Heima er bezt - 01.08.1977, Blaðsíða 32

Heima er bezt - 01.08.1977, Blaðsíða 32
Gríðarstór beljaki stóð upp. Þung og dimm rödd hans barst eins og brimniður um salinn. „Þetta var allt snilldarvel undirbúið. Verðimir á múm- um voru valdir með þeim ásetningi að látast ekkert sjá né heyra. Við þá er ekkert um að sakast. Þjónninn opnaði dymar, eins og um var beðið. Hann vísaði mér á leyni- dyrnar báðum megin að leynigöngunum. Ég braut þær upp, en í göngunum rákumst við á fallhurðir, björg", sem enginn mannlegur máttur gat hrært og ómögulegt var að komast framhjá. Prinsessan hefur á einhvem hátt komizt að fyrirætlunum okkar um það að taka hana höndum, verið viðbúin öllu, annars hefðum við náð henni.“ „Er þetta allt?“ spurði foringinn. „Engan veginn,“ sagði trölhð með dimmu röddina. „Menn okkar fundu þriðju leynigöngin. En þar var líka fallhurð fyrir, eins og ég gat um áðan. Sjö menn vom sendir inn í göngin til þess að narra prinsessuna til þess að opna. Þetta mistókst einnig. Bjarnharður prins og annar kappi, Hrólfur að nafni, komu að þeim, drápu fjóra en þrír komust undan og sögðu tíðindin.“ „Þetta er að verða erfitt viðureignar," mælti foringinn. „Við verðum að skipta um bardagaðferð. Hér eftir verð- um við að vega að þeim úr launsátri, hvar sem því verður viðkomið. 1. Ná verður prinsessunni lifandi á vort vald. 2. Móðir Bjarnharðar verður að nást og komast á mitt vald. 3. Ráða verður þá báða af dögum Bjamharð og Hrólf lífvarðarforingja. Hefur nokkur upplýsingar sem að gagni mega koma?“ Maður stóð upp aftarlega í salnum og mælti: „Ég hef komist að því, að Bjarnharður er sagður prins og á að giftast prinsessunni. En Hrólfur er orðinn hershöfðingi að tign.“ „Þetta eru miklar fréttir,“ mælti foringinn. „Þá verðum við að hafa auga á hverjum fingri, fyrst þessi maður er orðinn hershöfðingi að tign. Nú fyrst verðum við að gá að okkur. — Farið gætilega. Látið leyndarráðið vita jafn- óðum og eitthvað gerist.“ Að svo mæltu sleit foringinn fundi og hvarf út um leynidymar. 11. KAFLI BJARNHARÐUR BJARGAR Allt var með friði og spekt í höll Manfreðs konungs. Hafizt var handa með að byggja pýja álmu, áfasta við gömlu hölhna. Ungu hjónaefnin, prinsinn og prinsessan, urðu að fá rýmri húsakynni en þau, sem prinsessan bjó nú í. Ný álma var byggð við höllina, sem átti að verða bústaður þeirra. Móður Bjamharðar, ekkjudrottningunni, var fengið þjónustulið og íbúð til eigin nota. Hún var búin að ná sér að mestu eftir árásina um nóttina, þegar fallhurð- irnar björgu því, að hún og prinsessan lentu í höndum uppreisnarmannanna. Prinsessan vitjaði hennar á hverj- um degi. Vinátta þessara tveggja tignu kvenna var slík sem bezt gat orðið á milli dóttur og móður. Báðar voru hugrakkar, heilsteyptar konur, bám umhyggju fyrir öðr- um og fundu sárt til með þeim, sem í raunir rötuðu, eins og sagan mun brátt leiða í ljós. Ekkjudrottningin var orðin lífsreynd af andstreymi hðinna ára. Kvíðinn um yfirvofandi hættu á hverri stundu, hvíldi á henni eins og mara á meðan Grímar hertogi, sá lævísi en forherti fantur, gekk laus og bruggaði launráð til illra verka. Þetta hugarástand Ástu Karlottu skildi Júlía prinsessa vel og hughreysti ekkjudrottninguna eftir því sem bezt hún gat. Lífsgleði prinsessunnar, ástúð og mildi, svo og umhyggja og kærleikur sonarins var sem svaladrykkur fyrir hina blíðlyndu ekkjudrottningu, sem í blóma lífsins hafði verið svipt ástvinum sínum, þeim sem hún unni mest, eiginmanni og föður. Móður sína hafði hún misst ung. Vináttan var gagnkvæm milli konungshjónanna og ekkjudrottningarinnar. Þau Manfreð konungur og Matt- hildur drottning sýndu hinni tignu konu umhyggju og skilning í raunum hennar. Það ríkti því friður og gleði á milli tigna fólksins í höll Manfreðs konungs. Þó lá þeim öllum uggur í brjósti, enda höfðu liðin atvik sýnt það áþreifanlega, að sá uggur var ekki ástæðulaus. Lífvörðurinn var skipulagður að nýju. Leynidymar á hallarmúrnum gerðar óvirkar. Allt var gert, sem hugsast gat til varnar, en samt hvíldi óvissan yfir, ógnandi og lamandi. Var ekki einhver svikari enn innan hallardyr- anna, sem gerzt hafði mútuþegi óvinanna? Hver vissi hvaðan árásin kæmi næst né á hvern hátt. Hitt vissu allir, að nú var setið í launsátri og öllum ráðum beitt, sem illskan gat uppfundið. Grímar hertogi var ófundinn enn. Orðrómur hafði komizt á kreik um það, að Úlfhéð- inn illi, sem allir óttuðust, hefði verið einn af árásarmönn- um þeim, er reyndu að ræna prinsessunni. Ólíkar sagnir flugu manna á milli um ókunnan jötun, sem einnig hefði verið þar í för. Svo var svikaþjónninn, hann var enn ófundinn og efalaust í hópi illræðismannanna, en hann gjörþekkti hvern krók og kima í höllinni. Nótt var komin. Allir höfðu gengið til náða. Varðmenn alvopnaðir stóðu vörð við inngöngudyr allar. Sjálfur Björn sterki stóð vörð við þær dyr, er lágu að herbergjum prinsessunnar. Allt virtist tryggt sem bezt mátti verða. Bjarnharður prins fór sína vanalegu eftirlitsför um nótt- ina, eins og hann hafði jafnan gert, eftir að trúlofun hans og prinsessunnar var öllum kunn orðin. Þegar hann gekk fram hjá dyrunum á íbúð prinsess- unnar, gekk Björn sterki í veg fyrir hann og mælti: „Yðar tign, mig dreymdi draum í nótt, sem ég ræð á þann hátt, að gerð verði tilraun til að ræna prinsessunni. Ég þóttist standa á verði hérna við dymar, þá réðst að mér ófreskja mikil og illileg. Hún kom úr hliðarganginum þarna. Á milh okkar tókust sviptingar miklar. Mér fannst ég hopa á hæli fyrir ófreskju þessari. Og svo fór að lokum að ég féll. Við það vaknaði ég. Þér takið kannske ekki mark á draumnum?“ „Ég fullyrði ekkert um það, vinur minn, mælti prins- inn. En hitt veit ég, að engan veit ég þann liðsmann hér í höllinni, sem ég treysti betur en þér að gæta lífs og heiðurs prinsessunnar. Þessvegna valdi ég þig til þess, 272 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.