Heima er bezt - 01.04.1967, Page 32

Heima er bezt - 01.04.1967, Page 32
loforð mitt við þig. Þú baðst mig um daginn að láta þig vita næst, þegar samkoma yrði hjá okkur í Kristi- legum skólasamtökum, og nú er ákveðið að samkoma verði í kvöld á sama stað og tíma og síðast. Á ég ekki að koma hér við og taka þig með mér þangað? — Þakka þér fyrir, Hlynur, stamar Linda lágt og með fátkenndri röddu. — En ég get ekki komið með þér í kvöld. — Er nokkuð að hér á heimilinu? — Nei, en ég er búin að lofa að fara annað. — Jæja, það er svo. Hlynur lítur dálítið undrandi á Lindu, og nú er það hann sem roðnar ósjálfrátt. — Þá nær þetta ekki lengra, segir hann breyttum rómi. — Vertu sæl, Linda mín. — Sæil, Hlynur, svarar Linda svo lágt, að hann rétt heyrir það um ieið og hann snýr á brott. Jæja, svo Linda ætlar annað í kvöld en fylgja honum. Hann hélt að hún þekkti fáa hér í borginni, sem hún gæti eytt kvöldinu hjá utan heimilisins. En um það þýðir ekki að fást, hann hefur orðið of seinn að bjóða henni samfylgd sína að þessu sinni, en vonandi tekst betur til næst. Hann hefur ekki hitt Lindu síðan í kaffiboðinu hjá Sigurdísi frænku sinni þar til nú. En þá fékk hann svo góðar fréttir af líðan Lindu á heimili Gyðu og Eiríks, að hann hefur verið óumræðilega sæll og öruggur síðan, hvað Lindu snerti, og ekki komið til hugar, að nokkur breyting yrði þar á. Og vonandi hafa viðhorf Lindu ekki breytzt í neikvæða átt, þótt honum fyndist hún eitthvað öðruvísi, en hann átti von á í þetta sinn, en ekki þarf það að vera neitt athugavert. Og Hlynur er bjartsýnn þrátt fyrir vonbrigðin, og hraðar sér yfir götuna heim aftur. En Linda stendur eins og í leiðslu í opnum húsdyr- unum og horfir á eftir Hlyni. Hvernig getur hún tek- ið nokkuð fram yfir það að fylgja honum? Hvernig gat hún sagt honum, að hún ætlaði annað í kvöld! O, hve hana langar til að hlaupa á eftir honum yfir götuna og segja honum, að hún ætli að fylgja honum í kvöld og engum öðrum. En þetta væri ef til vill of kjánalegt að haga sér þannig, hugsar hún og andvarpar af djúp- um sársauka. í kvöld er henni boðið út með Drífu í partí hjá kunn- ingjum Drífu, sem Linda hefir aldrei séð en Drífa hrós- ar mjög mikið, og Linda hefir lofað að fara þangað. En því ekki að hætta við það og fara með Hlyni, hvað sem tautar? — Hlynur, elsku Hlynur! hrópar hjarta hennar í þögninni, um leið og hann hverfur inn í húsið hinu- megin við götuna, og dyrnar lokast að baki hans. — Linda mín, ertu þarna frammi? kallar frú Gyða innan úr eldhúsinu, hún hefir séð gestinn fara og veit þá, að Linda er búin að afgreiða hann, en hana vantar nú aðstoð Lindu. — Já, ég er að koma, svarar Linda og lætur hurðina falla að stöfum og gengur síðan inn í eldhúsið og tek- ur þar til starfa eins og í hálfgerðri leiðslu. Eiríkur og börnin koma brátt heim til hádegisverðar, og heimilis- fólkið setzt að snæðingi. En Linda hefir litla matarlyst að þessu sinni. Hún stríðir við heitar og sárar tilfinn- ingar í ungu hjarta, sem tvö andstæð öfl togast fast á um, og hana langar helzt af öllu til að gráta, en hér er hvorki staður né stund til þess að gefa tilfinningunum lausan tauminn. Og matartíminn líður. Frú Gyða og Linda eru orðnar tvær einar í eldhús- inu og byrjaðar á hádegis uppþvottinum, en það starf eru þær vanar að vinna sameiginlega. Það sem af er dagsins hefir frú Gyðu ekki gefizt tóm til að ræða við Lindu einslega í ró og næði, en nú finnst henni tilval- ið að hefja máls á því, sem þeim hjónunum fór á milli síðastliðið kvöld og hún tók í sinn hlut að færa í tal við Lindu. Frú Gyða hefir veitt því athygli, að Linda er óvenju- lega döpur og eins og utan við sig, síðan Hlynur heim- sótti hana um hádegisbilið, en hún hefir ekki spurt Lindu neitt um erindi frænda síns, það hefir sjálfsagt verið við Lindu eina, hugsar hún, en þau eru æskuvin- ir heiman úr Fagradal og geta því átt ýms erindi hvort við annað, sem öðrum sé ekki ætlað að blanda sér í. Frú Gyða er þess fullviss, að kunningsskapur við Hlyn hefir ekki nema gott eitt í för með sér, því að hann er sérstakur fyrirmyndarpiltur og vill Lindu áreiðanlega allt hið bezta. Frú Gyða lítur móðurlega til Lindu og segir hlýrri röddu: — Hann Eiríkur var að spyrja um þig í gærkvöld, Linda mín, hann saknar þess að þú skulir vera hætt að sækja kennsluna til hans á kvöldin eins og áður. Linda roðnar eldsnöggt og lítur niður fyrir sig og kemur engu orði upp í svip. Hún fyrirverður sig mjög fyrir framkomu sína nú upp á síðkastið gagnvart þess- um góða kennara, sem vildi fræða hana að hennar eigin ósk, og það ókeypis, og hún hafði bæði gagn og yndi af að læra hjá honum. Henni verður þungt um mál, en einhverju verður hún að svara, og loks segir hún lágt og auðmjúklega: — Ég bið afsökunar, frú Gyða. Ég hefi orðið heldur lengur úti á kvöldin, en ég ætlaði upphaflega, og því vanrækt námið hjá Eiríki að undanförnu, og ég iðrast þess nú. — Já, vina mín, það vill stundum fara þannig, að við gerum annað en það, sem upphaflega var ásetningur okkar, og ef til vill mætum við ýmsu því, sem við reiknuðum ekki með í upphafi. En það er eins og ég sagði við þig, þegar þú baðst mig um leyfi að mega fara í bíó, að vitanlega hefi ég ekkert vald til þess að skerða frelsi þitt á neinn hátt, en ég vil að þú sért í góðum og heilbrigðum félagsskap. Það eru ýmsar hætt- ur og freistingar hér í fjölmenninu, sem þið dalabömin hafið ekki komizt í kynni við á æskustöðvum, og mér finnst það vera heilög skylda okkar sem eldri erum og reyndari, að leiðbeina æskunni af einlægni og kærleika, og þú mátt ekki misskilja mig, vina mín, þótt ég færi þetta í tal við þig, ég vil þér ekki nema það allra bezta. 144 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.