Heima er bezt - 01.08.1977, Qupperneq 4
BJORN JONSSON I BÆ:
,,"ii—^ kki er hún af baki dottin hún Pála,“ segir fólk-
II_j ið, „hún lætur sig ekki muna um að fara
með prestinum á fjarlægar kirkjur í hvaða
^ veðri sem er og spila við messur og stjórna
söng,“ en þetta er svo sem ekki eina afrekið hennar.
Það er sagt að fólk sé hneigt til forystu, og er þá átt
við að maðurinn sé öðrum fremri á ýmsum sviðum, og
þá sérstaklega að dugnaði og stjórnsemi, hæfileikar
verða þó jafnan að fylgja.
Pála 19 ára.
Er ég skrifa þátt um Pálu Pálsdóttur dylst mér ekki
að þar fer kona sem markað hefir spor — skarað fram
úr mörgum kynsystrum 'sínum og við karlmenn æði
margir megum þar láta í minni pokann þótt hátt við
hreykjum okkur á stundum.
Pála Pálsdóttir, kennari, söngstjóri, félagsmálakona,
og hin mikla húsmóðir og góða móðir, fæddist á Hofs-
ósi 25. október 1912. Foreldrar hennar voru, Páll Árna-
son kennari á Hofsósi og bóndi á Ártúnum við Hofsós
244 Heima er bezt