Heima er bezt - 01.04.1967, Síða 15

Heima er bezt - 01.04.1967, Síða 15
Frú Guðrun Henriksdóttir, Austurgötu 7, Hafnarfirði. hafði kynnzt föður mínum, séra Jóni á Stafafelli, og föður Stefáns félaga míns, Jóni Bergssyni bónda og bátaformanni í Krossalandi. Við þessir strákar að aust- an vorum oft boðnir á heimili Hansens hjónanna. Dreng- ir þeirra höfðu gengið í Flensborgarskóla, og þar höfð- um við kynnzt þeim. Þeir voru góðir félagar. Við hrif- umst af hinum hlýju viðtökum, sem segja mátti um að væru eins og í foreldrahúsum, hjá þessum góðu hjónurn og börnum þeirra. Kurteisi var framúrskarandi og allt ríkmannlegra en við höfðurn áður vanizt. Við spiluðum við systkinin og fórum í leiki, þótt við fyndum til feimni þarna fyrst í stað. Synirnir urðu svo æskuvinir okkar, og sú vinátta entist til fullorðinsáranna, einkum við yngri soninn, Jörgen. Hann giftist ágætis konu, skagfirzkri, Ingu Skúladóttur frá Ytra-Vatni. Þau bjuggu lengi í Reykjavík og ólu þar upp börn sín mörg og mannvænleg. Jörgen Hansen var lengi skrifstofu- stjóri Happdrættis Háskólans, maður, sem ekki mátti vamm sitt vita, drengur góður. Fáar stúlkur voru í skólum landsins urn aldamótin, nema í barnaskólunum. Það voru fyrst og fremst karl- mennirnir, sem til náms fóru, t. d. í gagnfræðaskólana. Hér verður þó einnar konu getið, sem var með okkur á Flensborg. Hún var þó ekki á skólanum, heldur aðstoð- arstúlka ráðskonunnar, því heimilið var nokkuð stórt. Hún hét Guðrún Hinriksdóttir, systir Jóns Hinriks- sonar kaupfélagsstjóra í Vestmannaeyjum við kaupfé- lagið Fram. Hún var á líku aldursskeiði og við skóla- piltarnir. Okkur mun öllum hafa litizt vel á hana, og var það engum láandi. En án hennar fórum við allir heim til hinna dreifðu byggða. I ættbyggð sinni undi hún bezt og giftist mætum Hafnfirðingi, Auðunni Níelssyni. Mun hafa verið líkt með þeim og fyrstu ís- lendingum, sem reistu hér byggðir og bú, og undu svo glaðir við sitt. Þetta var tápmikið fólk af traustum ættum. Nú eru börn þessara hjóna í fremstu röðum at- hafnamanna við fjörðinn fagra og gera út bátana Auð- unn og Guðrúnu, sem bera nöfn foreldranna. Þegar út- varpið glymur og segir frá síldaraflanum austan við land, þar með aflaskipinu góða, Guðrúnu GK 37, 235 lesta bát, brosir gamall Flensborgari, sem stundum var beðinn að fylgja Gunnu Hinriks heim að loknum kvöld- verði, í myrkri um forugar götur og grýtta troðninga. Sá hefur nú nýlega mætt dóttur hennar á gljáfægða heimilisbílnum, skipstjórafrúarinnar á Austurgötu 7. Já, tvenna munum við tímana. Það var að koma vor. í apríl 1903 stóð burtfararpróf- ið yfir hjá okkur, sem dvalið höfðurn hér tveggja vetra tíma í firðinum friðsæla, þar sem festi varla snjó. Mild (Framhald á bls. 130). Jens Guðmundsson, Hlið i Garðaheppi; útskrifaður frá Flensborg vorið 1903. Heima er bezt 127

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.