Heima er bezt - 01.08.1965, Qupperneq 16
Jóhann Kristjánsson. Petra S. Jónsdóttir.
Sœmund u r Kristjánsson.
Sigurður Kristjánsson.
Jní nafnið Nvhöfn. Hefur búið Jrar síðan. Kvæntur
Sesselju Benediktsdóttur. Eignuðust 6 börn, 5 drengi og
cina stúlku.
i. Sæmundur, fæddur 29. nóv. 1887. Tók snemma við
fjármennsku hjá móður sinni. Byggði nýbýli í Leirhafn-
arlandi, en hvarf frá Jn í eftir fá ár. Keypti jörð á Suð-
urlandi og fluttist þangað. Hvarflaði norður aftur eftir
nokkur ár. Kevpti jörðina Sigurðarstaði á Sléttu og býr
J)ar nú ásamt tengdasvni sínum. Kvæntist ekki, en eign-
aðist eina dóttur.
4. Sigurður, fæddur 24. des. 1889. Bóndi í Leirhöfn,
húsasmiður og verkmaður mikill, frábær skytta. Lengi
í hreppsnefnd Presthólahrepps. Kvæntist ekki, en eign-
aðist einn son. Býr nú hjá honum á Sæbergi, sem er ný-
býli í Leirhafnarlandi, og rekur Jiar sögunarverkstæði.
5. Guðmundur, fæddur 20. júlí 1892. Bóndi í Leir-
höfn. Lagði fyrir sig fjármennsku, fyrst með Sæmundi
bróður sínum, en síðan aðalfjármaður á félagsbúi þeirra
bræðra. Dó ókvæntur og barnlaus 9. sept. 1929.
6. Helgi, fæddur 28. des. 1894. Bóndi í Leirhöfn.
Dvaldist í Noregi IV2 ár við búnaðarnám og ýmisleg
störf. Lærði bókband og hefur starfað mikið að því.
Mikill bókasafnari. Stofnaði húfugerð í Leirhöfn, sem
hann hefur rekið til [>essa dags. Hefur gegnt mörgum
opinberum störfum. Kvæntur Andreu Pálínu Jónsdótt-
ur. Eignuðust 7 börn, 5 stúlkur og tvo drengi.
Allir eru þeir bræður greindir og fróðleiksmenn mikl-
ir og hafa átt margvísleg hugðarmál.
Ritað árið 1964.
Kristinn Kristjánsson.
Sesselja Benediktsdóttir.
Helgi Kristjánsson.
Andrea P. Jónsdóttir.
288 Heima er bezt