Heima er bezt - 01.03.1965, Qupperneq 27

Heima er bezt - 01.03.1965, Qupperneq 27
rutt ofan af greinilegum undirstöðunt eða leifum af bæjarhúsum í fornum stíl. Mátti segja, að hver dagur við uppgröftinn opinberaði ný, söguleg sannindi. Er uppgreftinum var lokið, kom í ljós, að bæirnir höfðu verið tveir, rétt hvor hjá öðrum. Leit svo út sem bæj- arhúsin, sem fyrst voru reist, hefðu reynzt of lítil, og þá verið reistur nýr bær, og hefðu bæirnir staðið sam- tímis. Kemur þetta vel heim við söguna, þar sem völd og áhrif Arnkels aukast með ári hverju í héraðinu.------ Seinni hluta sumarsins stóðu rústirnar opnar öllum til sýnis, er þar komu, en um haustið var moldu ausið yfir og allt þakið með vallgrónum þökum, og þarna geymast þessar merku fornmenjar óhreyfðar um næstu aldir. Áður en rústirnar voru huldar, voru teknar af þeim Ijósmyndir og þær mældar nákvæmlega og teikn- aðar upp. Er skýrsla um uppgröftinn, ljósmyndir og teikningar birtar í Árbók fornleifafélagsins fyrir ár- íð 1932, og enn fremur er mynd af skálagólfinu á Ból- stað í útgáfu Fornritafélagsins af Eyrbyggju. Allir mun- ir er fundust í rústunum fóru í Forngripasafnið í Reykjavík. Mér er það ljóslifandi í minni, er ég kom að Ból- stað, þegar uppgrefti var lokið, sumarið 1931. Mér fannst sem ég væri skyndilega kominn röskar níu ald- ir aftur í tímann. Eg sá rísa þarna á grunninum reisu- legan bæ í fornum stíl. Tígulegir menn og fagrar kon- ur fylla húsin, og ég sé höfðingjann glæsilega sitja í há- sæti. Langeldar eru kyntir og líkt er sem mér berist að eyrum kliðurinn af samtali gesta og heimamanna. Mér verður reikað um rústirnar. Þarna eru aðal dyrnar. Gangurinn inn í skálann er lagður hellurn. Þær eru óhaggaðar og fara vel. Á miðju salargólfi hafa verið langeldarnir. Hellur eru reistar upp á rönd utan með eldunum. Sumar eru fallnar, en flestar standa óhaggað- ar. Ég geng inn að eldstæðinu. Með svipuskaftinu get ég rótað í níu alda gamalli öskunni. Askan er tvílit, ljósleit viðaraska og dökk aska, ef til vill af sauðataði. Áskan hefur engum breytingum tekið. Hún gæti alveg eins verið nokkurra vikna gömul. Hér hefur engu ver- ið haggað. Bæjarhúsin hafa fúnað niður í friði. Veggir hafa verið gerðir að mestu úr hnaus og streng. Aðeins hafa verið hellusteinar á hliðarveggjum undir röftum og líka undir máttarstoðum í gólfi. Hver glöggskyggn húsameistari gæti gert bæinn upp að nýju, svo að litlu eða engu skeikaði frá því, sem áður var. Sagan um upphaf byggðar á Bólstað, og hvernig byggðin Ieið undir lok, er mjög merkileg, og ekki sízt það, hvernig örnefnið geymist í minni manna um rnargra alda skeið, svo tryggilega, að samtíma menn okkar geta bent á mosagróna móana og sagt: „Þarna stóð bærinn“ Sýnir þetta að örnefni og saga á sér djúpar, sameiginlegar rætur, sem nútíminn metur, ef til vill ekki sem vert er. Vissulega saknar margur nútíma maðurinn þess á fullorðinsárunum, hve lítinn tíma hann gaf sér til þess, á æskuárum sínum, að sitja við föður og móður kné og nema af vörum þeirra sannar frásagnir úr lífi þeirra, og frásagnir af sögulegum atburðum, er þau mundu eða höfðu heyrt sagt frá. Hafa þannig glatazt mörg verð- mæti fyrir fávizku æskumannsins, sem sleppti tækifær- inu. — Á elleftu, tólftu og þrettándu öld, hefur þessu verið Tðruvísi farið. Þá var það æskumönnum ánægja og íþrótt, að hlusta á sagðar sögur af frægum forfeðrum sínum, læra þær og segja þær aftur. Gáfur og næmi ungmenna hefur ekki verið lakara þá en nú, og minnið ekki ofhlaðið af fánýti og truflað af tauga-æsandi hraða, eins og nú á dögum. SÖgurnar gátu því geymzt óbrjál- aðar, þótt aldir liðu frá því að atburðirnir gerðust, þar til sagan var skráð, enda geta þrír til fjórir ættliðir flutt sanna erfisögn um tveggja alda bil. Framhald í næsta blaði. * \ v/ I ' /ÆrFk r-m ■ I v ABfcr QÆGUKl AGAjíd&UfUMt Frú Þórðveig Jósefsdóttir Hvammstanga skrifar þætt- inum og biður um að birt sé ljóðið: Söngtcr sáðmanns- ins. Þetta ljúfa Ijóð er ort af Bjarna heitnum Ásgeirs- syni bónda að Reykjum í Mosfellssveit, sem var for- maður Búnaðarfélags íslands og um tíma landbúnaðar- ráðherra. Kvæðið er dýrðaróður til gróðurmoldarinnar og hyllingarljóð sáðmannsins. Friðrik heitinn Bjarnason gerði lag við ljóðið, og er ljóð og lag prentað í búnað- arblaðinu Frey í júlí 1947. Ég birti Ijóðið hér með leyfi aðstandenda Bjarna sáluga Ásgeirssonar. SÖNGUR SÁÐMANNSINS Ef ég mætti yrkja, yrkja vildi ég jörð. Sveit er sáðmanns kirkja sáning bænargjörð. Vorsins söngva-seiður sálmalögin hans. Blómgar akurbreiður blessun skaparans. Musterisins múra marka reginfjöll. Glitveg gróður-skúra geislar skreyta höll. Gólf hins græna vaílar grænu flosi prýtt. Hvelfing glæstrar hallar heiðið blátt og vítt. Heima er bezt 107

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.