Heima er bezt - 01.06.1965, Síða 36

Heima er bezt - 01.06.1965, Síða 36
litla knapans sem gekk illa að halda jafnvæginu, hve lipurlega sem Neró reyndi að ganga. Sonja og Hanna gutu augum hvor til annarrar, en ekki töluðust þær við. Áki stakk upp á að þær héldu áfram að tína skeljar, sem þær gætu svo stofnað búskap með, hann færi heim með Sverri og segði mömmu sinni frá, að þeir hefðu verið að baða sig. Sonju skildist að með þessu myndi hún losna við að gefa nokkra skýrslu um málið heima og var lifandi fegin. — Eigum við að verða eftir? spurði hún og leit til Hönnu. — Mér er sama, svaraði Hanna og sparkaði tánni nið- ur í sandinn. — Allt í lagi, sagði Áki, þá verðið þið eftir, en svo mætum við öll á ráðstefnu niðri í Koti klukkan níu í kvöld. Svo veifaði hann til þeirra í kveðjuskyni. XIX. Ráðstefnan. Ráðstefnan var haldin í varpanum vestan við bæinn að ráði afa. Hann vissi að amma ætlaði að gefa þeim eitt- hvað gott á eftir og vildi helzt ekki hafa þau inni á með- an hún útbyggi það. Þau lögðust og settust í grænt grasið, sem var alþakið fíflum og sóleyjum. Hanna og Sonja fóru strax að flétta sér hálsfestar og höfuðskraut. Það fór hið bezta á með þeim og var auðséð að þær voru alsáttar. Neró lá á milli þeirra, lafmóður af hitanum, hann dauðlangaði í bað, en nennti ekki að fara einn. Loks kom afi, og þá voru allir mættir. Hann leit glettnislega á hópinn, dró upp sínar ómissandi tóbaks- dósir og bauð í nefið. Óli fékk sér nokkur korn og saug þau rösklega upp í aðra nösina. — Jamm og jamm, sá þykir mér hraustur, sagði afi og beið brosandi eftir áhrifunum. Þau létu heldur ekki á sér standa. Óli hnerraði og hnerraði á fárra sekúndna fresti. Hin veltust um af hlátri. Óli ætlaði að segja eitthvað, en það varð aldrei neitt úr því, þar til hann loks gat stunið upp: — Þetta var svei mér hressandi, þakka þér fyrir. — Þú vilt máske í hina nösina líka? sagði afi örlátur og rétti fram dósirnar. — Nei, nei, þakka þér kærlega fyrir, ég ætla að eiga það inni, til góða, þar til seinna, stundi ÓIi hlæjandi og þurrkaði tárin úr augunum. — Nú er ég svo vel hress, að ég er til í að taka að mér fundarstjórn. Að svo mæltu reis hann á fætur, ræskti sig og hóstaði ofurlítið. — Honum var ekki í svipinn vel Ijóst, hvernig fundir væru settir. — Eftir hverju ertu að bíða? spurði Áki. Óli rak tunguna út úr sér framan í bróður sinn og gretti sig, síðan tók hann til máls: — Menn og konur, hundar, sauðfé og aðrir þeir sem viðstaddir eru hér á þessari stund, ég býð ykkur öll vel- komin og vona að umræður um það eina mál, sem á dagskrá er, verði heitar og kappsamar. Öllum er frjálst að láta skoðun sína í ljós, en ég mælist til, að ekki haldi ræður fleiri en einn í einu. Þar sem búast má við, að fundurinn verði alllangur, ætla ég ekki að tefja tímann með neinum orðalengingum, en segi hér með hinn fyrsta fund í Félagi kofabyggjenda settan. Óli settist niður og lézt þurrka svitann af enni sér. Allir viðstaddir klöppuðu honum lof í lófa, og afi sagði að þetta hefði verið anzvíti góð ræða hjá stráknum, sér kæmi ekki á óvart, þótt hann ætti eftir að komast á þing. Afi bað fyrstur um orðið. Hann sagði að sér væri ekki vel ljóst, hvað þau ætluðu sér, en eftir því sem Hanna María hefði sagt sér, stæði til að endurreisa byggð í Lyngey. Fundurinn stóð nærri tvo tíma, en þá voru líka allir sammála um ágæti þess að eiga sér sel, svo þau gætu farið í útilegur við og við og lifað villimannalífi, eins og afi komst að orði. Neró og Harpa voru nú öll orðin blómum skreytt, auk þess sem stelpurnar litu út eins og blómadrottning- ar. Ámma hafði við og við verið að gá út um bæjar- dyrnar, en ekki vildi hún sitja fundinn, þó þau marg- bæðu hana að koma. Loks sá hún að þau væru farin að standa upp, og hún kom þá og bauð þeim upp á ofurlitla hressingu undir svefninn. Var því vel tekið, og súkkulaðið hennar ömmu og kökurnar hurfu eins og dögg fyrir sólu. Afi sagði sögur, svo allir veltust um af hlátri. Hanna María var alveg viss um, að enginn kynni eins mikið af sögum og segði eins skemmtilega frá og afi. Seinna þegar þau í heimabænum voru búin að þakka fyrir sig, bjóða góða nótt og farin, kyssti Hanna María afa og ömmu vel og sagði, að hún væri alveg hárviss um, að þau væru lang-lang-beztu afa og ömmu hjón í öllum heiminum! XX. Kirkjuferð. Eftir hádegi á sunnudaginn þurfti afi að fara til kirkj- unnar og spila á orgelið, eins og hann var vanur. Amma stakk upp á því, að það færu sem flestir með honum, því veðrið væri eins gott og bezt varð á kosið. Færi afi einn, þá færi hann ríðandi, en yrðu þau fleiri, færi hann á bát. Það varð úr að allir fundarmennirnir frá kvöldinu áður ákváðu að fara, og auk þess amma. Skúli og Benni ætluðu eitthvað ríðandi um sveitina. Óli sagði að það 232 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.