Heima er bezt - 01.08.1965, Page 31

Heima er bezt - 01.08.1965, Page 31
— Hvað hafið þér starfað að undanförnu? — Ég hefi verið heima hjá föður mínum og fóstur- móður að undanskildum síðastliðnum vetri, en þá stund- aði ég nám í húsmæðraskóla. — Já, það er svo. Eins og stóð í auglýsingunni erum við nú þrjú í heimili, konan mín er á sjúkrahúsi, sonur minn sem er flugstjóri, dvelur aðeins hér heima hjá okk- ur nokkrum sinnum í mánuði, en dóttir mín er hér alveg til heimilis, svo að mestu leyti eru það við tvö, fegðinin, sem þér þurfið að annast um. Ég vildi láta dóttur mína hætta að vinna úti og annast um heimilið í fjarveru móður sinnar, en hún treysti sér ómögulega til þess, enda óvön allri hússtjórn. Hún er nýlega byrjuð að vinna við afgreiðslustörf hjá móðurbróður sínum og líkar það mjög vel. — Já, svo er það nú kaupgreiðslan, hvað segið þér um hana? — Ég vil að við förum eftir þeim kauptaxta, sem stúlkur hafa almennt við svipuð störf og hér eru fyrir hendi. — Alveg rétt, ég borga yður ráðskonukaup, eins og það gerist hér í borginni. En getið þér tekið við heim- ilisstjórninni núna strax? — Mér er ekkert að vanbúnaði. — Þakka yður fyrir, það er ágætt. Nú vil ég sýna yður húsið, viljið þér gera svo vel að fylgja mér. — Já, þakka yður fyrir. Þau rísa bæði á fætur og ganga fram úr skrifstofunni, og Magnús lögmaður sýnir nýju bústýrunni hið glæsi- lega heimili sitt. Nanna er alin upp á fallegu ríkmann- legu heimili, en slíkan íburð og skraut sem hér gefur að líta, hefir hún aldrei áður séð. Það verður óefað tölu- verður vandi að annast um þetta heimili, en þó hlakkar hún til að reyna það. Henni fellur tilvonandi húsbóndi sinn vel í geð. Hann er mjög prúðmannlegur í fram- komu og ljúfur og hýr í viðmóti, og vekur þegar við fyrstu kynni virðingu og traust. Magnús lögmaður hefir nú sýnt nýju bústýrunni heimili sitt og segir með sama góðlátlega brosinu og áður: — Jæja, hvernig lízt yður svo á starfsskilyrðin hér hjá okkur? — Mjög vel, þetta er allt upp á það fullkomnasta sem hægt er að hugsa sér. — Ég vona þá að þér getið starfað hér ánægðar. — Já, það vona ég, og gert yður til hæfis. — Yður mun takast það. Og ætlið þér þá að gera svo vel að flytja yður hingað í dag? — Já, ég fer heim núna strax og sæki farangur minn. — Ágætt. — Verið þér sælir á meðan. — Sælar. Nanna hraðar sér þegar á brott og gengur rösklega heim á leið. En Magnús lögmaður heldur glaður til skrifstofu sinnar eftir fyrstu kynnin við nýju bústýr- una sína. Honum geðjast mjög vel þessi unga fallega stúlka. Dagur er liðinn að kvöldi. Nanna er flutt á heimili Magnúsar hæstaréttarlögmanns og tekin við störfum þar. Hún hefir framreitt kvöldverð og borið á borð fyrir tvo í vistlegri borðstofu inn af eldhúsinu, og bíður þess nú með örlítið kvíðablandinni eftirvæntingu, að feðginin komi og snæði fyrstu máltíðina, sem hún hefir búið þeim. Klukkan slær sjö. Magnús lögmaður gengur stund- víslega til borðstofu en Erla dóttir hans örskömmu síð- ar. Hún hefir enn ekki séð nýju bústýruna, en nú mæt- ast þær í borðstofunni. Erla heilsar Nönnu hlýtt og glaðlega og kynnir sig fyrir henni. Erla er fríð og barns- leg í útliti og hefir sama ljúfa og þýða viðmótið og faðir hennar. Ungu stúlkurnar athuga vandlega hvor aðra í laumi, og þeim lízt þegar prýðisvel hvorri á aðra. Erlu finnst Nanna vera miklu líkari systur en húsmóður á heimilinu, og þannig hefir hún líka óskað sér að nýja bústýran yrði. Magnús lögmaður lítur yfir matborðið og brosir ánægjulega. Þar er allt með myndarbrag. En síðan snýr hann sér að Nönnu og segir: — Þér hafið ekki lagt diska á borðið nema fyrir tvo, en við erum þrjú hér í kvöld. — Ég ætlaði að borða á eftir frammi í eldhúsinu, svarar Nanna og brosir örlítið vandræðalega. — Fjölskyldan hér er vön að snæða öll við sama borð, og eins vil ég að við þrjú gerum nú í kvöld og fram- vegis. Eruð þér ekki samþykkar því? — Jú, ég skal fúslega hafa það, eins og þér óskið. Nanna sækir því næst mataráhöld og leggur þau á borð- ið. Síðan setjast þau öll saman að snæðingi. Kvöldverð- urinn er mjög ljúffengur og smekklega framreiddur, og feðginin neyta hans með mikilli ánægju. Þau hafa bæði borðað „úti“ að undanförnu og kunnað því miður vel, enda vön mjög fullkomnu heimilishaldi, og nú finnst þeim báðum indælt að vera aftur heima. Magnús Iögmaður heldur uppi glaðværum sam- ræðum við matborðið og beinir máli sínu oft til Nönnu, hann vill að hún sé eins og ein af fjölskyldu hans. Að máltíðinni lokinni færir Magnús sig inn í setu- stofuna og hlustar þar á útvarpið. En Erla tekur sér sæti frammi í eldhúsi hjá Nönnu, sem þegar er byrjuð á uppþvottinum af kvöldverðarborðinu. Erla er alveg óvön að taka nokkurn þátt í uppþvottinum með móður sinni, og hún hefir engan áhuga haft á slíku, en nú Iang- ar hana svo mikið til þess að taka þátt í starfinu með þessari ungu stúlku og hjálpa henni. Erla rís því á fætur og býður Nönnu að þerra fyrir hana diskana. Nanna tekur því vel, hún heldur að unga heimasætan sé vön slíku, og þær hjálpast að við uppþvottinn. í fyrstu er þögn. En brátt lítur Erla brosandi til Nönnu og segir: — Er pabbi búinn að vísa þér á einkaherbergi, þar sem þú átt að sofa? — Já, hann er búinn að því. Heima er bezt 303

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.