Heima er bezt - 01.06.1965, Blaðsíða 29

Heima er bezt - 01.06.1965, Blaðsíða 29
þessara brennumála. Líklega hafa flestir þeir, er þarna voru brenndir, verið alsaklausir. Beztu mönnum þjóðarinnar á þessum tímum, svo sem Brynjólfi biskupi og fleirum, var þetta líka ljóst, en grimmdin, fávizkan og hjátrúar-æsingin, var svo mikil hjá þjóðinni, að þeir fengu varla rönd við reist. Rétt austan við Brennugjá eru tvær djúpar gjár, sem heita Nikulásargjá og Flosagjá. í þeim er helkalt upp- sprettuvatn. Á milli gjánna er grasigróin hraunrimi, og var einu sinni álitið að þarna hefði Lögberg verið. Talið er nú, að þetta sé fjarstæða og öll söguleg rök hnigi að því, að Lögberg hafi ætíð verið á eystri barmi Almanna- gjár, eins og fyrr segir. Aðalbyggingar á Þingvöllum eru: Hótel Valhöll, gamla konungshúsið, kirkjan og Þingvallabærinn. Bær- inn er steinbygging í burstastíl. Á bak við kirkjuna er upphlaðinn grafreitur, þar eru jarðsett tvö af höfuð- skáldum íslendinga; Einar Benediktsson og Jónas Hall- grímsson. Jónas var áður jarðsettur í Assistentskirkju- garði í Kaupmannahöfn, en samkvæmt ákvörðun ríkis- stjórnar íslands voru jarðneskar leifar hans grafnar þar upp og fluttar til íslands og jarðsettar í þessum Þing- valla-grafreit. Aðrir íslendingar en þessi tvö skáld, hafa ekki enn verið jarðsett þar. I sambandi við heimflutning jarðneskra leifa Jónasar Hallgrímssonar gerðust ýmis atvik, sem hér verða ekki rakin. Allir dást að fegurð Þingvalla, en mikið veltur á því, að þeir, sem í fyrsta skipti koma þangað, séu veður- heppnir. Enginn gleymir fegurð Þingvalla, sem þar var þátttakandi í Alþingishátíðinni 1930. Ég var svo heppinn að eiga þess kost að fara ríðandi á Þingvöll á Alþingis- hátíðina. Við komum af Snæfellsnesi og fórum hina fornu leið þingmanna sögualdarinnar á þjóðveldistím- anum, er Alþingi var bæði löggjafar- og dóma-samkoma og þjóðleg stórhátíð ársins. Við fórum um iVIýrar, Borg- arfjörð og Borgarfjarðardali. Leið okkar lá um endi- Þingvallabœr. Lögberg. langan Lundarreykjadal um Uxahryggi og á Kaldadals- leið nálægt Biskupsbrekku. í þeirri brekku tjaldaði Jón biskup Vídalín, er hann kenndi sjúkleika á leið sinni vestur á Snæfellsnes. Hann var að fara að jarðarför mágs síns, séra Þórðar á Staðastað, en hann var bróðir Sigríðar biskupsfrúar. Sagt er að Jón biskup hafi oft áður dást að þessum stað, og sagt að hvergi þætti sér fegurra um- hverfi. Biskup andaðist þarna í tjaldinu. Þetta skeði árið 1720. Leiðin yfir Uxahryggi var frekar seinfarin 1930, þótt nú sé kominn þar góður bílvegur. Þessi forna Þingvallaleið er skemmtileg leið, og ferðin sjálf var ógleymanleg í glöðum vinahópi. Tvennt er mér þó minnisstæðast úr þessari ferð, og það er útsýnin niður Lundarreykjadalinn úr heiðarbrekkunum hjá Gil- streymi og útsýnin yfir Þingvelli, er komið var niður hjá Bolabás. Við höfðum haft náttstað á Oddsstöðum, ágætu heimili neðarlega í dalnum, og lagt upp tíman- lega. Strax urðum við þess vör, að stórir hópar fólks úr Borgarfirði og víðsvegar að, voru á þessari sömu leið. Við vorum með þeim fyrstu inn dalinn. Þegar við vor- um á leið upp brekkurnar í efstu daldrögum, varð okk- ur litið aftur niður dalinn. Mátti þá heita að sjá niður allan dalinn, svo langt sem augað eygði, væri óslitin fylking hátíðargesta. Þótt fylkingin væri næstum óslitin, þá mátti þó greinilega sjá þess merki, að þessi fylking reiðmanna var þó mynduð af smá hópum 10—20 einstaklingum, sem héldu hópinn. Mér fannst þessi sjón svo töfrandi, að ennþá þarf ég ekki annað en loka augunum örskamma stund þá birtist þessi mynd skýr í huga mér. Svona hafa flokkarnir haldið upp dalinn á söguöldinni, en sá var þó Heima er bezt 225

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.