Heima er bezt - 01.08.1965, Blaðsíða 24

Heima er bezt - 01.08.1965, Blaðsíða 24
sem á túninu voru og um 200 fjár á fóðrum. Slægjur voru góðar í mýrarsundum og á tjarnarbökkum, en að öðru levti var fénu gefinn fóðurbætir með beitinni, sem var ágæt og brást sjaldan. Til næstu bæja var tveggja til þriggja tíma gangur. Þessi hjón höfðu búið j>arna lengi og komið upp mörgum börnum.------- ------Tveimur árum áður hafði ég verið á skemmti- samkomu á Jökuldal, einmitt í Hjarðarhaga. Þá var fleira fólk heima í Heiðarseli. Á dansleiknum um kvöldið og nóttina tók ég eftir tveimur myndarlegum stúlkum, sem virtust una sér ágætleo-a á ballinu o<r skemmta sér vel. Þær voru frá Heiðarseli. En til þess að komast á skemmtunina, höfðu jtær orðið að leggja hart að sér. Þær höfðu farið snemma að heiman um morguninn. Þær urðu fyrst að ganga 15 km. leið niður í dalinn og síðan 10 km. eftir dalnum. Eða samtals 25 km. fótgangandi á ballið. Enga þreytu var þó á þeim að sjá, og þegar ég ræddi við þær, sögðu þær, að það væri nú annaðhvort, þótt þær reyndu að njóta gleðinnar og skemmta sér, þegar þær hefðu lagt svona mikið á sig til að komast á ballið. Þetta dæmi sannar, að dalameyjar eiga bæði dug og lífsfjör og geta skemmt sér eins og stallsystur þeirra, sem aka á dansleiki í dúnmjúkum upphituðum bílum. Blóm öræfanna skarta líka í jafnfögrum litum og þau, sem í gróðurhúsum vaxa. Dettifoss. 296 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.