Heima er bezt - 01.06.1965, Blaðsíða 35

Heima er bezt - 01.06.1965, Blaðsíða 35
— Þér væri nær, telpa mín, að hugsa dálítið meira, þú ættir að fara að venja þig af sífelldum klögunum, þú ert ekki lengur litla barnið sem allt er látið eftir, þú verður að fara að verða stór stúlka, annars vill enginn vera með þér, Sonja mín. Viltu ekki sættast við Hönnu? — Jú, ef hún vill tala við mig, en nú kemur hún aldrei heim, og ef hún sér mig fer hún alltaf eitthvað burtu með Neró og Hörpu. Hún er oft með þau úti á sjó að fiska, bætti hún við með öfundarkeim í rómnum. — Komdu, við skulum tala við hana, sagði Aki. Sonja rölti rétt á hæla honum ofan túnið, niðurlút og á báðum áttum hvort hún ætti að fara með honum. Afi var niður við skúrinn að dytta að netum sínum. — Veiztu hvar Hanna er? spurði Áki. — Þarna einhvers staðar, sagði afi og benti út með sjónum. — Hlauptu heim og náðu í sundbolinn þinn og sund- skýluna mína, sagði Áki við Sonju. — En láttu mömmu ekki vita um það! kallaði hann á eftir henni. Sonja gerði eins og hann sagði. Hún þorði ekki ann- að en troða sundfötunum inn undir peysuna sína, svo mamma hennar sæi þau ekki, ef hún mætti henni. En þetta gekk allt vel, hún komst óséð út aftur og hljóp í spretti niður túnið, en þá var kallað á eftir henni að koma strax og passa Sverri. Það var Ninna sem kall- aði. — Komdu bara með strákinn, sagði Áki við Sonju, sem hafði numið staðar, og vissi nú ekki hvort heldur hún ætti að halda áfram eða snúa við og sækja bróður sinn. Hanna var að busla í flæðarmálinu, þegar systkinin komu gangandi. —Halló, Hanna María, er sjórinn ekki kaldur? kall- aði Áki. Hanna muldraði eitthvað sem átti víst að vera: — ekki svo mjög kaldur eða eitthvað í þá áttina. Neró þaut til Áka og heilsaði honum með ánægju- legu bofsi. Áki laut niður til að klappa honum, en Neró fannst hann þurfa að hrista sig ofurlítið fyrst, og Áki fékk því slæma dembu af sjó yfir sig. Sonja hljóðaði þegar sjór ýrðist á hana, en Sverrir hló og baðaði út höndunum. — Farðu í sundbolinn og komdu í sjóinn, sagði Áki við systur sína. — Mamma verður reið, vældi Sonja. — Og ég verð enn reiðari en hún, ef þú hlýðir mér ekki, sagði Áki. Svo hljóp hann með Sverri bak við steininn stóra í fjörunni og afklæddi þá báða. Sjálfur fór hann í sundskýlu, en Sverrir var naldnn eins og Adam gamli forðum. — Nú komum við, passaðu þig, kallaði Áki og tók í hönd Sverris, svo hlupu þeir og litlu fæturnir hans Sverr- is gátu tifað beint út í sjóinn með hljóðum og buslu- gangi og burt til Hönnu þar sem hún sat og horfði út til hafs. Neró kom líka þjótandi, og Sverrir fékk að fara á hestbak, og þá vildi hann láta hestinn synda út í eyjar til púdda-púdd. Hann barði fótastokkinn í ákafa og togaði í lubbann á Neró, sem mest langaði til að hrista sig ofurlítið, svo strákkjáninn dytti af baki. Hann stillti sig samt um það, en lagðist í þess stað niður, svo vatn- aði yfir hrygginn á honum. Sverrir æpti af kátínu, en Sonja stóð snöktandi í fjörunni og þorði ekki út til þeirra. — Komdu! kallaði Áki, en þegar augljóst var að Sonja myndi ekki bleyta sig af sjálfsdáðum, hljóp hann í Iand, þreif hana í fang sér og hljóp út í með hana æpandi og skrækjandi, unz honum þótti þau komin nægilega djúpt, þá lét hann sig detta, svo bæði fóru í kaf. Sonja var fljót að krafla sig á fætur, og náði vatnið henni þá meir en í mitti. Fyrst byrjaði hún að háskæla, en áttaði sig brátt og hætti því og fór að hlægja. Þetta var þá ekki alvég eins voðalegt og henni hafði fundizt það í fyrstu, það var verzt að bleyta sig. Hanna sat með hendurnar fyrir andlitinu og var að springa af hlátri, en Sverrir ólmaðist við Neró í heitum sandinum. — Nú fáum við okkur sólbað og syndum svo pínulít- ið á eftir, sagði Áki og óð til lands og lagðist rétt hjá Hönnu, sem ekki gat lengur verið reið á svipinn. Sonja fór að tína skeljar í sandinum, þama var nóg af gimburskeljum, mjallahvítum og fallegum, auk alls- konar annarra skelja, hörpudiska, olnbogaskelja og lit- fögrum steinum. Hún hljóðaði upp yfir sig í hvert sinn sem hún fann sérstaklega fallega skel eða stein, og hljóp til Áka að lofa honum að sjá. Á Hönnu Maríu þorði hún enn ekki að yrða. — Hvenær eigum við að byrja á kofasmíðinni í Lyng- ey? spurði Áki Hönnu sem sat og lét heitan sandinn renna úr lófum sér og yfir Neró, sem var nú kominn hálfur í kaf, Sverri til mikillar undrunar. — Á morgun er sunnudagur, væri ekki tilvalið þá að hefjast handa? ÓIi ætlar að hjálpa okkur, og Ninna líka, ef hún fer ekki eitthvað með strákunum. — Heldurðu að afi hjálpi okkur, þó ekki væri nema um góð ráð? — Afi vill áreiðanlega hjálpa okkur, en hann þarf til kirkju, hann spilar á orgelið þar, sagði Hanna. Áki var ánægður, nú væri ísinn brotinn, Hanna María farin að spjalla aftur, og á morgun myndi allt vera fallið í ljúfa löð. Nú var nægilegt til að skrafa um, Hanna varð flaum- mælsk eftir alla þögnina og kom með ótal uppástungur um stærð og gerð kofans. Aki sagði að bezt myndi vera að skjóta á ráðstefnu þá um kvöldið með öllum þeim aðilum sem að húsbyggingunni stæðu. Sverrir vildi alls ekki klæða sig í fötin aftur. Hann harðneitaði öllu og æpti og barðist um, þegar Áki ætl- aði að klæða hann með valdi. Hann lét ekki undan, fyrr en Hönnu hugkvæmdist það snjallræði að lofa honum að ríða heim á Neró, ef hann klæddi sig í fötin. Neró varð að hrista sig aftur og aftur og velta sér í þurrum sandi og hrista sig enn meir, svo hann bleytti ekki föt Heima er bezt 23 L

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.