessum slóðum, svo að ég vissi heilmikið um héraðið, og hlakkaði mjög til að líta þessa merku staði með eigin augum. Strax fyrsta sumarið, sem ég var í Stykkishólmi, tók ég mér ferð á hendur inn á Skógarströnd. Leiðin þang- að liggur sem kunnugt er um Þórsnesið, og innanverða Helgafellssveit, hjá Saurum, Svelgsá og Hrísum inn í Kársstaðabotn, og áfram kringum Álftafjörð. Aðaler- indið var að sjá og kynnast sögulegri, fagurri byggð og þræða þær leiðir, sem mér voru áður kunnar úr Eyr- byggju. Ferðafélagi minn var vinur minn og skóla- bróðir, Guðmundur Guðjónsson kennari á Saurum. Leið okkar lá meðfram túninu á Svelgsá, en þar bjó þá Guðbrandur hreppstjóri Sigurðsson, sem var fjölfróð- ur og gagnkunnugur héraðinu og sögu þess. Þótt þjóðleiðin lægi þar fyrir ofan túnið, var það fágætt að ferðamenn riðu þar hjá garði. Við félagar fórum þar að dæmi annarra og riðum þar ei hjá garði. Húsbóndinn var heima og tók okkur tveim höndum. Hófust strax umræður um sögur og sögustaði. Ég var nýkominn í héraðið og þyrstur í að fræðast um ör- nefni og sögustaði. Ekki man ég, hve lengi við ræddum saman, en þegar við héldum af stað, tók Guðbrandur hnakk sinn og hest og ákvað að fylgja okkur inn í Álftafjörð. Þetta var síðla í júnímánuði. Veður var fagurt, — logn og heiðríkja. Útsýnin var fögur og heillandi. Mörg voru þau sögulegu örnefni, er á Ieið okkar urðu, en fyrst vil ég nefna hér eitt, sem mesta athygli mína vakti, en það var hið forna bæjarnafn Bólstaður, sem var bær Arnkels goða. í Eyrbyggju er þannig sagt frá landnámi og byggð að Bólstað: „í þann tíma bjó Arnkell, sonur Þórólfs bægifótar, á Bólstað við Vaðilshöfða. Hann var manna mestur og sterkastur, lagamaður mikill og forvitri. Hann var góð- ur drengur og umfram alla menn aðra þar í sveit að vin- sældum og harðfengi. Hann var hofgoði og átti marga þingmenn.“ Úm endalok byggðar að Bólstað farast sögunni þannig orð: „.... en Bólstaður var þá auður, því að Þórólfur tók þegar aftur að ganga, er Arnkell var látinn, og deyddi bæði menn og fé þar á Bólstað, hefur og engi maður traust til borið að byggja þar fyrir þær sakar.“ Mér voru þessi orð Eyrbyggju minnisstæð, og þegar við komum á eyrarnar neðan við Úlfarsfell, varð mér þetta að orði: „Nú veit víst enginn, hvar bærinn Bólstaður stóð, þar sem liðnar eru um níu aldir síðan hann lagðist í eyði.“ Guðbrandur leit til mín brosandi og sagði: „Jú, — það teljunv við okkur vita. Munnmælin hafa geymt söguleg örnefni vel í þessu héraði.“ Síðan vék hann hestinum út af götunni, og við riðum spölkorn niður með ánni. Þar námum við staðar á eyrunum og Guð- brandur benti mér á mosagrónar ójöfnur og mólendi, þar sem hvergi vottaði fyrir grænku, og sagði: „Hér segja menn, að bær Arnkels hafi verið.“ Við áðum þarna ekki lengi, en héldum sem leið lá að Kársstöðum. Á leiðinni þangað benti Guðbrandur mér á ýmis örnefni úr Eyrbyggju, svo sem Glœsikeldu og skriðuna Geirvör, þar sem Freysteinn bófi sá manns- höfuð óhulið, en höfuðið mælti fram stöku þessa: „Roðin es Geirvör gumna blóði; hún mun hylja hausa manna.“ En ég átti erfitt með að sætta mig við bæjarstæðið að Bólstað. — Gátu þetta verið rústimar af bæ Am- kels goða? Voru þetta Ieifarnar af bæ höfðingjans glæsilega, sem oft hafði marga tugi manna í heimili? Gátu þessir gráu móar, á skjóllausri eyrinni, verið rúst- ir af höfðingjasetri frá tíundu aldar lokum? Spurning- arnar komu í huga mér, hver af annarri. Ég treysti ekki að fullu öryggi örnefnanna. Árin liðú. — Ég kom oft í Kársstaðabotn, en hætti að brjóta heilann um bæ Arnkels goða. — Ég fékk þó þær upplýsingar hjá fræðimönnum, að elztu rústir væru aldrei grænar. Oll áburðarefni, sem gera rústir grænar væru löngu horfin úr jarðveginum. — Full tíu ár líða. — Þá er það sumarið 1931, að fornvinur minn og kennari, Matthías Þórðarson þjóðminjavörður, kemur með föru- neyti til Stykkishólms, og erindið var, að grafa í rúst- irnar að Bólstað og fá úr því skorið, hvort þar hefði bær staðið í fornöld. Árangurinn af þessum uppgrefti varð mjög merki- legur og sannaði ótvírætt öryggi örnefnanna, og hvern- ig sögulegar staðreyndir geta geymzt í manna minni um aldaraðir. Þarna var þunnu jarðlagi smátt og smátt 106 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.