Heima er bezt - 01.08.1965, Síða 17
SIGURÐUR VILHJÁLMSSON, HÁNEFSSTÖÐUM:
Snorri Sturluson
(Niðurlag).
Nú var Hákon orðinn fulltíða maður, vitur og slung-
inn stjórnmálamaður, sem hafði yfirbugað keppinauta
sína um völdin í Noregi og kvæntist jMargréti dóttur
Skúla jarls 1225. Skúli taldi sig jafnborinn til konung-
dóms og Hákon og smámsaman kom upp reipdráttur
með þeim um völdin. Og þannig var ástatt þegar Snorri
kom nú til Noregs. Skúli sem nú var kallaður hertogi
tók vel við Snorra, og dvaldi hann með Skúla meðan
hann var í Noregi. Ekki er getið að hann hafi verið á
vegum konungs og skifta þeirra að engu getið.
Sturla Sighvatsson fór utan 1233 og var í hávegum
við hirð Hákonar konungs, „ok töluðu þeir konungur-
inn ok Sturla jafnan,“ segir Sturla Þórðarson. í Hákon-
arsögu segir að Sturla hafi lofað að koma landinu undir
konung. Málin standa þá þannig í Noregi þegar Snorri
kemur þar haustið 1237 að Snorra hafði ekkert orðið
ágengt við að koma Islandi undir Noregshöfðingja og
að líkindum ekki haft vilja á því þegar til kastanna kom.
Sturla hafði heldur ekkert gert til þess að gera að vilja
Hákonar og hefur að líkindum engu lofað í þá átt.
Snorri hafði aftur á móti lofað og líklega skuldbund-
ið sig til í fyrri utanförinni að fá Islendinga til að játa
yfirráð Noregshöfðingja þ. e. Skúla hertoga. Skúli sat
alltaf á svikráðum við Hákon konung. Þó óvíst sé að
Snorri hafi vitað um þau bendir það til þess að hann
er með Skúla þegar hann er í Noregi en hefur lítið
saman við Hákon að sælda. Langlíklegast er að í síðari
utanförinni hafi Skúli gert Snorra eitthvað kunnugt um
fyrirætlanir sínar og Snorri verið algjörlega á hans
bandi. Hákoni konungi þykir þetta grunsamlegt. Hann
hefur komizt á snoðir um að Snorri og þeir íslendingar,
sem voru hjá Skúla bjuggust til íslandsferðar. Bregður
hann þá við og gerir út sendimenn með bréfum sem
banna þeim að fara úr landi. Skip þeirra er búið til hafs
þegar bann konungs kemur og Snorri svarar stutt og
laggott: „Út vil ek.“ Skúli hertogi er Snorra sammála
og er bezt að láta Sturlu Þórðarson hafa orðið eins og
hann setur það fram í íslendingasögu: „Ok þá er þeir
váru búnir, hafði hertoginn þá í boði sínu, áður en þeir
tóku orlof. Váru þá fáir menn við tal þeirra hertogans
og Snorra. Arnfinnur Þjófsson ok Ólafur hvítaskáld
váru með hertoganum, en Órækja ok Þorleifur með
Snorra. Ok var þat sögn Arnfinns, at hertoginn gæfi
Snorra jarlsnafn, ok svá hefur Styrmir inn fróði ritat:
Artíð Snorra folgsnarjarls, „— en engi þeirra Islending-
anna lét þat á sannast.“ Þeir Iáta svo tafarlaust í haf og
komu heilu og höldnu til íslands.
Ég held að það sé ekki hægt að komast hjá því að í
þessari tilvitnuðu klausu er Sturla að segja frá fundi
sem Skúli og Snorri hafa stofnað til. Og mættir eru auk
þeirra tveir trúnaðarmenn af hvorri hendi, sem áttu að
vera vottar að samkomulagi þeirra Skúla og Snorra.
Skúli hefur vafalaust skýrt Snorra, sem var lendur maður
hans, frá undirbúningi sínum að því að steypa Hákoni
konungi af stóli og Snorri lofað Skúla að vinna að því
að íslendingar skyldu játast honum. Skúli sæmir svo
Snorra jarlsnafnbótinni. Það hefur Snorri sagt Styrmi
fróða, sem getur hans sem „folgsnarjarls“ þ. e. að jarl-
dómur Snorra mátti ekki vitnast fyr en Skúli hafði náð
völdum í Noregi. Um þetta atriði voru íslendingarnir
auðvitað bundnir þagnarskyldu, en Norðmaðurinn Arn-
finnur Ijóstrar því upp í Noregi þegar Skúli var fallinn
frá. Það er augljóst að Snorri hefur aldrei skuldbundið
sig til neins gagnvart Hákoni. Það er Noregshöfðingi
sem hann er skuldbundinn. Skúli hefur áreiðanlega talið
Snorra trú um að Hákon væri ekki fremur réttborinn
til konungdóms í Noregi en hann.
Á þessum forsendum skeytir Snorri engu banni Há-
konar. Hann hafði útferðarleyfi hertogans. Örlygsstaða-
bardagi varð 1238 meðan Snorri er ytra og fréttir af
úrslitum þeirrar orustu bárust til Noregs þá um haustið.
Þar með var lokið þeim vonum sem Hákon hafði bund-
ið við Sturlu. Hann hefur því enga trúnaðarmenn á ís-
landi.
Það er 1239 sem Snorri fór heim til íslands og hann
fer að Breiðabólsstað í Fljótshlíð þegar hann kom heim.
Þá var Hallveig þar fyrir. Árið eftir gerir Skúli svo úr-
slitatilraun sína til að ná konungdómi í Noregi. Hann
leggur þá til orustu við Hákon og í þeirri orustu féll
hann og þarmeð allar bollaleggingar þeirra Snorra.
Vafalaust hefur Hákon orðið vís alls þess sem þeim
Skúla og Snorra fór á milli og hann hagar sér samkvæmt
því í málum íslendinga. Árni óreiða fyrrverandi tengda-
sonur Snorra er þá í Noregi og á vegum Hákonar. Þá
sama sumar sendir hann Eyvind bratt og Árna óreiðu
til íslands með bréf til Gissurar Þorvaldssonar. Var
Heima er bezt 289