Heima er bezt - 01.08.1965, Page 14

Heima er bezt - 01.08.1965, Page 14
Leirhöfn. ann. Frá Leirhöfn að Núpskötlu, þar sem ég átti þá heima, er um 12 km. leið, og er enginn bær á þeirri leið. En sé farið með sjónum, sem er nokkuð lengra, er einn bær á leiðinni, Grjótnes, en auk þess er sú leið auðröt- uð, þar sem leiðin liggur alltaf með sjó. Um morgun- inn lagði Helga fast að mér að fara síðarnefndu leið- ina. En ég vildi fara beint og taldi mér það óhætt, þar sem veður mátti heita gott og hélt ég fast við þetta, þrátt fyrir fortölur Helgu. Þetta fór vel, því veður breyttist ekki, en ekki veit ég hversu vel hefði dugað ratvísi mín og kjarkur, ef veður hefði breytzt. En þetta sýnir hversu Helga fylgdist með öllu og vildi veita öll- um forsjá, sem á hennar heimili komu. Hin minningin gerist fjórum árum seinna, einnig að vetri til. Ég var scndur inn á Kópasker með hest og sleða. Svo vildi til að Helga bað mig að reka fyrir sig smávegis erindi og ég færði henni eitthvað lítilræði úr kaupstað. Þetta var í skammdeginu og gisti ég í Leirhöfn í baka- leiðinni. Mér eru minnisstæðar viðtökurnar hjá Helgu, þegar ég kom af Skörðunum. Framreiddur var fyrir mig matur svo fjölbreyttur sem veizluborð væri, og meðan ég mataðist sat Helga hjá mér og ræddi við mig. Mér hefur oft orðið hugsað til þessa atviks, og hvort þessar höfðinglegu móttökur hefðu átt að vera sem laun fyrir þann lítilf j örlega greiða, sem ég gjörði henni. Að vísu voru veitingar ætíð fram bornar af mikilli rausn í Leirhöfn, hver sem í hlut átti, en þetta bar af því venjulega. Þó að synir Helgu sæju um framkvæmdir, mun það þó fyrst og fremst hafa verið hún, sem hafði stjórnar- taumana í höndum lengi vel. Hún var án efa frábær stjórnandi. Flún kunni þá list að stjórna þannig, að menn fyndu sem minnst til þess, en stjórna þó með festu og sjá um að regla og festa ríkti í heimilisháttum. Var þó hópurinn oft allsundurleitur, sem stjórna þurfti. Sök- um frábærra mannkosta var hún elskuð og virt af öllu sínu heimilisfólki. Verkahringur Helgu var mjög stór, að standa fyrir hinu stóra heimili, en þó einkum að taka á móti hinum mikla fjölda gesta og standa þeim fyrir beina. En ætíð var eins og hún hefði nægan tíma, og aldrei fataðist rósemi hennar eða sálarjafnvægi. Vorið 1919 lét Helga af búskap, en við tóku synir hennar þrír, Sigurður, Guðmundur og Helgi. En bú- 286 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.