Heima er bezt - 01.05.1977, Blaðsíða 23

Heima er bezt - 01.05.1977, Blaðsíða 23
Reinhard Froehner (Kulturgeschichte II, bls. 50—51) getur þess, að sá siður að kljúfa nasirnar á hestum sé nefndur af Marx Fugger í riti hans Wie und tva man ein Gestút... aufrichten soll, (Worms) 1578 Fol., bls. 149. Eftir skoðun Fuggers heyrði þessi aðgerð þeim prettum til, sem hrossakaupmenn neyttu til að fjar- lægja eða dylja galla varnings síns. Meðal annarra slíkra pretta nefnir hann: að klippa hangandi evru, að sverfa tennur hesta og hringa á hófum þeirra, að stinga gler- flísum í kvikuna til þess að gera þá viðkvæma fvrir sporunum, og að koma á þá tilbúnum blesum. Froehner segir enn fremur, að nokkurn veginn hinum sömu prett- um sé lýst af G. P. Hoenn í Betrugs Lexicon frá 18. öld. Aðgerð þessi vakti athvgli von Eisenbergs baróns, er hann varð var við hana hjá Törturum á 18. öld. Þegar hann spurði um ástæðu til þess, var honum sagt, að það væri siðvenja í landinu. Hann grunaði þó, að tilgangur- inn væri að gera hestunum léttara um andardrátt og auka flýti þeirra í kappreið, en bætti við, að í raun og veru þyrfti ekki neinn uppskurð í þeim tilgangi, af því að hestar Tartara væru óþreytandi og afar fjörugir. Þar að auki, sagði hann, „kljúfa þeir eyrun á hestum sínum. Ég get ekki hugsað mér ástæðuna til þess, en ég held að það sé skyldara sérvizku en nauðsyn.“ í grein „Modeoperationer paa Hovedet af husdyr," skýrði danskur dýralæknir, C. Grove Vejlstrup, frá því, að það hefðu einkanlega verið Ungverjar og Spánverj- ar, er klufu nasirnar á hestum sínum til þess að láta þá líta fjörugri út og um leið til að koma í veg fyrir, að þeir hneggjuðu. Froehner telur það hafi verið Tatara, er fluttu með sér siðvenju þessa til Vestur-Evrópu, en Gerhard Eis stakk upp á öðru, sem eftir minni skoðun verðskuldar nákvæma yfirvegun. Eis vísaði til handrits Meisters Albrants, sem var senni- lega ritað á öndverðri 15. öld og felur í sér alls konar ráð til fegrunaraðgerða á hestum ásamt tilvísun til 90. Davíðssálms. í ýmsum löndum hefur almcnningur haft það fyrir sið að kvcða hinn 90. Davíðssálm sem varnar- ráð handa húsdýrum sínum, og hefur þessi siðvenja yf- irleitt verið talin sprottin fyrir áhrif frá klaustrunum. En Gerhard Eis heldur því fram, að siður þessi kunni að vera runnin frá rabbínaskólunum engu síður en frá klausturbókasöfnum. Enn fremur, segir hann, að að- gerðirnar á hestum, sem um er getið í handritinu, svo sem tilraunir til að láta hesta líta út fyrir að vera fjör- ugir, til að gera þá fallegri og til að gera þá fljóta í kappreiðum, séu slíkar, að þær myndu hafa tíðkazt hjá hestatamningamönnum við paðreima miðausturlanda. Vegna þess telur hann, að handrit Meisters Albrants kunni að fela í sér arfsagnir frá paðreimum fornaldar, sem hestatamningamenn og hrossakaupmenn af gyð- ingaættum hcfðu geymt í árþúsundir. Að sjálfsögðu hafa Gyðingar og Tatarar ekki flutt siði sína til íslands. Þar að auki hafa fegrunaruppskurðir á eyrum og sterti hcsta, t. d. anglisering eða coupering ekki tíðkazt hérlendis. Það kann þó að vera, að íslendingar sjálfir hafi flutt þann sið að spretta upp í nös á hestum til landsins beina leið frá Miklagarði. Ófáir voru þeir ungu íslendingar, er gerðust Væringjar á miðöldum og fluttu mcð sér til íslands orðið paðrcimur, sem var afbökun á griska orðinu hippodrome. Má telja víst, að þeir hafi oft horft á kappreiðar á paðreiminum. Ungum mönnum úr Skaga- firði, er áttu stóra hrossahópa hcima, hefði ekki aðcins þótt gaman að sjá fjöruga hesta með flæstar nasir í kappreiðum, heldur einnig að geta riðið hestum nteð slíkt útlit heima á íslandi og teyma þá til hestaats. Við heimkomuna er ekki svo ólíklegt, að þeir hafi farið að spretta upp í nös á reiðhestum sínum, og með tímanum breiddist nýbreytni þessi út um Skagafjörð. Á íslandi var þó ekki mikið um kappreiðar, og eftir árið 1623 var hestaat harðbannað af kirkjunni. En af því að al- menningi í Skagafirði þótti mikið til koma um hcsta með flæstar nasir, lcið ekki á löngu, fyrr en fundin var viðbótarástæða til að afsaka áframhald siðvenjunnar: að spretta upp í nös á hestum hefði þá verið við hey- mæði. Heimildarmenn mínir eru sammála um, að siðvenja þessi hafi verið einskorðuð við Norðurland. Þó að séra Jónas segi, að venjan hafi lagzt niður um árið 1870, hcfur hún í raun og veru haldizt til okkar daga. Að öllu meðtöldu hafa sex heimildarmenn mínir annað- hvort séð cða átt hesta, sem sprctt hafði verið í nös á, og voru allir þeir hestar úr Skagafirði. Dauf endurminning um hina upphaflegu ástæðu til uppskurðarins finnst í skýrslu konu úr Berufirði, f. 1906: „Gamalt mál var, að hestar yrðu þolnari cf sprett væri upp í nösina. Það er í samræmi við, að miklir hlauphestar væru með flæstar nasir.“ En eins og áður var sagt, fundu menn mjög snemma nýja átyllu til að spretta upp í nös á hcstum, þ. e. að uppskurður þcssi verði þá hcymæði. Eftir að Búnaðarrit íslands var stofnað árið 1887 og eftir heimkomu bændasona, er höfðu stundað nám við búnaðarskóla hér á landi eða jafnvel erlcndis, féll þó þessi ástæða einnig úr gildi til að gera uppskurðinn. En í Skagafirði naut siðurinn svo mikillar virðingar, að erfitt var að leggja hann alvcg niður. Auðveldara var að finna upp nýja ástæðu til að halda honum áfram. Því var farið að skera eigandamörk í nös á hestum. Auk Skagfirðings, er heldur því fram, að þetta gerist enn í dag á sumum bæjum þar um slóðir, segjast Eyfirðingar, Borgfirðingar og Húnvetningar hafa séð á þessum árum skagfirzka hesta með eiganda- mörk skorin í nös. Saga þessarar aðgerðar er greinilegt dæmi um þróun þjóðtrúarhugmyndar, eins og Sæmundur Eyjolfsson skýrði frá („Þjóðtrú og þjóðsagnir," Tímarit Hivs ís- lenzka bókmenntafélags 1891, bls. 144): „Þcgar einhver hugmynd eða einhver trú cr orðin mjög rík og rótgró- in, þá þarf mjög langan tíma og mjög mikinn krapt til þess að uppræta hana með öllu, og það er ef til vill eigi unnt. — Með hversu miklum krapti sem barizt er gcgn henni, þá er ef til vill eigi unnt að eyðileggja hana til fullnustu; hún lætur að svo miklu leyti undan, að hún tekur sjer aðra mynd.... Þjóðtrúarhugmyndirnar fara Heima er bezt 167

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.