Heima er bezt - 01.06.1965, Blaðsíða 34

Heima er bezt - 01.06.1965, Blaðsíða 34
Neró sló skottinu fast niður í steininn, svo vatnið ýrðist í allar áttir, hann var með þessu að gefa til kynna samþykki sitt á skoðun Hönnu. — Eigum við að vita hvort selurinn sem var hérna áðan, reynist ekki betri vinur en til dæmis Sonja? Hún er regluleg hlaupasmetta, þorir ekki neitt og er alls ekki skemmtileg, bætti Hanna við ofurlítið lægra. Neró nennti ekki að tala meir um Sonju, hann hafði komið auga á tilvonandi vin þeirra, sem smáfærði sig nær steininum aftur forvitinn á svip. — Hæ, kallinn. — Viltu koma upp til okkar? kallaði Hanna, en það hefði hún ekki átt að gera, því selurinn hrökk svo við, að hann bókstaflega hvarf ofan í sjóinn, hraðar en hann hafði nokkru sinni gert fyrr á ævinni. — Hvaða óttaleg hávaðabjalla er þetta eiginlega, taut- aði hann við sjálfan sig, þegar hann loks varð að koma upp aftur til að anda, langt utan við steininn. — Selur verður bara hjartveikur af þessum óhljóðum í stelpunni, hundurinn er þó skömminni til skárri. Gam- an væri að fá þau í kappsund, en hvernig ætti ég að fara að því? Selurinn velti vöngum spekingslegur á svip, en ekk- ert ráð datt honum í hug. — — Það er bezt að skríða upp á heitan stein og láta sólina verma sig, þá dettur mér svo anzi margt gott í hug, tautaði hann hátíðlegur á svip, teygði sig betur upp úr sjónum til að sjá hvar stytzt væri að góðri klöpp, og stakk sér síðan í kaf og synti á methraða út að næsta skeri. XVII. Áhyggjur ömmu. Amma var áhyggjufull. — Hvað er að stelpunni? sagði hún við afa, — ég get varla sagt að ég sjái hana þessa síðustu daga, og málstirð er hún líka orðin. Það er varla að hún svari mér, þótt ég tali til hennar. — Hún er að vaxa, anzaði afi. — Að vaxa, hnussaði í ömmu, — sér er nú hver vizk- an sem þér getur dottið í hug. — Að vaxa, skyldi enginn hafa vaxið fyrr. — Það var mikil fyrirlitning í rödd ömmu. — Ef til vill er hún bara ástfangin, skaut afi inn í glettinn á svip. — Jæja, Brynjólfur Jónsson, sagði amma fastmælt. — Ég held að ef tíu ára krakkinn.... — O — á ellefta ári, muldraði afi í skeggið. — Tíu ára sagði ég, sagði amma og hækkaði róminn, — og ef þú heldur að tíu ára krakkinn sé ástfanginn, þá held ég að þú sért að ganga í barndóm, eða jafnvel orð- inn elliær. Það er geðslegt að búa við þetta. — Æi, vertu nú ekki svona armædd, elskan mín, sagði afi, tók utan um ömmu og kyssti hana aftan við eyrað. Amma vék sér undan. — Hver heldurðu að vilji kyssa þetta andstyggðar skegg þitt, fullt af tóbaki og mosa og guð veit hverju, sagði hún en gat þó ekki varist hlátri. — Hvernig þú getur látið, kona, sagði afi og þóttist vera móðgaður. Fyrst hárið vill ekki tolla á kúpunni á mér, verð ég að fá að hafa skeggið. Hvernig heldurðu að þér liði bersköllóttri? Ég skal segja þér að hefði ég ekki skeggið til að státa af, fyndist mér ég vera alls- nakinn og þyrði aldrei að láta nokkurn mann sjá mig. — Ó, ekki, vesalingurinn, þú hefir löngum feiminn verið, tautaði amma, en nú vék hún sér ekki undan, þótt afi kyssti hana rembingskoss á vangann. Svo sleppti hann henni og settist á rúmið sitt og dæsti, dró síðan upp tóbaksdósirnar, sló nokkrum sinn- um á lokið á þeim með vísifingri, þungt hugsi á svip, opnaði þær síðan og fékk sér duglega í nefið. — Jamm og jamm, óneitanlega hefir sletzt upp á vin- skapinn hjá henni og þeirn þama á heimabænum, ég hefi bara ekki viljað spyrja hana að því hvað það sé, tautaði hann lágt. — Og svo skröltir hún á þessu bátskríli út um allan sjó, svo ég er dauðhrædd um hana, sagði amma. — Látum hana í friði meðan þetta er að moltna úr henni. Það líður varla á löngu áður en hún jafnar sig. — Jæja, jæja, þú alvitri afi, látum hana þá eiga sig, sagði amma og stundi þungan. XVIII. Sonja leitar sátta. — Hvað er eiginlega að hjá ykkur Hönnu Maríu, því eruð þið hættar að vera saman? spurði Aki systur sína einn daginn, þegar hann kom að henni sitjandi ofan við bæ ósköp armædda á svipinn. — Hanna vill ekki vera með mér, svaraði Sonja. — Hvernig stendur á því? — Það veit ég ekki. Áki settist á þúfu við hlið Sonju. — Hvenær hættuð þið að vera saman og vera vin- konur? — Þegar Sverrir datt í sjóinn. — Datt mér ekki í hug, sagði Áki, — svo hefir mamma orðið reið, og þú kennt Hönnu um allt saman til að losna við skammirnar? Sonja samþykkti þetta með þögninni. — Þú ert dálagleg vinkona, eða hitt þó heldur. Hver heldurðu vilji vera með þér fyrst þú ert svona? Sonja fór að vola: — Mér leiðist svo hér, enginn til að leika sér við nema Sverrir, sem er ekkert nema óþægðin. 230 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.