Heima er bezt - 01.08.1965, Qupperneq 29

Heima er bezt - 01.08.1965, Qupperneq 29
KOSTERVALS Ég er svo varnarlaus, vinur, og veik í daganna styr. En samt hef ég aldrei svikið þig. — Þú átt sál mína, eins og fyr. Væntanlega hafa flestir unglingar á íslandi lesið Gunnlaugssögu ormstungu, eða kynnzt efni hennar í sambandi við nám í íslandssögu. Gunnlaugssaga orms- tungu er Ijúfsár, tregablandin og hrífandi ástarsaga ung- menna, sem tengjast svo traustum böndum ástarinnar á æskuárunum, að jafnvel dauðinn gat ekki rofið þau bönd að fullu. í þessu kvæði er sálarstríði Helgu fögru lýst af skáldlegri innsýn og skilningi. Hver sá unglingur, sem vill kynna sér íslendingasög- urnar, ætti að byrja á að lesa Gunnlaugssögu ormstungu og taka svo Laxdælu og Eyrbyggju næst, og mun þá leiðin rudd inn í furðulönd íslendingasagnanna. En varla verður þekking ungmenna á íslenzku máli traust, nema þeir gefi sér tíma til að lesa gullaldarritin ásamt öðrum bókmenntum. Þá kemur röðin að bréfum frá lesendum þessa þátt- ar, sem beðið hafa um ný eða nýleg dægurlaga-ljóð. Guðlaug í Görðum biður um Ijóð sem heitir Bláu augun þín. Höfundur ljóðsins er Ólafur Gaukur, en Gunnar Þórðarson, sem er í hljómsveitinni Hljómar, hefur gert lagið. BLÁU AUGUN ÞÍN Bláu augun þín blika djúp og skær, lýsa leiðina mína líkt og stjömur tvær. Þó að liggi leið mín um langan veg, aldrei augnanna þinna eldi gleymi ég. Þau minna á fjallavötnin fagurblá fegurð þá einn ég á. Bláu augun þín blika djúp og sltær, lýsa leiðina mína líkt og stjömur tvær. Þá hafa nokkrir beðið um tvö lítil Ijóð, sem voru mjög vinsæl fyrir tíu til tuttugu árum, en hafa nú verið vak- in til lífsins aftur af ágætum hljómsveitum. Þessi Ijóð eru: Kostervalúnn og Kenndu mér að kyssa rétt. Ekki er mér kunnugt um höfunda þessara ljóða. Komdu í Kostervals í kvöld er ég búinn til alls, leggjum hönd í hönd og hefjum svo vináttubönd, dansinn dunar glatt dansa því skulum svo hratt. Ég er þinn og þú ert minn eilífðar engillinn. Káta fagra mey frá Kosterey, kyssir þú mig ekki víst ég dey. Eykst mér ást og þor óðum við hvert spor. — Getum við gifzt í vor. — Að lokum kemur svo hin bljúga bæn umkossakennslu, en sú bæn er víst ekki alveg ný af nálinni. KENNDU MÉR AÐ KYSSA RÉTT Kenndu mér að kyssa rétt og hvernig á að faðma nett. Hvernig á að brosa blítt og blikka undur þýtt. Ég, sem er svo ungur enn af ástarþránni kvelst og brenn, tækifærin fæ ég ei, flestar segja: Nei. Og vona minna fagra fley er flotið upp á sker. Þú sérð að gjörvöll gæfa mín er geymd í hendi þér. Kenndu mér að kyssa rétt og hvernig á að faðma nett. Þú færð í laun minn ástaryl allt, sem ég á til. Fleiri Ijóð birtast ekki að sinni. Stefán Jónsson, Skeiðarvogi 135. BRÉFASKIPTI Agústína Benediktsdóttir, Hrafnagilsstræti 10, Akureyri, óskar eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 15— 17 ára. Sigurður G. Jónsson, Hólabraut 2, Skagaströnd, óskar eftir bréfaskiptum við stúlkur á aldrinum 16—25 ára. Ragnar Árnason, Aðalstræti 20, Akureyri, óskar eftir bréfa- skiptum við stúlkur á aldrinum 14—17 ára. Heima er bezt 301

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.