Heima er bezt - 01.08.1965, Blaðsíða 28

Heima er bezt - 01.08.1965, Blaðsíða 28
í júníblaði Heima er bezt birti ég kafla úr bréfi frá ónefndri frú á Norðfirði, ásamt tveimur erindum úr löngu kvæði. Erindi þessi hafði hún skriðað upp eftir minni. Kvæðið hélt hún að héti: Gunnlaugur Orms- tunga. Nú hafa fjórar ágætar, ljóðelskar konur skrifað mér bréf og bent mér á að kvæði þetta, sem hér um ræðir, muni á sínum tíma hafa birzt í Eimreiðinni. Jafnframt hafa þær sent mér afrit af kvæðinu. Allar þessar ljóð- elsku konur segja, að kvæðið hafi hrifið þær á þeirra æskuárunum og ein kona, Anna Vigfúsdóttir frá Brán- um, sendir konunni á Norðfirði kveðju sína með þakk- læti fyrir að hafa spurt um þetta kvæði, og þannig vak- ið athygli á því. Ég vil einnig þakka öllum þessurn kon- um ágæt bréf og afrit af kvæðinu. Ég hef nú fyrir framan mig á skrifborðinu árgang Eimreiðarinnar 1936, og í þessum árgangi á bls. 113 er þetta umrædda kvæði. Það heitir Helga hin fagra. Höf- undur kvæðisins er Gísli H. Erlendsson, ættaður frá Dýrafirði. Og hér birtist þá kvæðið, eins og það er prentað í Eimreiðinni 1936. HELGA HIN FAGRA Ó, Gunnlaugur veiztu það vinur, mín von snerist öll um þig, og aðeins í skrautlegu skikkjunni þinni skynja ég sjálfa mig. G<r hún er mér hlýrri og kærri en hjarta míns eiginmanns, því dvel ég þar stundum á daginn og drekki atlotum hans. Þú heillaðir hjaita mitt ungur, og hjá þér dvelur það enn, því verða allir, sem umgangast mig, sem ókunnir, framandi menn. Og vegna þín, elsku vinur, er veröldin myrk og köld, og lífið ástar- og auðnu-laust og ógæfan þúsundföld. Á leiðum leikandi æsku líf okkar saman spannst, við taflið hjarta mitt til þín rann, við tefldum um það, og þú vannst. Þú kvaddir mig sæll og kátur. Ég kyssti þig rnjúk og stælt. Þú sigldir að vinna þér frama og frægð. Minn fögnuð gat cnginn mælt. í hug mínum nakin niðar hver nótt, sent ég vaka hlaut, með mynd þína greypta í mína sál og myrkrið að rekkjunaut. Þín ósnortin ung að vænta var ævinnar fegursta skeið, með djúpri, ólgandi ástarþrá, er óx hverja stund, sem ég beið. Og hvenær, sem heyrði ég þig nefndan, í hjarta mér þráin steig, og hrifningin leið um lund mína’ og blóð sem lífþrungin gleðiveig. Þér heloaði ég- störf mín og stundir O O O og stolt rnitt og vaxtaryl. Til þín yfir höfin mín vitund vóx þrjá vetur og meira til. Ég ætlaði þig að þreyja, en þá var ég Hrafni seld. Þá hófst mitt lánvana, langa stríð, og lund mín varð beisk og hrelld. Og þegar ég fall þitt frétti, þá fann ég á sjálfri mér, að æska mín, gleði, vöxtur og von og vilji — allt dó með þér. Og Þorkeli gafst ég grátin. Ég gerði okkur báðurn rangt. Ég vissi að milli mín og hans stóð minning þín ævilangt. Og hug minn af frosti fyllti hvert faðmlag og snertimál. Þér var ég svo bundin, áð annarra ást var árás á mína sál. Ég reyndi sorg mína að svæfa, og sökkva’ henni í dagsins önn. En lífið varð klúrt og kærleikssnautt og kalt eins og jökulfönn. Þig einan ég alltaf þráði, þinn arm og þitt lokkasafn. Mig langar að þurrka að eilífu út af ást minni Þorkel og Hrafn. Ég reyni lífinu að lifa og láta ekki sjást mitt böl, en þó er ævin mér andstyggð ein og án þín sálarkvöl. 300 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.