Heima er bezt - 01.05.1965, Qupperneq 9

Heima er bezt - 01.05.1965, Qupperneq 9
Klambrasel. að hagalömbin í Klambrarseli nálguðust dilka sumra bænda. Hins vegar juku fráfærurnar erfiðisþungann. Ærgæzlan lá á bóndanum og elztu börnunum, mjaltir á ám og „að gera mat úr mjólk“ varð erfiðisauki hús- freyjunni. Snemma þarf að taka daginn, smala ám og mjalta þær. Bóndinn og elztu börnin leggja á hesta, taka með sér morgunmat, nesti, sem húsfreyjan tilreiðir. Síðan er riðið niður um heiði, vestur í Engey, tekið til við heyskapinn, ennþá með gömlum tækjum, orfum og hrífum. Húsfreyjan gerir sauðamjólkinni til góða, mat- reiðir miðdegisverð. Elztu börnin, sem heima eru, sækja hest og leggja á hann. Húsfreyjan býr miðdegisverðinn í böggla, ríður síðan niður um heiði, tekur hrífu sína að máltíð lokinni og vinnur til kvölds. Heimabörnin hafa rekið ærnar í kvíar, — stöðugt er þó ungt barn í bænum, sem annast þarf. Nú bíða mjaltir á ám og kúm. Allir eru á íslenzkum skóm, sem oft þarf að bæta, allir verjulausir gegn regni og oftast votir í fætur. Þjónust- an er mikil á öllum hópnum, gera þarf við skó og sokka, þvo og þurrka. Þetta verður næturverk, svefntíminn sjaldnast langur. — Á vetrum varð að spinna, prjóna, vefa og sauma. Ekki var efnahagur til fatakaupa. En allt blessaðist þetta. Börnin þroskuðust prýðilega. Þau eru öll fríð sýnum, hraust og þrekmikil. Heimafengna fæðan var holl, margbreytt og næringarrík. Nokkur silungur fékkst heima. Fast garðstæði var tekið á leigu við hverina. Þar brugðust ekki jarðeplin. Fjallagrös voru sótt á heiðina. Heimaunnin föt skýldu vel. Vinnan úti ailan ársins hring og hlaup í fjallaloftinu stæltu vöðv- ana. Þetta voru erfiðir dagar, en þó var sótt fram. Börnin fóru strax til náins utan heimilis, dæturnar á héraðs- skóla og húsmæðraskóla, en drengirnir á búnaðarskóla og til smíðanáms. — Framkvæmdir lágu eigi niðri heima. Túnið var stækkað, hægfara að vísu, með hestaverk- færum og völlurinn girtur. Stærsta framtak þessara ára var rafstöðin, sem byggð var 1930. — Bjarni frá Hólmi lagði þar á ráðin og út- vegaði efni. Þorgeir Jakobsson frá Haga stjórnaði verki. Ristir voru saman lækir uppi í fjalli, teknir í pípu niður brekkuna. Pípurnar voru 300 metra langar, fallið 84 metrar, aflið 6,5 kw. Rafstöðin var byggð í kjallaran- um undir húsinu og nægði til ljósa, hita og suðu lengi vel, og er hún enn í fullu gildi, þótt Laxárrafmagn sé fengið til viðbótar. Þetta gerbreytti heimilinu og að- stöðunni allri. Segja má, að þáttaskil verði í búskaparsögunni um 1938. Þá rofaði til í viðskiptamálunum. Elzti sonur í Klambrarseli var þá 18 ára, og hin elztu börnin voru orðin þá mikið vinnandi. Yngsta barnið fæddist þetta ár. Hér skulu talin börnin öll: 1. Jóhannes, fæddur 7. des. 1920, búfræðingur frá Hólum, kvæntur Sigríði Jónsdóttur frá Sauðárkróki. Þau búa í gamla húsinu í Klambrarseli. Þau eiga fjögur börn á lífi. Heima er bezt 169

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.