Heima er bezt - 01.04.1967, Side 36

Heima er bezt - 01.04.1967, Side 36
60 Eðvarð tók nú harmþrungna drenginn litla og bar hann inn í rúmið, og þar sofnaði hann innan skamms magnþrota a£ gráti og örvæntingu. Sjálfur settist Eðvarð við borðið, er hann hafði fundið sér eitthvað smávegis matarkyns í eldhúsinu, enda hafði hann þess fulla þörf. Og loks sofnaði hann sjálfur föstum svefni í þessu ein- búahúsi mitt á milli sofandi drengsins og dáins föður hans. Hann vaknaði við það, að drengurinn hafði grát- ekka í svefni, og var þá kominn bjartur dagur. — 61. Er hann kom út til að litast um, heyrði hann hund gelta, og skömmu síðar kom Humri og flökkudrengurinn hlaup- andi. Þeir höfðu orðið hræddir um hann, er hann varð svona lengi, settu síðan hundinn á spor hans, og hann rakti þau síðan. Þeir skiptu nú með sér verkum: Eðvarð var um kyrrt og annaðist drenginn, Humri tilkynnti skóg- arverðinum morðið, og Palli fór heim eftir hesti og vagni. 62. Þegar Palli kom aftur með vagninn, tóku þeir að hlaða á hann eignarmunum drengsins. í húsinu var margs konar verðmæti og nokkrar læstar kistur, sem þeir báru út í vagninn. Eðvarð huggaði drenginn eftir beztu getu og sagði honum frá ungum systrum sínum heima, sem hann fengi nú að kynnast, og virtist það gleðja hann. Síð- an var látinn faðirinn kvaddur og haldið af stað heim til skógarvarðarkofans. — 63. Heima biðu þær Elsa og Edit með óþreyju. Þeim hafði verið sagt, að Eðvarð kæmi heim með nýjan bróður, og þær höfðu matreitt góðan kvöldverð. Þær hlupu upp um hálsinn á Eðvarð af gleði við það að sjá hann aftur heilan á húfi. Síðan tóku þær drenginn með sér til að þvo honum og snyrta. Og er þær komu aftur varð Eðvarð hissa á að sjá drenginn í telpu- búningi. — Þetta er telpa og heitir Klara! sögðu systurn- ar. Faðir hennar hafði fært hana í drengjaföt af öryggis- ástæðum, svo að henni reyndist auðveldara að ferðast um skóginn.

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.