Heima er bezt - 01.08.1965, Blaðsíða 26

Heima er bezt - 01.08.1965, Blaðsíða 26
höfundur hennar er Gísli Guðmundusson alþingis- maður: „Svo segi í Grettissögu, að Grettir Asmundarson hafi komið austan úr Fjörðum og legið úti á Möðrudalsheiði og á ýmsum stöðum. Hann var og stundum á Reykja- heiði,” segir sagan. Talið er víst, vegna landslagslýsinga sögunnar, að ýar sé átt við Öxarfjarðarheiði. Grettis- bæli heitir í framanverðum Öxarnúp. Fundist hafa gamlar götur hið efra yfir Núpinn milli Öxarfjarðar og Núpasveitar, og herma munnmæli að lagzt hafi niður mannaferð hið ytra vegna ótta við Gretti, og hafði þá þessi leið verið farin yfir fjallið. Mjög er þetta í efa dregið, en framan í Öxarnúp sjást vegsummerki. Efst í Núpnum eru þarna há standberg, en þar fyrir neðan taka við brattar skriður, alla leið niður á jafnsléttu, mjög stórgrýttar neðan til. Upp úr urðarskriðu stendur þarna klettadrangur, hár að framan og ókleifur, en að ofan- verðu, þar sem skriðan hefur lagzt að honum, er hann vel gengur. I lægð ofan við drang þennan eða stapa er grjótbyrgi, stutt frá berginu, í halla móti suðvestri. Það virðist dálítið niðurgrafið, en veggir hlaðnir innan með stórum steinum, og reft þversum yfir nokkurn hluta þess með stuðlabergs-dröngum. Sá hefur verið vel að manni, sem þessa veggi hlóð og refti yfir, hafi hann unnið þetta einn. Um þennan stað orti Einar skáld Benediktsson kvæðið Grettisbæli. Þar segir svo meðal annars: Og hálfgleymdar sagnir í huga mér hvarfla um það, sem liðið er, og manninn, sem hlóð þetta hreysi. Mér er sem ég sjái hið breiða bak bogna og reisa heljartak í útlegð og auðnuleysi. F.f lesendur athuga myndina af Grettisbæli í Öxar- núpi og bera stærð stuðlabergsdranganna saman við stærð mannsins, sem hjá þeim stendur á myndinni, þá sjá þeir að þessir steinar eru ekki neinir smá pinnar. 4. MELRAKKASLÉTTA. I Islands-lýsingu sinni segir Þorvaldur Thoroddsen þetta meðal annars um Melrakkasléttu: „Yzt í sveitinni (Öxarfirði) norðvestur frá Þverár- horni gengur Öxarnúpur fram undir sjó. Þar er Grettis- bæli framan í Núpnum. Fyrir norðan Öxarnúp heitir Núpasveit norður að Snartarstaðanúpi. Fjöll og hálsar liggja þar skammt frá sjó, og er Valþjófstaðafjall þar einna helzt. Þá kemur dálítið hlið í fjöllin. Þar er Snartarstaðanúpur undan þeini miðjum. Fyrir utan þessa hálsa tekur við hin eiginlega Slétta, sem tekur yfir nyrzta hluta skagans og ber hérað þetta nafn með rentu, því að það er nærri mishæðalaust — Smáar öldur eru varla teljandi.” A öðrum stað segir svo: „Melrakkaslétta er einn af stærstu útskögum íslands, og nær lengst norður, — allt að Norðurheimskautsbaugi. Nyrzt og vestast er þar höfði, sem heitir Rauðagnúpur. Hann er ekki nema 242 fet á hæð (tæplega 80 metrar), en sézt langt að, af því að láglendi er í kringum hann. — Norðurströndin á Sléttu er mjög vogskorin, (smá víkur) og skerjótt og grynningar út af og boðar. Rifstangi og Hraunhafnartangi ganga lengst í norður. Þar eru mörg smá lón og vötn fram með ströndum.” Þetta segir Þorvaldur Thoroddsen meðal annars um Melrakkasléttu. En þótt maður lesi þessa lýsingu, er maður mjög ófróður um þennan mikla skaga, sem ís- landskortið sýnir láglendan, og er svo mikil víðátta, að þar kæmust fyrir tvær til þrjár sveitir, rniðað við byggð á Suðurlandsundirlendi. Ég hef margar ferðir farið í kringum Melrakkasléttu eftir þjóðveginum frá Kópaskeri að Raufarhöfn, en 298 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.