Heima er bezt - 01.04.1967, Qupperneq 35

Heima er bezt - 01.04.1967, Qupperneq 35
HEIMA_______________ BEZT BÓKAH I LLAN Sögur úr Skarðsbók. Reykjavík 1967. Almenna bóka- félagið. Fáar bækur hafa verið meira umtalaðar hér í seinni tíð en hand- rit það af Postula sögum, sem Skarðsbók nefnist, og engin bók hefur til landsins komið með jafnmiklum kostnaði og pomp og pragt. Það var því vel til fundið af AB að gefa út þetta sýnis- horn af efni hennar í safninu íslenzkar bókmenntir, bæði til þess að kynna almenningi efni Skarðsbókar og fá þjóðinni í hendur sýnishorn þeirra bókmennta forfeðra vorra, sem voru „þýðingar helgar". Enda þótt oss flestum þyki meira gaman að lesa um víga- ferli og önnur afrek forfeðra vorra en helgisagnir, má ekki gleyma því, að í helgisögunum eru fjöldamargar bókmenntaperlur, og það kastar enginn þeim tíma á glæ, sem varið er til lestrar þeim. Þess vegna grunar mig að þetta litla sagnakver eigi eftir að verða trygg- ur félagi margra bókelskra manna. Segi ég það af reynslu minni. Ólafur Halldórsson hefur annazt útgáfu þessara sagna og samið formála að þeim. Er þar margan merkilegan fróðleik að finna, ekki aðeins um Skarðsbók sjálfa, handritið og feril þess svo og efni hennar, heldur einnig um íslenzk skinnhandrit almennt. Er ánægjulegur bókarauki að formálanum. Naumast getur ólíkari bækur en þessar tvær, sem hér hefur ver- ið getið og samferða urðu á markaðinn fyrir skemmstu frá AB. En báðar eiga þær það sammerkt, að þær veita lesandanum óblandna ánægju, önnur með raunsæjum lýsingum á lífi okkar sjálfra, en hin með því að skyggnast inn í hugarheim liðinna kyn- slóða. James H. Tanner og G. R. Taylor: Vöxtur og þroski. Reykjavík 1967. Almenna bókafélagið. Enn kemur ný bók í Alfræðasafni AB og lík systrum sínum um allan frágang, myndauðgi og skýringar. Hér er fjallað um vöxt og þroska mannsins allt frá því eggið frjóvgast og þar til vexti og þroska lýkur. Eru þar margir forvitnilegir hlutir, sem sáralítið hefur verið skrifað um á íslenzku, nema örstuttir kaflar í skóla- bókum. Hins vegar er þarna um að ræða einn undursamlegasta þáttinn í hinu dásamlega ævintýri lífsins á jörðunni. Eróðleikur sá, sem bók þess færir, á jafnt erindi til allra og snertir alla jafnt, því að hún leitast við að lyfta ögn upp tjaldinu frá þeim hlutum, sem vér skyggnumst of sjaldan um, en þekkingin á er þó í senn nytsamleg og einn þáttur þess, sem heyrir til almennrar mennt- unar. Þótt bókin sé fyrst og fremst rituð sem alþýðleg fræðibók, er hún eigi að síður ágæt handbók kennurum og öðrum skóla- mönnum, sem vilja afla sér meiri fróðleiks en þess, sem skólbæk- urnar flytja. En bækur sem þessi eru til þess fallnar að opna augu lesandans fyrir undrum náttúrunnar og lífsins. Þýðandi bókarinn- ar er Baldur Johnsen, læknir, og hefur hann leyst erfitt starf vel af hendi. St. Std. BRÉFASKIPTI Ásmundur Guðmundsson, Arkarlæk, Akranesi, óskar eftir bréfa- skiptum við stúlkur á aldrinum 18—27 ára. Guðrún Krislin ívarsdóttir, Vegamótum 2, Blönduósi, A.-Hún., óskar eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 14—16 ára. Sigurlin Grímsdóttir, Neðra-Apavatni, Grímsnesi, Árnessýslu, óskar eftir bréfaskiptum við pilt eða stúlku á aldrinum 12—13 ára. Mynd fylgi fyrsta bréfi. Hörður Traustason, Hörgshóli, V.-Húnavatnssýslu, óskar eftir bréfaskiptum við stúlkur og pilta á aldrinum 10—13 ára. — Mynd fylgi fyrsta bréfi. Sigurður R. Traustason, Hörgshóli, V.-Húnavatnssýslu, óskar eftir bréfaskiptum við pilta á aldrinum 8—10 ára. Rúnar Valgeirsson, Höfn, Höfnum, Gullbringusýslu, óskar eftir bréfaskiptum við stúlkur á aldrinum 15—16 ára. — Mynd fylgi fyrsta bréfi. Þorleifur Valgeirsson, Höfn, Höfnum, Gullbringusýslu, óskar eftir bréfaskiptum við stúlkur á aldrinum 15—16 ára. Mynd fylgi bréfi. Sigurjóna Kristófersdóttir, Stekkum 20, Patreksfirði, óskar eftir bréfaskiptum við pilt á aldrinum 15—16 ára. Guðmundur Halldórsson, Hróarsholti, Villingaholtshreppi, Ár- nessýslu, óskar eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 12—14 ára. — Mynd fylgi fyrsta bréfi. Erla Jónsdóttir, Múla, Álftafirði, S.-Múlasýslu, óskar eftir bréfa- skiptttm við pilta á aldrinum 18—20 ára. — Æskilegt á mynd fylgi. Gerður Guðmundsdóttir, Múla, Álftafirði, S.-Múlasýslu, óskar eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 14—16 ára. — Æskilegt að mynd fylgi. Sigurlína Vilhjálmsdóttir, Reiðholti, Skagafirði, óskar eftir bréfa- skiptum við pilta á aldrinum 14—17 ára. Fanney Bjartmarsdóttir, Mælifelli, Skagafirði, óskar eftir bréfa- skiptum við pilta á aldrinum 14—17 ára. Jónina Bjartmarsdóttir, Mælifelli, Skagafirði, óskar eftir bréfa- skiptum við pilta á aldrinum 18—20 ára. — Æskilegt að mynd fylgi. Guðrun Þórsdóttir, Júlia Ingvarsdóttir, Guðrún Gunnsteinsdótt- ir, allar á Húsmæðraskólanum Löngumýri, Skagafirði, óska eftir bréfaskiptum við pilta á aldrinum 18—21 árs. Ingibjörg Ragnarsdóltir, Lúcía Júliusdóttir, Þóra Jónsdóttir og Vilborg Jónsdóttir, allar að Skálafelli, Hornafirði, óska eftir bréfa- skiptum við pilta eða stúlkur á aldrinum 14—15 ára. Stefán Jóhann Jónmundsson, Hrafnsstöðum, Svarfaðardal, Eyja- fjarðarsýslu, óskar eftir bréfaskiptum. — Mynd fylgi fyrsta bréfi. Asta Haraldsdóttir, Hrórekslæk, Hróarstungu, óskar eftir bréfa- skiptum við pilt eða stúlku á aldrinum 12—16 ára. Æskilegt að ntynd fylgi fyrsta bréfi. Elinbjörg Jónsdóttir, Eyri, Fáskrúðsfirði, óskar eftir bréfaskipt- um við pilta eða stúlkur á aldrinum 15—16 ára. Helga Jónsdóttir, Miðskógi, Miðdölum, Dalasýslu, óskar eftir bréfaskiptum við pilt á aldrinum 22—25 ára. Mynd fylgi bréfi. Guðbjörn J. Jónsson, Miðskógi, Miðdölum, Dalasýslu, óskar eftir bréfaskiptum við stúlkur á aldrinum 16—19 ára. Jónina S. Helgadóttir, Torfum, Hrafnagilshreppi, Eyjafirði, ósk- ar eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 13—15 ára.

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.