Heima er bezt - 01.08.1965, Page 20
V erSIaunasvör
viS auglýsingu
Um þær mundir, sem póstkröfur fyrir áskriftargjaldi
„Heima er bezt“ voru sendar til áskrifenda á s.l. vori,
hugðust forráðamenn tímaritsins setja auglýsingu þess
efnis í Ríkisútvarpið, þar sem jafnframt væri vakin at-
hygli á því, love áskriftargjaldið væri raunverulega lágt,
miðað við verðlag í landinu. Brá þá svo kynlega við, að
Auglýsingastofa Ríkisútvarpsins neitaði að láta lesa um-
rædda auglýsingu, enda þótt ekkert kæmi fram í aug-
iýsingunni, nema viðurkenndar staðreyndir.
Af því tilefni birtist eftirfarandi auglýsing í Morg-
unblaðinu:
r -------;----------------------
HVERS VEGNA NEITAÐI AUGLÝSINGA-
STOFA RÍKISÚTVARPSINS AÐ LÁTA
LESA EFTIRFARANDI AUGLÝSINGU?
„Tímaritið Heima er bezt. Póstkröfur fyrir
áskriftargjöldum hafa verið póstlagðar. Þrátt fyr-
ir aukna dýrtíð haldast áskriftargjöld mánaðar-
ritsins „Heima er bezt“ óbreytt, aðeins tvö hundr-
uð krónur. Lestur þessarar auglýsingar kostar
helmingi meira en heill árgangur af „Heima er
bezt“. "
Heima er bezt, pósthólf 558, Akureyri.“
?
Sá, sem að okkar dómi, sendir bezta svarið við
framangreindri spurningu fyrir 15. maí n. k., fær
ókeypis áskrift að tímaritinu „Heima er bezt“ og
auk þess bækur að eigin vali að verðmæti allt að
kr. 1000,00.
Svörin sendist til tímaritsins HEIMA ER BEZT,
pósthólf 558, Akureyri.
Fjölmörg svör við ofangreindri spurningu bárust til
„Heima er bezt“ og hér birtum við svo til gamans þau
svör sem okkur þótti skemmtilegust.
Jafnframt vilja forráðamenn „Heima er bezt“ þakka
öllum þeim, sem sendu blaðinu skemmtileg svör við
spurningunni.
Lítið /ttvarps-NEl
Eitt og lítið útvarps-nei
ærslum knýtir saman,
yfir þýtur eins og fley
eða bítilgaman!
Flótti er aðeins óttastand
um illa hlaðið farið
hræðsla um skaða-hnjask við land.
Hérna er, maður, svarið!
Því er ekki þrautalaust
þetta um hrekki flóttans,
feigðarhlekki frjálsri raust,
furðublekking óttans.
Auglýst verð hjá útvarpsrödd
útleggst: Sverð og hætta!
Hlutlæg ferð er hættustödd,
— hjálpi nú gerðir vætta!
Samanburðar-vöruverð
vekur furðu manna,
slíkt skal urða útlagsgerð
og opna hurðir banna!
Lögmálshlekkir lýstu glatt,
Ijósin grútar skinu,
— nú má ekki segja satt
í sjálfu ÚTVARPINU!!
Neitunarvers
Útvarpið þolir illa
ábending sannleikans,
því skal með þögnum villa
þriflegan framgang hans!
Reikningur réttur má
eigi í útvarp birtast,
einhver ef skyldi fyrtast,
ellegar satt mál sjá.
Óvandur eftirleikur
eftirmál birtir góð:
Aðhláturs kviknar kveikur
kætandi vora þjóð,
bergmálar ísland allt
heilnæmum hláturs-kviðum,
svo hrikti í rjáfri og viðum.
— Veraldarhjólið er valt.
Því skal vor þanki blessa
þessleiðis útvarps-nei,
hláturinn gjörir hressa
herlega svein og mey.
Endar svo utan frests
sálmvers um sannleiks kæfing,
— soddan ein kátleg æfing,
brosyrði gaman-gests!
Gamnari.
Við þökkum Gamnara fyrir svörin, og biðjum hann
vel að njóta verðlaunanna.
292 Heima er bezt