Heima er bezt - 01.04.1967, Page 34

Heima er bezt - 01.04.1967, Page 34
sín sem bezt af hendi, og henni tekst það með prýði. Drífa hringir til hennar daglega og vill í fyrstu fá hana með sér út á kvöldin að venju. En Linda segir henni strax ákveðið, að hún fari ekki út á kvöldin, meðan henni sé trúað fyrir heimilinu í fjarveru húsmóður sinnar, og nú getur hún verið nógu sjálfstæð gagnvart Drífu. Og Drífa sættir sig furðu vel við þetta. Hún veit að frúin verður ekki marga daga að heiman, sé allt með eðlilegum hætti eftir barnsburð, og það segir Linda að sé hjá húsmóður sinni. Og þegar frúin er komin heim aftur, skal hún ósvikið bæta bæði sjálfri sér og Lindu upp þessi kvöld, sem þær hafa ekki getað skemmt sér saman. Og senn er ráðningartími Lindu á enda, og þá.... Eiríkur færir konu sinni þær góðu fréttir á sjúkra- húsið, að Linda annist heimilið af mestu snilld og sé börnunum mjög góð, hún fari aldrei neitt að heiman á kvöldin, en komi í kennslustundirnar til hans, þegar ástæður leyfi og sækist námið vel að vanda. Frú Gyða gleðst innilega við þessar góðu fréttir og vonar, að þetta haldi áfram, þótt hún komi heim aftur. — En Eva var ekki lengi í Paradís. Frú Gyða kemur heim með son sinn að liðnum venjulegum tíma sængurkvenna á fæðingardeildinni, og henni heilsast mjög vel. Heimilið lítur svo vel út í um- sjá Lindu, að á betra verður ekki kosið, og Linda fagn- ar húsmóður sinni innilega. En strax fyrsta kvöldið sem frú Gyða er heima, kemur Drífa í leigubifreið til að sækja Lindu, sem nú getur ekki afsakað sig lengur með því að húsmóðurstörfin hvíli á henni einni. Og enn sem fyrr er það Drífa sem sigrar. Síðan endurtekur sig sama sagan kvöld eftir kvöld, og það er frú Gyðu mikið áhyggjuefni. En senn fer Linda heim á jólunum með æskuvinum sínum frá Fagradal, því þannig var þetta ákveðið, er hún kom í haust og þá breytist allt til batnaðar í bili, hugsar frú Gyða fegin, hvað sem svo framtíðin kann að bera í skauti sínu. Og skammdegið líður brátt. — Jólafrí! Jólafrí! bergmálar í hverri skólastofu borgarinnar. Og þeir sem búa fjarri borginni, týgja sig í skyndi til heimferðar, glaðir og fullir eftirvæntingar. Endurfundir við ástvinina heima er fagnaðarríkt um- hugsunarefni, því senn er komin jólahátíðin heima. Hlynur Kjartansson gengur léttum skrefum heim að húsi Gyðu frænku sinnar og hringir dyrabjöllunni. Er- indi hans er að ræða við Lindu um heimferð þeirra í jólafríinu og bjóða henni að panta fyrir hana far með áætlunarbifreiðinni, sem fer til æskustöðva þeirra inn- an tveggja daga, um leið og hann tryggir þeim syst- kinunum far heim. Enn sem fyrr er það Linda, sem kemur til dyra. Hlynur heilsar henni brosandi og segir síðan for- málalaust: — Linda mín, ég er kominn til að ræða við þig um heimferðina okkar í jólafríinu, ég vildi ekki draga það lengur. Linda horfir niður fyrir sig og varast að líta á Hlyn. Hún býður honum ekki að koma inn, heldur stendur hún í dyrunum eins og steingervingur og svarar óstyrkri röddu: — Þakka þér fyrir, Hlynur, en ég ætla ekki heim um jólin. — Ætlarðu ekki heim? Hlynur trúir naumast sínum eigin eyrum. — Hvað ertu að segja? Á ég að trúa því, að þú ætlir ekki heim til foreldra þinna um jóhn? — Mér finnst ekki taka því, þetta eru svo fáir dagar. — Ertu nokkuð lasin, Linda, svo að þú treystir þér ekki til að fara? — Nei, svarar Linda lágt og vandræðalega. En þetta er bæði hræðilega langt og dýrt ferðalag. — Dýrt! Ég skal borga farið þitt báðar leiðir, ekki skal standa á því. — En ég ætla ekki að fara heim um jólin, stamar Linda, og henni er auðsjáanlega þungt um mál. — Heldur þú að þetta verði ekki nokkuð mikil og sár vonbrigði fyrir foreldra þína, Linda mín, þau sem án efa eru farin að telja dagana, þar til þú komir aftur heim til þeirra, eins og um var talað í haust, þegar þú fórst suður? Hanna María og villingarnir Frh. af bls. 141. ---------------------------- gat, það var aðfall, og það gat skeð að flöskuna ræki fljótlega í land, hann vonaði það að minnsta kosti. Vertu sæll, gamli bær, og þið öll í Ivoti og heima- bænum, tautaði hann fyrir munni sér. Svo sneri hann sér við, gekk fram í stafn og starði nú til hafs. Þrem dögum seinna fann Hanna María sjórekna flösku með bréfi í. Afi náði bréfinu. í því stóð að- eins þetta: — Ég skal koma aftur, afi, og ég skal verða að manni, bara fyrir þig. Ég ætla að biðja hann þarna uppi, sem þú sagðir mér frá á hverju kvöldi, að hjálpa mér, ég veit að hann gerir það. — Með kveðju frá Villingnum þínum. Afi horfði lengi á miðann. Hann var svo skrítinn á svipinn, að Hanna María þorði ekki að yrða á hann. Það var eins og hann væri í öðrum heimi. Loks sagði hann eins og við sjálfan sig: Mig grunaði ekki einu sinni, að svona skammt væri inn að gullmolunum í hjarta hans. Guð blessi hann ævinlega, villinginn minn unga! (Sögulok.) 146 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.