Heima er bezt - 01.04.1967, Qupperneq 10

Heima er bezt - 01.04.1967, Qupperneq 10
b) Narfi Jónsson skírður 15. júlí 1731. Vottar: Árni Narfason og Anna Magnúsdóttir. — Líkur eru til þess að sá Narfi hafi risið á legg og ekki látið sér allt fyrir brjósti brenna. Nánar að því vikið við þáttarlok. c) Rannveig Jónsdóttir skírð 9. sept. 1732. Vottar: Símon Jónsson og Anna Magnúsdóttir. — Rannveig giftist ekki, var vinnukona hjá systur sinni og mági í Dilksnesi og andaðist þar. d) Margrét Jónsdóttir skírð 2. marz 1735 í Byggðar- holti. e) Þórarinn Jónsson skírður 20. sept. 1736 í Byggð- arholti „ekki fullburða“. Vottar: Gísli Þorláksson og Anna Magnúsdóttir. f) Guðrún Jónsdóttir skírð 1. nóvember 1738. Vott- ar: Finnur og Margrét. — Sennilega sú Guðrún Jóns- dóttir, sem átti Jón bónda á Felli Kolbeinsson, Túnis- sonar. Hún varð holdsveik. — Dætur þeirra: 1) Guðrún, kölluð „lögbók“, hana átti Jón „kórgali“ Steinsson. 2) Helga kona Þorvarðar bónda á Hofsnesi. 3) Gróa, giftist ekki; við manntal 1801 var hún hjá móðurbróð- ur sínum á Felli. g) Sigríður Jónsdóttir skírð 5. október 1740 í Byggðarholti. „Var enginn heima fær að flytja barn það.“ Vottar: Gísli Þorláksson og Anna. — Hún dó 19. s. m. h) Þórarinn Jónsson skírður 31. október 1741 í Byggðarholti. Vottar: Gísli Þorláksson og Snjófríður Pálsdóttir. „Astantes: Þorbjörn og Guðrún Jónsdóttir, í mesta stormi.“ — Á Felli í Suðursveit bjó Þórarinn Jónsson um aldamótin 1800. Kona hans hét Ragnhildur Sigurðardóttir. i) Jón Jónsson frá Byggðarholti skírður 14. septem- ber 1745. Vottar: Konráð og Þórunn Högnadóttir. Hvað um Geirlaugu í Firði? Það er deginum ljósara, að ýmislegt fer milli mála í munnmælasögunni um vinnukonuna í Firði, Geirlaugu Þórarinsdóttur, sem sögð er systir Narfa í Hoffelli. Benda verður á rugling tímatals, þegar sagt er að um 1800 búi „bóndi sá í Syðra-Firði í Lóni, er Páll hét.“ — Þar bjó fyrir og eftir miðja öldina Páll Snjólfsson hrepp- stjóri, hann andaðist 1767, háaldraður maður. Næsti ábúandi jarðarinnar var Árni sonur hans, er dó á eld- móðuárunum. Eftir daga Áma bjó þar lengi sonur hans er Snjólfur hét. Samkvæmt heimildum, sem völ er á, um Jón Þórar- insson og Steinunni Narfadóttur, bólar hvergi á því, að þau hafi átt dóttur Geirlaugu að nafni. — Ef gengið er út frá, að Narfi í Hoffelli sé sá, Narfi Jónsson, sem skírður var í Stafafellssókn 15. júlí 1731, verður ekki auðhlaupið að því að fella þær flísar saman, að það hafi verið systir hans, vinnukona í Firði, sem tókst á við blöðruselsbrimilinn. Auðvitað gætu þau, Jón og Steinunn, annað eða bæði, verið tvígift, og Geirlaug elzt hálfsystkina sinna. Eftir tímatali fengist það staðizt, að hún hafi verið vinnu- kona hjá Páli í Firði. Og stutt er til skýringar á brengli föðurnafns, ef afi hennar hét Þórarinn, í munnmæla- sögnum dregur lítið, þó að einum ættlið sé sleppt! Hér reynist annað þyngra á metunum: í munnmæl- unum örlar á því, að uppruna Narfa í Hoffelli sé að leita í Lón, — og ekki kemur óvart, þó að þar í sveit lægju rætur í Geirlaugar nafn. Þórarinn Narfason. Það þykir sennilega varla tíðindum sæta, þó að þau Jón Þórarinsson og Steinunn Narfadóttir eignuðust son er hlaut nafn afa síns, Narfa í Hvammi. Og heldur haldlítið að gefa í skyn, að sá piltur yrði nafnkunnur sem ráðsmaður Jóns Helgasonar sýslumanns. Það er viss eftirvænting falin í því, að sjá til hvaða þroska barn kann að komast. Ekki er alltaf byr í báð- um skautum. Og þó að ættarsögnin sé stundum hjúpuð óræðri dul, er bakgrunnur hennar jafnan mannleg ör- lög í blæbrigðum. En munnmæli eru oft á villigötum — og kemur eng- um á óvænt. Þannig er það rangt, að Sigurður Arason bóndi á Reynivöllum væri útaf Narfa ráðsmanni sýslu- mannsins. En Sigurður á Reynivöllum var af öðrum Narfa kominn, — Narfi bóndi í Hvammi var langafi hans. — Hér skal lagt lóð í vogarskál svo að metið verði, hvort Narfi í Hoffelli sé annað og meira en heilaspuni þeirra, sem sögðu af honum sögur: Vorið 1786 var fermdur í Bjarnaneskirkju 15 ára gamall piltur, Þórarinn að nafni. Hann var Narfason. í sjö ár hafði fjárhaldsmaður lagt rækt við uppeldi drengsins, agað hann og kennt honum kristindóm. Við manntal 1801 var Þórarinn Narfason enn á bernskuheimili sínu og fékk loflegan vitnisburð hjá sálusorgaranum, frómur skýrleiksmaður. Ekki er kunn- ugt hverjir voru foreldrar hans. — Telja verður jaðra við vissu, að hann hafi verið sonur Narfa í Hoffelli. Sé rétt til getið, að Narfi væri sonur Jóns Þórarins- sonar og Steinunnar Narfadóttur, er ekki ósennilegt, að hann hafi ungur komizt til Þórarins Símonarsonar bónda í Bæ. Þeir voru systkinasynir, og Þórarinn vel metinn í sveit sinni. Það er eigi langsótt, þótt Narfi komi upp nafni hans. Þórarinn Narfason ólst upp í Dilksnesi hjá Ásgrími ísleifssyni og þeim hjónum. Engin tilviljun sem augljóst verður ef að er gáð. Hér ber allt að sama brunni: Eins og ættarþræðir eru raktir í þessum þætti, var húsmóðirin í Dilksnesi, Sigríður Jónsdóttir, sú forn- fróða kona, föðursystir Þórarins Narfasonar. 122 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.