Heima er bezt - 01.05.1965, Side 21

Heima er bezt - 01.05.1965, Side 21
Kristján, einstakur heiðursmaður, hægur og orðfár og afburða fjármaður. Um ætt hans skal þess aðeins getið, að hann og listmálarinn mikli, Ásgrímur Jónsson, voru systkinasynir. En ekkert vissi Kristján um þann skyld- leika. Nú er skemmst af því að segja, að sveitungar mínir tóku sig saman um það, að senda tafarlaust mann til Kristjáns og biðja hann að koma með tíkina sína, til að leita að fénu, sem var í fönninni. (Þá var enginn sími kominn í þessar sveitir.) Mér var falið að fara ferð þessa, sem mundi taka tvo daga, því að hvor leið- in var hæfileg dagleið fyrir gangandi mann. — Kristján tók vel erindi mínu. Sagði að það hefði farið mun færra fé í fönn í hans sveit, og að hann væri búinn að finna það flest með aðstoð tíkarinnar. Hann sagðist því skyldi koma eftir einn eða tvo daga, og það efndi hann dyggi- lega. — Það þarf svo ekki að orðlengja það, að Kristján kom, og var honum fylgt bæ frá bæ um endilanga sveit- ina, og fann tíkin hans fjölda fjár í fönninni, flest lif- andi. Venjulega var í fylgd með honum flokkur manna. Og þegar tíkin hafði vísað á kindur í fönninni, tóku sumir til að grafa í fönnina, en aðrir fylgdu Kristjáni á aðrar fannir, sem enn voru ókannaðar. Þannig gekk þetta dag eftir dag, þar til búið var að kanna allar þær fannir, sem mönnum gat til hugar komið, að fé væri að finna. Sumir höfðu þá heimt allt er þá vantaði, en aðra vantaði aðeins fáeinar kindur. En á einu heimili fannst þó ekkert. Ærnar tólf, sem vantaði á mínu heimili fund- , ust aldrei. Þótti það næsta furðulegt, þar sem að hver einasta fönn í landareigninni var könnuð, og leitað var hvarvetna, þar sem nokkur von var að leynzt gæti svona stór hópur. Rétt er að geta þess hvernig tíkin hagaði sér, þegar verið var að leita með henni. Það var segin saga, að kæmi hún á fönn, þar sem lifandi fé var undir, þá krafs- aði hún niður í fönnina með miklum ákafa og gleði- látum. En væri hinsvegar einungis dauðar kindur undir fönninni, þá gekk hún í hring umhverfis staðinn og þef- aði aðeins ofan í fönnina, en krafsaði ekkert. Einu sinni lék hún dálítið á okkur, og höfðum við raunar gaman af því, því að hér sýndi hún slíka fádæma þefvísi, að það var hverjum manni gjörsamlega óskiljanlegt. Sagan um það er þannig: Við vorum nokkrir saman með Kristjáni og gengum fönn af fönn og veittum tíkinni nákvæma athygli. Skyndilega stanzar tíkin, þefar ofan í fönnina, gengur lítinn hring og setur upp ólundar- svip. „Hér er dauð kind í fönninni,“ sögðum við hver við annan, og vorum alveg vissir í þessu samkvæmt reynslunni. Síðan tóku menn til að grafa, en aðrir héldu áfram með Kristjáni. Fönnin reyndist meira en mann- hæðar djúp, og var ekki slegið slöku við gröftinn fyrri en komið var til botns. En þarna fannst þá engin kind, heldur einungis ein lóa, sem hafði orðið eftir, og sálast þarna þegar félagar hennar flugu til suðlægra landa um haustið. Við tókum lóuna og þefuðum af henni vand- lega, en fundum ekki minnsta þef af henni. Hún hafði auðsjáanlega verið orðin hörð og skorpin, þegar byl- Kristján Magnússon. inn gerði. En hvernig gat þá tíkin fundið þefinn af henni gegnum þriggja álna skafl? Það var leyndarmálið. Þegar Kristján hafði lokið göngu sinni, og leitað hafði verið hvarvetna, þar sem nokkur von var til þess, að kindur væri að finna í fönninni, þá hélt hann heimleið- is og fylgdi honum mikið þakklæti og velvildarhugur allra, En þá var líka litla tíkin hans orðin þreytt og niðurdregin, enda var búin vel að gjöra. Verst þótti húsfreyjunum á bæjunum, hvað litla tíkin var alltaf lystarlaus, en við því var ekkert að gjöra. Það var reynt allt sem í mannlegu valdi stóð til að auka lystina, en það bar lítinn árangur. Veturinn 1912—1913 mátti heita léttur eftir þetta. Nokkru fyrir sumarmál gerði öndvegistíð og tók þá snjó að leysa. Jafnvel stórfennið lét ásjá, og fannirnar minnkuðu með hverjum deginum sem leið. Nokkru fyrir sumarmálin týndust 3 ær frá mínu heimili. Ég átti eina þeirra. Það var golsótt ær, sem ég hafði miklar mætur á. Ég leitaði ánna dag eftir dag, en fann þær ekki. Aldrei upplýstist hvað af þeim hafði orðið, því að það fannst aldrei hold né hár af þeim. í einni þessari leitarferð minni, rakst ég á staðinn, þar sem æmar tólf höfðu farizt í nóvemberbyrjun. Sumar höfðu kafnað strax, en flestar soltið í hel. Þarna upp- lýstist hversvegna tíkin hans Kristjáns fann aldrei hóp- inn. Við höfðum gengið eftir gríðarstórri fönn, örstutt norðan við staðinn, þar sem ærnar voru, en aldrei kom- Framhald á bls. 188. Heima er bezt 181

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.