Heima er bezt - 01.04.1967, Side 23

Heima er bezt - 01.04.1967, Side 23
Banabrekkur. Vitað er einnig að tveir kirkjugarðar eru í Sælingsdalstungu. Sér enn allglöggt fyrir síðari kirkju- garðinum og kirkjurústunum. Snorri goði lét reisa kirkju að Sælingsdalstungu á fyrsta áratugi elleftu aldar. Um flutning kirkjunnar og uppgröft beina þeirra Snorra goða og Barkar digra, má lesa í síðasta kapitula Eyrbyggju. En tilefni þessa kirkjuflutnings taldi þjóðtrúin vera atburði þá, er segir frá í sögunni um Tungustapa.“ Sagan um álfakirkjuna í Tungustapa er ein merki- legasta huldufólkssaga í íslenzkum þjóðsögum. Hún er í I. bindi af þjóðsögum Jóns Árnasonar og er þar skráð eftir handriti sr. Jóns Þorleifssonar, er síðast var prestur á Ólafsvöllum á Skeiðum. í upphafi segir sagan í þjóðsögum Jóns Árnasonar frá flutningi kirkjunnar í Sælingstungu og uppgreftri beinanna eins og sagt er frá í Eyrbyggju, en síðar segir svo: Sagan í Eyrbyggju segir ekkert um, hvers vegna kirkjan var flutt úr stað, en á Vesturlandi gengur saga um tilefni til flutningsins. Er þá komið að álfasögunni Tungustapi, sem hér verður rakin og endursögð að nokkru. í gamla daga, fyrir mörg hundruð árum, bjó ríkur bóndi í Sælingsdalstungu. Hann átti nokkur börn og eru af þeim tilnefndir tveir synir. Ekki vita menn, hvað þeir hétu og köllum við þá Arnór og Svein. Þeir voru báðir efnilegir menn en mjög ólíkir. Árnór var hreysti- maður og mikill fyrir sér. Sveinn var hægur og spakur og enginn hreystimaður. Eftir því voru þeir mjög ólíkir í lund. Arnór var gleðimaður og gaf sig að leikjum með sveinum þar í dalnum, og mæltu þeir oft mót með sér við stapa þann, er stendur niður við ána, andspænis bæn- um í Tungu, sem kallaður er Tungustapi. Var það skemmtun þeirra á vetrum, að renna sér eftir harðfenni niður af stapanum, því að hann er mjög hár, og niður á eyrarnar í kring. Gekk oft mikið á með köll og há- reysti kringum Tungustapa í rökkrunum og var Árnór þar oftast fremstur í flokki. Sjaldan var Sveinn þar með Gekk hann þá oftast í kirkju, er aðrir piltar fóru til leika. Oft fór hann Iíka einförum, og dvaldi þá tíðum niður við Tungustapa. Var það mál manna, að hann hefði mök við álfafólk, sem bjó í stapanum. Og nokkuð var það, að hverja nýjársnótt hvarf hann, svo enginn vissi, hvað af honum varð. Það var eitt nýjárskvöld, að Sveinn hvarf að vanda. Lengdist mönnum venju fremur eftir honum. Kvaðst Arnór mundi leita hans, og sagði hann mundi dvelja hjá álfum niður í Stapa. Gengur Arnór allt til þess hann kemur að stapanum. Veður var dimmt mjög. Veit hann ekld fyrr til, en hann sér stapann opnast á þá hlið, er að bænum snýr, og ljóma þar ótal Ijósaraðir. Heyrir hann kveða við indælan söng, og skilur hann af þessu, að á messu muni standa hjá álfunum í stapanum. Er prestur fagurlega skrýddur fyrir altari, og eru marg- settar ljósaraðir til beggja hliða. Gengur hann þá inn í dyrnar og sér hvar Sveinn bróðir hans krýpur fyrir gráðunni og er klerkur að leggja hendur á höfuð hon- um með einhverjum ummælum. Það hyggur Arnór að verið sé að vígja hann einhverri vígslu, því að margir skrýddir menn stóðu umhverfis. Kallar hann þá og seg- ir: „Sveinn, kom þú, — líf þitt hggur við.“ Hrekkur Sveinn þá við, stendur upp og lítur utan eftir. Vill hann þá hlaupa á móti bróður sínum. En í því kallar sá, er við altarið var og segir: „Læsið kirkjudyrum og hegnið hinum mennska manni, er raskar friði vorum. En þú Sveinn, hlýtur við oss að skilja, og er bróðir þinn sök í því. En fyrir því, að þú stóðst upp í því skyni að ganga til bróður þíns, og „mattiru hans ósvífna kall meira en heilaga vígslu, skalt þú niður hníga örend- ur næsta sinn, er þú sérð mig hér í þessum skrúða.“ Sá Arnór þá, að hinir skrýddu menn hófu Svein á loft og hvarf hann upp um steinhvelfing þá, er yfir kirkjunni var. Kveður þá við dynjandi klukknahljóð, og í því heyrist þys mikill inni. Hleypur hver um annan þveran til dyra. Arnór hleypur þá sem hann mátti út í myrkrið heim á leið, og heyrir álfareiðina, þysið og hófasparkið á eftir sér. Heyrir hann, að einn úr flokki þeirra, er fremstir ríða, kveður við raust og segir: „Ríðum og ríðum, það rökkvar í hlíðum; ærum og færum hinn arna af vegi, svo að hann eigi sjái sól á degi, sól á næsta degi.“ Þusti flokkurinn milli hans og bæjarins, svo að hann varð að hörfa undan. Þegar hann var kominn í brekkur nokkrar suður frá bænum og austur frá stapanum, gafst hann upp og hneig máttvana niður. Reið þá allur flokk- urinn á hann ofan, og lá hann þar eftir nær dauða en lífi. En það er af Sveini að segja, að hann kom heim eftir vökulok. Var hann daufur mjög og vildi engum segja um burtveru sína, en kvað nauðsyn að leita Arnórs. Var hans leitað alla nóttina, og fannst hann ekki fyrr en bóndi frá Laugum, er kom til óttusöngs að Tungu, gekk fram á hann þar í brekkunni, sem hann lá. Var Arnór þá með rænu en mjög aðfram kominn. Sagði hann bónda, hvernig farið hafði um nóttina, eins og áð- ur er frá sagt. Ekki kvað hann tjá að flytja sig til bæjar, því að hann yrði ekki lífgaður. Andaðist hann þar í brekkunni, og heita það síðan Banabrekkur. Aldrei varð Sveinn samur eftir þennan viðburð, og hneigðist skap hans enn meira til alvöru og þunglyndis, en aldrei vissu menn hann koma nærri Álfastapa eftir þetta, og aldrei sást hann nokkru sinni horfa í þá átt, sem stapinn er. Gjörðist hann munkur og gekk í klaust- ur á Helgafelli. Varð hann svo lærður maður, að enginn bræðra komst til jafns við hann, og svo söng hann Heima er bezt 135

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.