Heima er bezt - 01.05.1965, Qupperneq 12
S. B. OLSON:
LANDNAMSÞÆTTIR
FRIÐRIK A. FRIÐRIKSSON ÞÝDDI
(Framhald)
Það var einn rosabólginn frostmorgun í marz, að ég
var að arka niður Aðalstræti með þungar körfur í báð-
um höndum. Þegar ég kom á gatnamót Aðalstrætis og
Portage, sá ég hvar dökkleitur hlutur lá á sporvagns-
teini, líkt og hann hefði verið lagður þar til hæfis til
að merjast sundur af hjólum vagnsins, sem nú kom á
hraðri ferð. An þess að gefa hættunni gaum, hljóp ég
til og þreif upp gripinn og forðaði mér svo frá vagn-
inum. Það tókst með þeim naumindum, að fyrst á eft-
ir titraði ég eins og lauf. En mikil var undrun mín, er
ég opnaði leðurmöppuna og sá þar, auk ávísana og
bréfa, stóra peningaupphæð í ýmsum gerðum af banka-
seðlum. Mér ógnaði að hafa þessa peningahrúgu undir
höndum, og var það mín fyrsta hugsun, að koma henni
á öruggan stað. Tróð ég veskinu snarlega í frakka-
brjóstvasann, lauk við að bera út vörurnar og skundaði
svo sem hraðast heim í búðina, til að segja húsbónda
mínum frá þessu og selja honum veskið í hendur. M. E.
varð orðlaus og kallaði bróður sinn, J. K., til ráða.
Alyktuðu þeir að lokum, að sendimaður eins bankans,
sem þeir tiltóku, hefði verið í innköllunarleiðangri og
týnt veskinu. Við gátum allir hugsað okkur sálarangist
þessa aumingja sendimanns, hver sem hann væri, og lét
J. K. það ekki dragast, að hringja til bankans. Eftir
stutt símasamtal sneri J. K. sér að mér og segir, að hann
hafi getið sér hins rétta til, og að sendimaðurinn sé
himinglaður, enda þungum steini af honum létt, og
beiðist þess, að ég hitti hann í fordyri bankans og af-
hendi honum seðlaveskið.
Húsbóndi minn fullvissaði mig um, að ég mundi fá
rífleg fundarlaun, því að ef peningarnir hefðu tapazt,
hefði bankaþjónninn komizt í alvarleg vandræði og —
sennilega misst stöðuna. Þegar ég kom í bankann, varð
fyrir mér ungfullorðinn maður, rétt innan við útidyrn-
ar. Hann var hrjáður ásýndum af ugg og ótta, en hým-
aði við, er hann sá peningaböggulinn. Hann var ekki
lengi að ganga úr skugga um, að peningamir voru
ósnertir, og víkur sér þá að mér og hrósar mér með
eldlegri mælsku fyrir ráðvendni mína, vitsmuni, skil-
semi og alhliða sálargöfgi. Þakkaði hann mér svo með
ótal fögrum orðum og sagði að ég verðskuldaði vera-
lega góð fundarlaun, en því miður væri hann peninga-
laus í bili, — fékk mér svo 25 sent, sagði mér að koma
daginn eftir og þá mundi hann láta mig fá meira.
Engin orð fá lýst vonbrigðum mínum og gremju, og
húsbændur mínir urðu mjög hneykslaðir, er ég sagði
þeim frá þessu móti. Seinna var mér sagt, að ef ég hefði
beðið þangað til að auglýst hefði verið eftir seðlavesk-
inu, hefði ég áreiðanlega hlotið myndarleg fundarlaun.
Daginn eftir fór ég aftur niður í bankann, og banka-
þjónninn endurtók fögur orð sín, hrós og viðurkenn-
ing fyrir ráðvendni mína, en hann bauð engin frekari
fundarlaun. Eg var niðurdreginn og sármeiddur, þegar
ég ranglaði til baka upp í búðina. Einhver fundarlaun,
þótt lítil hefðu verið, hefðu verið mér svo dýrmæt á
þeim örðuga tíma. Og skoðun mín á manneðlinu tók
dýfu — langar leiðir niður.
Skömmu eftir þetta fór ég frá Wright-bræðranum
og fór að vinna í „Skóbúð Dodds“ að vestanverðu við
Aðalstræti, nálægt Portage-götu. Þetta var betri vinna,
— alls engin erfiðisvinna, mest snúningar, sópun og til-
tekt í búðinni. En kaupið var hið sama, 3 dollarar á
viku. Hr. Dodd var maður, sem ánægjulegt var að
vinna hjá, jafnlyndur og kyrrlátur í dagfari.
Landbúnaðarvinna.
Um miðjan ágúst skrifar pabbi mér og segir, að ég
geti fengið atvinnu, ef ég vilji, úti á Vatnsströnd (Lake-
side) við heyskap og komuppskera. Kaupið sé 20 doll-
arar á mánuði, auk fæðis. Við tilhugsunina um svo
ótrúlega auðsöfnun hikaði ég ekki við að taka þessu,
þótt vel vissi ég, að ærin stritvinna væri. Ég var kom-
inn á 17. ár, sterkur vel og heilsugóður, og taldi mig
hafa nægilegt þrek til áreynslunnar, sem slík vinna út-
heimti.
Þegar heim kom, sá ég að þar var talsverð breyting
á orðin. Reist hafði verið allstórt bjálkahús með efri-
hæð og aðbyggðu eldhúsi. Framhlið hússins vissi í aust-
ur og milli þess og gamla kofans var 6 feta breitt sund,
og vora kofadymar og eldhúsdymar hvor gegnt ann-
arri. Eftir fárra daga dvöl heima hélt ég á minn nýja
vinnustað, um 3 mílur heiman frá okkur.
172 Heima er bezt