Heima er bezt - 01.05.1965, Side 17

Heima er bezt - 01.05.1965, Side 17
hæðir, efri hæð portbyggð, — með kjallara, sem að mestu leyti var í jörð. Var hann hafður til geymslu. Mun húsið hafa verið 12—15 álnir að lengd og 5—6 áln- ir á breidd. Þótti það fyrirmyndar hús á þeim tíma, enda ekkert hús í sveitinni þá jafn reisulegt og vandað. Gripahús voru nægileg til að byrja með búskapinn, að vísu torfkofar, en þeir voru þá algengir og varla aðrir til. Svo var fjósbaðstofa með torfþaki sæmilega stæði- leg, þó nokkuð gömul væri. — Þessi gömlu hús týndu brátt tölunni, en í stað þeirra komu ný hús, stærri og rúmbetri með timbur- og járnþökum, en þakjárn kom ekki til Hornafjarðar, neitt að ráði, fyrr en um og eftir aldamót og þá átti Þorgrímur læknir drjúgan þátt í að útvega það, eins og margt annað, sem til framfara og hagsbóta horfði. Það kom brátt í ljós, að Þorgrímur hafði mikinn áhuga á búskap og það sem meira var, hann var fram- úrskarandi búmaður, athugull og hagsýnn, þó hann hefði ekkert verið við sveitabúskap fyrr en hann kom að Borgum, enda blómgaðist bú hans vel, þó sjálfur gæti hann lítið að því unnið vegna læknisstarfsins, sem hann Iét ætíð sitja í fyrirrúmi fyrir öðru, enda stund- aði hann það með frábærri alúð og samvizkusemi. Hann var alltaf tilbúinn hvort sem var á degi eða nóttu, þeg- ar menn komu að sækja hann og það var víst óhætt að segja, að það veður væri ófært, sem aftraði honum frá að vitja sjúklinga. Þá voru allar ár í sýslunni óbrúaðar, flestar jökulár, oft vatnsmiklar, straumharðar og illar yfirferðar, svo sem Jökulsá í Lóni, Hornafjarðarfljót, Hólmsá á Mýrum, Heinabergsvötn og Kolgríma, svo þau vatnsmestu og erfiðustu séu nefnd, auk vatnanna á Breiðamerkursandi, sem fara þurfti yfir til að komast í Öræfin, en þau tilheyrðu læknishéraðinu og þangað þurfti Þorgrímur alloft að fara. Bót var það þó í máli, að hér í sýslunni var fjöldi góðra vatnamanna, sem fengið höfðu æfingu við að „velja“ vötnin, þekkja eftir straumfallinu, hvort fært var eða ekki, að ko'mast yfir þau og hvernig þræða skyldi brotin. Það mátti segja, að fólkið væri alið upp við að svalka í þeim. Var því eðlilegt að menn lærðu að þekkja hvemig við þau skyldi skipta, því það verður hverjum að list sem hann leikur. En þó að vatnamennirnir skaftfellsku eigi góðan vitnisburð skilið, þá má ekki gleyma hestunum. Þeir áttu sinn hluta, og hann drjúgan, af því að komizt varð yfir vötnin og þeim var það stundum beinlínis að þakka, að menn komust lífs af úr þeim. Það var líka venjan, þegar vitja þurfti læknis og fara yfir vötnin, að fá til þess tvo góða vatnamenn og úrvals vatnahesta, en þeir voru margir til og sjálfsagt þótti að hafa góðan hest handa lækninum og jafnvel 2, ef flýta þurfti ferð, enda var það mikið öryggi fyrir hann. Það kom fljótt í Ijós, að Þorgrímur var því starfi vaxinn, að takast á hendur að þjóna þessu erfiða og víð- lenda læknishéraði, sem Austur-Skaftafellssýsla var þá, því ekki er sambærilegt að ferðast um hana nú og áður. Nú er kominn akfær vegur eftir henni endilangri og allar ár brúaðar, nema Steinavötn, sem brúuð verða bráðlega og Jökulsá á Breiðumerkursandi, en ferja er komin á hana og sennilega verður hún brúuð áður en mörg ár líða. Nú er hægt að fara á bíl frá Lónsheiði að Skeiðarár- sandi á hálfum degi, en það voru stífar 2 dagleiðir áður, jafnvel þó á góðum hestum væri og greitt farið. En þó við dáum dugnað og hagsýni húsbóndans í Borgum, Þorgríms Þórðarsonar, má einnig og ekki síð- ur, minnast húsfreyjunnar Jóhönnu Lúðvígsdóttur konu hans. Hún var kaupstaðarbarn, eins og maður hennar, fædd og upp alin í Reykjavík, en hún var fljót að semja sig að siðum sveitafólksins og reyndist af- bragðs húsmóðir, stjórnsöm, góðlynd og glaðvær og vildi jafnan hvers manns vandræði leysa. Hún var manni sínum samhent að „gera garðinn frægan“ og stjórnaði öllu innanhúss með mestu sæmd og prýði. Þau höfðu alltaf margt vinnufólk og ekki liðu mörg ár frá því þau byrjuðu búskapinn, þangað til heimilið var orðið með þeim stærstu í sveitinni. Ég, sem þessar línur rita, var oft í Borgum hjá þeim Þorgrími og Jóhönnu, stundum 2—3 mánuði samfleytt, svo ég sá með eigin augum hvernig heimilisbragurinn var þar. Vinnufólkið virtist unna þeim hugástum og vildi leysa öll verk af hendi eftir beztu getu, án þess að hugsa fyrst og fremst um það, hvað það fengi í kaup, en ekki varð ég var við, eða vissi til, að það yrði ágreiningsefni. Þau hjón voru yfirleitt heppin með vinnufólk og var það flest vistfast hjá þeim. Þorgrím- ur þurfti að hafa góða verkstjóra til þess að sjá um allt, sem búinu tilheyrði úti við og hann var svo hepp- inn að hafa jafnan úrvalsmönnum á að skipa. Má þar nefna mág hans Vilhelm Knudsen, Jón Jónsson frá Þinganesi, Björn Gíslason, síðar bónda á Austurhól og Meðalfelli, Sverri Halldórsson og síðast en ekki sízt Eyjólf Bjarnason, sem flutti að Borgum um aldamótin og tók þá við verkstjóm þar. Árið 1904 var Keflavíkur-Iæknishérað auglýst laust til umsóknar. Þá hafði Þorgrímur gegnt Hornafjarðar- héraði í nær 19 ár og fann að hann var farinn að þreyt- ast á hinum löngu og erfiðu ferðalögum, sem það krafði, en það var honum sízt að skapi, að halda embætt- inu lengur, en hann fann sig vel færan til að gegna því. Hann afréð því að sækja um Keflavíkurhérað, með því að það krafði ekki löng og erfið ferðalög. Var honum veitt það sama ár, en hann gegndi Hornafjarðarhéraði til aprílloka 1905 og flutti þá til Keflavíkur. Það má nærri geta, að ekld var sársaukalaust fyrir læknishjónin í Borgum og fólk þeirra, að taka sig upp frá fjölda vina og góðkunningja, skilja við bújörð, sem þau voru búin að kaupa og bæta, svo að hún var vel byggileg, á mælikvarða þeirra tíma — og flytja á annað landshorn, þar sem allt þurfti að byggja upp frá rótum í annað sinn. Sama má segja um fólkið í Austur-Skaftafellssýslu. Heima er bezt 177

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.