Heima er bezt - 01.04.1967, Qupperneq 17

Heima er bezt - 01.04.1967, Qupperneq 17
Eyjafjarðarár. Um þennan atburð orti Magnús Stef- ánsson kvæðið: Lá við slysi. Þar er ein vísan svona: „Merin komst í miðja ána, missti sunds og dó um leið. í Jesúnafni ég hélt í hána, hrossinu dauðu í kafi reið.“ Hér kemur svo umsögn Steinþórs Leóssonar: „Það mun hafa verið rétt fyrir sláttinn 1907, að Magnús á Grund sendi hóp af fólki fram í Guðrúnar- staði til að taka upp svörð. Ekki man ég hvað fólkið var margt, sem fór til þessarar svarðartekju, en það hef- ur minnsta kosti verið 7 manns. Það höfðu gengið hlý- indi, og Eyjafjarðará var ekki talin reið á neinu vaði, svo fólkið fór allt á Guðrúnarstaðaferjunni austur yfir ána, en sundlagði hestana. Fólkið vann við svarðartekj- una allan daginn. Veðrið var óvenju hlýtt: glaðasólskin og hiti. Áin óx með ólíkindum seinni hluta dagsins. En þegar leið að heimferð, stakk einhver af piltunum upp á því að nú skyldu þeir sundríða ána heimleiðis, þeir væri bæði blautir og forugir, og ekki væri hætt við að setti að mönnum þó þeir vöknuðu í ánni. Þeir voru strax til með það, allir nema einn unglingspiltur: Trausti Ein- arsson frá Rauðhúsum. Hann sagðist fara sömu leið og um morguninn, það kæmi ekki til mála að hann færi að sundríða. Þar skildu leiðir. Trausti og stúlkurnar fóru á ferjunni, en hinir piltarnir riðu út með ánni að austan, því þeim kom saman urn að sundleggja í Ármótahyln- um, en hann er suður og yfir frá Rútsstöðum. Ég var staddur á hólnum utan við bæinn þegar ég sá þessa lest koma sunnan árbakkann. Ég furðaði mig á hverjir þetta gætu verið, því hver heilvitamaður gat séð að áin var ekki reið á neinu vaði, en auðséð var að þeir ætluðu sér vestur yfir. Þó þekkti ég fljótt að þetta mundi vera húskarlar Magnúsar á Grund. Ég get ekki munað, hvort mennirnir voru 4 eða 5, og man ekki fyrir vist nema um fjóra. Það voru Jón Tómasson, Kristján Jósefsson, Aðalsteinn Magnússon og Magnús Stefáns- son. Þeir stönzuðu andartak á bakkanum áður en þeir lögðu út í. Landtaka var góð að vestan, þar sem þeir stefndu á land rétt sunnan við ármótin (Skjóldalsá), en þeir fóru bara heldur norðarlega út í, þeir reiknuðu ekki með því að straumþunginn væri eins mikill og hann reyndist. Jón Tómasson hafði forystuna, og lagði á undan út í ána, og svo hinir allir strax á eftir. Hrossin voru öll hraðsynd og grunnsynd, nema gráa hryssan, sem Magnús Stefánsson reið. Hún dróst strax aftur úr, og var svo djúpsynd að aðeins nasirnar voru upp úr. Hestur Jóns skilaði sér fljótt og vel yfir og tók land, þar sem þeir höfðu ætlað sér, en hin hrossin hrakti lengra út eftir, og lentu í straumröstinni, sem myndast þar, sem Skjóldalsáin beljar fram. Þau voru öll komin nærri vesturbakkanum, en þá allt í einu sökk Grána, sem Magnús reið á, og allt fór sem snöggvast á bólakaf bæði meri og maður. Magnús hefur sjálfsagt verið óvan- ur að sundríða straumvatn og beitt hryssunni, ósjálfrátt of mikið í strauminn þegar hann fann hvað hana hrakti mikið. Þá hefur straumröstin skolhð fyrir nasimar á henni og hún kafnað. Þarna hagaði svo til að rétt norð- an við ármótin féll megnið af ánni til austurs og upp að bakka rétt utan og neðan við túnið á Rútsstöðum, en vestan til í ánni er stór hólmi. Þessi hólmi er svo hár að hann fer aldrei í kaf, þó áin fari í foráttu, en vestan við hólmann rennur venjulega dálítil kvísl úr henni. í suð- ur frá hólmanum gekk langur eyrartangi. En nú var eyrin öll í kafi og kvíslin vestan við hann víðast á sund. Þegar ég sá manninn og hrossið hverfa í ána, hljóp ég ofan að ánni. Ég fór að kasta af mér fötum því mér datt í hug að kannske væri hægt að bjarga manninum. En þá sá ég allt í einu á hrossfót upp úr ánni, rétt suður und- an hólmanum. Svo heppilega hafði til tekizt að hross- skrokkinn bar upp á eyraroddan og nú veltist hann út eftir eyrinni. Ég sá fljótt að Magnús hélt sér í hross- skrokkinn, en þegar hann náði niðri sleppti hann Gránu og ætlaði að vaða beint af augum til félaga sinna, sem voru nú að koma á vettvang á vesturbakkanum. Það var auðséð að Magnús var mjög ringlaður eftir dýfuna, hann hringsnerist og fálmaði upp í höfuðið á sér. Vatnið náði honum næstum í mitti, fyrst þegar hann gat staðið upp. Straumurinn var svo þungur að hann byltist hvað eftir annað niður. Félagar hans kölluðu til hans og báðu hann að vera rólegan, sögðu að þeir ætluðu að sækja hann, og skyldi hann vaða út í hólmann og bíða þar. Svo væri þarna sundmaður tilbúinn hinum megin við ána, ef með þyrfti. Magnús áttaði sig furðu fljótt, og hætti við að reyna að vaða vestur yfir kvíshna, sem var óðsmannsæði ósyndum manni. Grundarpiltar riðu norð- ur með kvíslinni og fundu vað, þar sem ekki var á sund, og lcomu með hest handa Magnúsi og gekk allt vel úr því.“ Hólmgeir Þorsteinsson. BREFASKIPTI Ágústina Jónsdóttir, Urðarvegi 48, Box 10, Vestmannaeyj- um, óskar eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 18—20 ára. Mynd fylgi. Þóra Vilborg Vignisdóttir, Brúarlandi, Fellahreppi, Norð- ur-Múlasýslu, óskar eftir bréfaskiptum við pilta á aldrinum 17—19 ára. Æskilegt að mynd fylgi. Ragna Þórarinsdóttir, Hólabraut 19, Akureyri, óskar eftir bréfaskiptum við pilta eða stúlkur á aldrinum 16—18 ára. Ragnheiður Ólafsdóttir, Garðsstöðum, Ögurhreppi, Norð- ur-ísafjarðarsýslu, óskar eftir bréfaskiptum við pilt á aldrin- um 18—20 ára. Æskilegt að mynd fylgi fyrsta bréfi. Kristin V. Þórðardóttir, Hamrahlíð 7, Gruntlarfirði, óskar eftir bréfaskiptum við pilt á aldrinum 14—16 ára. Maria Kristjánsdóttir, Sólheimum, Grímsnesi, Árnessýslu, óskar eftir bréfaskiptum við stúlkur á aldrinum 24—30 ára. Mynd fylgi fyrsta bréfi. Heima er bezt 129

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.