Heima er bezt - 01.08.1965, Blaðsíða 21

Heima er bezt - 01.08.1965, Blaðsíða 21
ÞATTUR ÆSKUNNAR HVAÐ UNGUR NEMUR RITSTJORI 0 • STEFAN 40NSS0N NAMSTJ. Byggáin og öræfin milli jökulánna - Fagrar sveitir, fjallabyggéir, heiðalöncl og auðnir - Norðaustan í Vatnajökli eru jökulbungurnar Brúar- jökull og Dyngjujökull. Við rætur Brúarjökuls á Jök- ulsá á Brú upptök sín, en í krikanum milli Kverkfjalla og Dyngjujökuls eru upptök Jökulsár á Fjöllum. Ef við værum stödd við upptök þessara stórfljóta, þá myndum við komast að raun um, að ekki er mjög langt á milli þeirra, þar sem þau eiga upptök sín, eða varla meira en 35 til 40 km. Nokkrar þverár falla í þessi stór- fljót, er dregur frá jöklinum, og má þar nefna Kreppu, er fellur að austan í Jökulsá á Fjöllum og Kringilsá og Sandá, sem falla í Jökulsá á Brú. Þríhyrningurinn, sem þessi jökulfljót mynda á milli sín á Norðausturlandi er að mörgu leyti sérkennilegur og ólíkur öðrum landshlutum. Hið kalda Dumbshaf liggur þarna fyrir landi og margoft í byggðasögu landsins hefur hafísinn, „l-ands- 'ms forni fjandi‘% fyllt þar allar víkur og flóa. En þrátt fyrir þetta eru þarna með ströndum fram blómlegar byggðir hið neðra, en sumarfagrar fjallabyggðir, heiða- lönd, öræfi, auðnir og sandar hið efra. Enginn veit með vissu, hvernig hálendið í þessum þrí- hyrningi hefur litið út á landnámstíð, en vel getur mað- ur hugsað sér, að þarna hafi blásið upp gróðurlendi, sem nú sjást aðeins leifar af. Eru nú þegar hafnar tilraunir með að endurskapa þessar hálendisauðnir. A Hólssandi, sem liggur upp af Axarfirði, er nú hafin sandgræðsla í stórum stíl, og hafa verið afgirt og friðuð stór land- flæmi í því skyni. Er það hrífandi sjón, að sjá þarna grónar sáðsléttur inn í miðri auðninni. Enginn veit hvílíku kraftaverki geta valdið í framtíðinni friðun landsins, sáning fræja og dreifing áburðar á þessar fjalla-auðnir. Ef til vill myndast á þessum örfoka sandauðnum á næstu áratug- um og öldum gróðursælar fjallabyggðir. Ég ætla í þessum þætti mínum, að bregða upp smá- mvndum af byggðum og öræfa-auðnum af þessum landshlutua, sem ég vil nefna: Þríhyrninginn milli ánna. Kenni ég fyrsta kaflann við sænskan kennara, sem ferð- aðist með mér um Hólssand, Hólsfjöll og Möðrudals- öræfi. 1. MAX GLANZELIUS. Vorið 1946 kom hingað til lands kennari frá Gauta- borg, sem Max Glanzelius hét. Hann var hér með náms- skeið á vegum kennarasamtakanna, en áður höfðu marg- ir íslenzkir kennarar kynnzt starfi hans við barnaskóla í Gautaborg og hrifizt af kennsluaðferðum hans, og þá ekki síður af persónuleika hans og prúðmennsku. Má þar fyrstan í flokki telja Jónas B. Jónsson, fræðslustjóra. Þegar þessi sænski kennari hafði lokið námsskeiðinu í Reykjavík, gafst honum kostur á bílferð um Norður- og Austurland og var ég þar með í för. Það er ekki ætl- un mín að segja sögu þessa ferðalags, heldur ætla ég að- eins að bregða upp mynd af ferð okkar úr Axarfirðin- um um Hólssand, Hólsfjöll, Möðrudalsöræfi og Jökul- dalsheiði. I íí ' " M ' -'t ^ .0 k

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.