Heima er bezt - 01.08.1965, Page 10

Heima er bezt - 01.08.1965, Page 10
óhæft til drykkjar. Hinsvegar höfðum við sums staðar upp úr erfiðinu vellandi vatn og gott. Ari síðar (1908) fór ég í félag við John Hannesson. Seldum við gamla borinn og keyptum nýjan. Var hann knúinn af litlum eimdraga, sem jafnframt var til þess hafður, að flytja borinn af einum stað á annan. Borinn áttum við John hvor um sig að hálfu. En stundum gekk innheimtan að loknu verki nokkuð seinlega. Greiðsl- urnar hrukku samt fyrir tilkostnaði og nokkru betur. Við héldum áfram félagsskapnum fram í september- mánuð 1910. Þá varð ég fyrir því óláni, að fá snert af heilablæðingu. Ég leitaði til dr. Brandson í Winnipeg, og sagði hann, að ég yrði óvinnufær í 6 mánuði a. m. k. Réði hann mér að ganga í nudd og rafmagnsaðvinnslur, og mælti í því efni með ungfrú nokkurri, Halldórson að nafni. Eftir aðvinnslur þessar um 6 vikna tíma leið mér talsvert betur, þótt ekki væri ég fær um neina erfiðisvinnu. Uti á vatnsströndinni — á Miklanesi (Big Point). Að halda búskap áfram við þessar aðstæður var ekki efnilegt, en nú var þegar vetrað og ákvað ég því að láta við svo búið standa til vors. Drengir mínir, Frank 10 ára og Bill 8 ára, voru duglegir til vinnu og ólatir, og tókst þeim, þótt ungir væru, að hirða búféð með þeirri lítilfjörlegu hjálp, sem ég gat veitt. Þannig kom- umst við af til vorsins. Um vorið bauðst mér staða sem húsvörður við skyttu- skála á Miklanesi. Höfðu 10 auðugir Winnipegbúar myndað með sér skotfélag og leigt víðáttumikið merski- svæði, sem lá fram með flóanum sunnan við nesið, og byggt þar skála. Kaup átti ég ekki að hafa, en ókeypis íbúð í stóru bjálkahúsi, eldsneyti og heyland handa skepnum mínum. Svo báglega sem nú var ástatt fyrir mér, virtist þetta vera happatækifæri, og tók ég til- boðinu. Þarna voru 2 rúmgóð bjálkahús, annað skyttu- skálinn handa félagsmönnum, þegar þeir komu norður til andaveiða, hitt handa okkur, og auk þess stór hlöðu- fjós. Ég seldi mestallt búfé mitt, en hélt þó eftir 5 mjólkurkúm, 2 ungneytum og 3 hestum. Bújörð mína lét ég í skiptum fyrir 3 ekrur lands á garðasvæðinu suðvestan við Winnipeg, þar sem ræktaðar voru mat- jurtir fyrir markað. Um vorið fluttumst við svo í bjálka- húsið hjá skyttuskálanum. Brátt kunnum við öll mjög vel við okkur á þessum stað, ekki sízt krakkarnir, sem nutu nálægðar vatnsins, — þykkur skógurinn tilvalinn til rannsóknarleiðangra og endalaus sefbreiðan morandi af fugli. Þetta var kyrrlátt líf í skemmtilegu umhverfi, og fór starfsþreki mínu óðum fram. Tengdaforeldrar mínir bjuggu í að- eins einnar mílu fjarlægð og voru þau tíðir gestir. Tveir skotfélagar áttu heima í Gladstone. Komu þeir öðru hvoru um helgar og buðu þá stundum gestum með sér. Með sumarltomunni urðu gestir fleiri og dvöldust lengur, til að skemmta sér við böð og sund. Oft keyptu þeir hjá okkur það, sem þá vanhagaði um, svo sem egg, mjólk, brauð og smjör og kartöflur. Af þessu höfðum við smátekjur og komumst þannig af án þess að safna skuldum. í iMarshland-byggðinni voru um þessar mund- ir krepputímar. Búfjárhjarðirnar höfðu vaxið, unz hver grastó til beitar og heyfanga var uppurin, og komrækt kom í raun og veru ekki til greina. Landnemarnir flutt- ust burt í hópum, og var þess ekki lengi að bíða, að þessi búsældarbyggð, sem verið hafði, liði undir lok og hyrfi svo að kalla aftur í sitt upprunalega óbyggðar- ástand. Þegar kom fram á sumar, leið mér svo mjög betur, að ég gat heyjað handa skepnunum og þolað áreynslu- meiri vinnu. Um haustið fómm við, mágur minn og ég, hvor með sitt sameyki, kerm og korngrind, suður á Portage-sléttur og fengum atvinnu við þreskivélar- úthald, sem W. H. Johnston átti, en hann átti heima 6 mílur norðaustur af Westbourne. Þreskingin gekk seint, því að veðráttan var slæm og vélstjórinn hvarf frá verki á miðjum þreskitíma. Maður- inn, sem tók við af honum var kunnáttulítill, en fullur sjálfsálits, vélbilanir vom tíðar og vinnusiðgæði verka- mannanna þvarr. Johnston fékk sig sannarlega fullreynd- an af þessu öllu, og loksins rak hann piltinn. Nú var eng- inn vélstjórinn og 10 þreskidagar eftir. Biður Bill mig þá að taka að mér vélstjórnina. Ég var mjög ragur við að reyna þetta, því að ég hafði aldrei haft tækifæri til að kynnast vélum að neinu ráði. En hann lagði mjög fast að mér að gera tilraunina, og hvarflar þá hugurinn til baka til brunnborunardaga minna og litlu eimvélarinn- ar, sem ég hafði átt, og lét ég loks tilleiðast. Sagðist Bill greiða mér venjulegt vélstjórakaup, 5 dollara á dag, og leggja til mann á vagn minn, og átti ég þá að hafa alls doll. 6,50 á dag. Þetta var stórfé, og einsetti ég mér að leggja mig aílan fram til þess að valda Bill ekki vonbrigðum, — og þá heldur ekki vini mínnm Neil McLennan, sem stjórnaði skilvélinni, en hann hafði mælt með mér til vélstjórastarfsins. Gufuvélin var „J. I. Case 25 hesta eingengisvél“, og enda þótt búið væri að nota hana í mörg ár, hafði katlaeftirlitsmaður hins opinbera leyft að hún gengi með 150 punda gufu- þrýstingi. Það var komið fram undir hádegi, þegar ég tók þetta að mér, svo að ég hafði ekki nema 2 ldukkustund- ir til að kynna mér gangeðli vélarinnar. Ég fór á mis við hádegismatinn þann daginn. En kl. 1 blés ég í vél- flautuna. Verkamennirnir komu á vettvang og Neil gaf mér merki um að kúpla skilvélinni við, og tókst það slysalaust. Við færðum okkur yfir á annan akur, og þresktum sleitulaust til kvölds. Einhvern veginn fann ég það þó á mér, að gufuvélin vann ekki alls kostar vel. Fór ég því út eftir kvöldmat og vann við það til mið- nættis, að yfirfara hana gaumgæfilega. Fann ég að lag- færingar var þörf hér og þar. Sem betur fór var ónauð- synlegt að fá fagmann til þessara aðgerða, og vel þótti mér launast fyrirhöfnin daginn eftir, þegar ég fann, að vélin var bæði kraftmeiri og hafði mýkri gang. Framh. 282 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.