Heima er bezt - 01.08.1965, Blaðsíða 30

Heima er bezt - 01.08.1965, Blaðsíða 30
ANNAR HLUTI II. Bústýran unga. Vormorgun-sólin skín bjart inn um eldhúsgluggann á æskuheimili Nönnu Harðardóttur. Hún situr við eld- hússborðið og les Morgunblaðið. Sigurrós fósturmóðir hennar er að störfum þarna inni, og þær eru tvær einar. Að undanförnu hefir Nanna leitað eftir atvinnu í borginni við sitt hæfi, en ekki fengið neitt enn sem komið er. Hún rennir augunum yfir auglýsingadálk- inn um atvinnu og nemur brátt staðar við auglýsingu, sem hún les með vaxandi athygli: — Dugleg og ábyggileg stúlka óskast til að sjá um heimili í Reykjavík um óákveðinn tíma í veildndafor- föllum húsmóður. Þrennt fullorðið í heimili. Öll ný- tízku þægindi. Hátt kaup. — Tilboð sendist afgr. Morg- unblaðsins fyrir næstk. sunnudag, merkt: „Bústýra". Nanna leggur frá sér blaðið, lítur til Sigurrósar og segir brosandi: — Mamma, hvernig lízt á það, að ég gerist bústýra? — Hvar, góða mín? — Á fámennu heimili hér í borginni í veikindafor- föllum húsmóður. Það er auglýst eftir stúlku til þess hérna í blaðinu. — Ég veit ekki, svarar Sigurrós, það fer eftir því hvernig heimilið er, en það getur verið ágæt atvinna, séu góð skilyrði fyrir hendi. Ég veit að þú ert vel fær um að taka að þér heimili hvað dugnað og myndarskap snertir. — Mig langar svo mikið til að fara eftir þessari aug- lýsingu, mamma, og reyna þetta. Mér finnst eitthvað svo spennandi við þá tilhugsun að taka að mér heimilis- stjórn, svona allt í einu, þótt heimilisfólkið sé með öllu ókunnugt. — Jæja, góða mín, þú skalt þá/ bara athuga þetta og sjá til, hvernig þér lízt á heimilið. — Já, mamma, ég er ákveðin í að gera það, og ég vil helzt fara sem fyrst, svo að fleiri verði síður komnar á undan mér. En þarf ég ekki að gera eitthvað fyrir þig hérna heima, áður en ég fer? — Nei, Nanna mín, þakka þér fyrir, þú mátt fara þegar þú vilt mín vegna. — Jæja, þá fer ég bara strax. Nanna rís rösklega á fætur, kyssir Sigurrós hlýlega á vangann og gengur létt í spori fram úr eldhúsinu. Stórt og glæsilegt hús Magnúsar hæstaréttarlögmanns stendur á einum fegursta stað borgarinnar, umgirt smekklegum trjá- og blómagarði. Húsið er mjög vand- að að allri gerð, búnaður þess ríkmannlegur og nýtízku- legur. Magnús lögmaður og Klara kona hans eru á miðjum aldri, bæði vel menntuð og glæsileg að vallarsýn. Þau eiga tvö börn, son og dóttur. Snorri sonur þeirra hefir nýlega lokið flugnámi erlendis og gerzt flugstjóri á milli- landaflugi annars íslenzka flugfélagsins. Hann á enn heima hjá foreldrum sínum og dvelur þar í frístundum sínum. Dóttirin Erla er aðeins sextán ára að aldri. Hún hefir lokið gagnfræðaprófi og vinnur nú við afgreiðslu í bókabúð og býr einnig heima. Fyrir skömmu veiktist frú Klara skyndilega, og að rannsókn lokinni töldu læknar, að gera þyrfti á henni allmikinn uppskurð, svo takast mætti að bjarga heilsu hennar, og frúin hefir þegar verið flutt í sjúkrahússvist. Magnús lögmaður hafði leitað víða eftir stúlku til að annast heimilið í forföllum frúarinnar, en ekkert orðið ágengt, og tók síðast þann kostinn að auglýsa í jMorg- unblaðinu og hefir nú fengið tilboð þaðan. Nanna Harðardóttir gengur rösklega til einkaskrif- stofu Magnúsar lögmanns og drepur þar á dyr, en þang- að hafði hann beðið hana að koma til viðtals við sig, eftir að hafa fengið umsókn hennar frá blaðinu. Hann opnar dyrnar sjálfur og býður Nönnu að ganga inn. Þau heilsast og kynna sig. Síðan býður hann Nönnu sæti og sezt einnig sjálfur. Nokkur andartök virðir hann stúlkuna fyrir sér og segir síðan með góðlátlegu brosi: — Ég hefi fengið tilboð yðar um að gerast bústýra hjá mér um óákveðinn tíma. — Já, ef okkur semur. — Eruð þér héðan úr borginni? — Já- 302 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.