Heima er bezt - 01.08.1977, Blaðsíða 24

Heima er bezt - 01.08.1977, Blaðsíða 24
KVEÐ ÉG mér ttl hugarhœgðar ÞÓRARINN E. JÓNSSON er fæddur á Sjávarborg í Fáskrúðsfirði 22. júli 1901. Lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla ís- larids 1930. Var kennari á ýmsum stöðum 1930—65. Hefir mikið fengist við ritstörf. Á mikið efni í handriti. Frá barnæsku verið gæddur dulargáfum og stundað dularlækningar frá 1968. Um dulræna reynslu sína skrifaði hann bókina Valdið dulda, Rvík 1972. ISLAND. (Við fótskör Fjallkonunnar). 1 kyrrð og ró, í faðmi hárra fjalla ég finn þá tign, er innra með þér býr. Þá finnst mér sjálfur kærleikurinn kalla, kominn heimur fagur, tær og nýr. Hið efra skauta fjöllin faldi háum. Fannahvít þar tindrar mjallar brá. Speglast djúpt, í breiðum vötnum bláum brúðarskart, er tæpast lýsa má. í sumardýrð, við ilm og fjalla-friðinn og fossaklið, í bröttum hamra-sal. Við fuglasöng og ljúfan lækjar-niðinn er ljúft að hlýða á náttúrunnar tal. Þú leitar innri friðar, hlustar hljóður, hljómar mildir berast þér, í sál. Alls staðar er sungið: .. Guð er góður. Gleðisöngur birtir huliðsmál. Þú titrar við, er tignin um þig vefur töfra-blæ,.. þér verður ekki rótt. Að þér hvíslar samvizkan,.. „þú sefur, sjaldan hlustar þú, um kyrra nótt.“ Hlustaðu, á þýðan kvæða-kliðinn,.. kveður náttúran við foldar barm. Vakna nú, við ilm og fjalla-friðinn til fegra lífs,.. er stillir dulinn harm. Vaknaðu af sjálfselskunnar svefni, settu merkið hátt, á lífs þín’s braut. Gæt þess vel ei háskinn á þér hefni er hættan vex, í stríði, neyð og þraut. Þá skilst bezt,.. vor hjartans innri ylur öllum nauðsyn, komin guði frá. Þennan guðdóms-neista hrokinn hylur, svo hamingjan ei nærri koma má. Við hugar-ró vex kyrrðarinnar kraftur. Kærleikurinn birtist oss, á ný... í hrifningunni finnum andann aftur. Ástin brýzt úr sjálfs-elskunnar kví. Nú birtir til, vor sálar arin-eldur. Orkan, sem að kemur ljósi frá ... Sá kraftur er ei keyptur, eða seldur, sig kynnir bezt, sem fórn og hjálparþrá. HIN ÞÖGULA FÓRN. (Ort 1961). Hún gekk um þögul, í þjónustu sinni, þjónaði, spann og vann verkin sín, bæði úti og inni, elskaði sannleikann. Hárið var grátt,.. en göfug augun og góðlegur svipurinn,.. geislaði frá mannúð og mildi, sem minnti á himinninn. Er brast hana þrek, sín verk að vinna vitnaði um það bert, að vantaði líknandi hönd, að hlynna. Um hjálpfýsi er mikilsvert. Góðvildin, markvissa, yljaði öllum. Alúðin, björt og hrein átti þá mildi, sem bar inn í bæinn blessun,.. er græddi flest mein. Nú er hún farin,.. til grafar gengin, göfug minningin ber hugræna gleði, sem gleymir enginn, en geymir í hjarta sér. Mörgum finnst, sem hún enn þá eigi aftur-kvæmt, frá þeim heim hvar andinn starfar, sem ljósberi lifir og lýsir,.. frá dulrænum geim. Hugræna gleðin, hún frelsi oss færir og frið, sem að græðir vor sár. Mildi, sem anda vorn endur-nærir. Elsku, sem þerrar vor tár. Látum því trúna og vonina vaxa, vöndum öll lífsins störf. Hugræna gleðin, hún vísar oss veginn viðmóts-þýð, holl og þörf. STAKA. Liljur bjartar, lífið skarta lífga margt um æfisvið. Ljóssins hjarta, birtan bjarta brúar svarta torleiðið. 264 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.