Heima er bezt - 01.08.1977, Page 13

Heima er bezt - 01.08.1977, Page 13
1 Saga hestalœkninga EFTIR GEORGE J. HOUSER a 32. KAFLI ÞJÓÐTRÚ UM FRJÓSEMIHRYSSA OG ÁKVÖRÐUN KYNS OG LITAR Vegna þess að leikmönnum var ókunnugt um hinar raunverulegu orsakir ófrjósemi, er ekki að furða, þó að til yrði alls konar hjátrú um, hvers vegna ein hrvssa fyljaðist, er henni var • haldið, en önnur hryssa ekki. Sumir gamlir höfundar héldu því fram, að hryssa fylj- aðist ekki, ef henni líkaði ekki litur folans, aðrir, vegna þess að hún væri of mögur eða of feit. Á Norðurlönd- um hefur almenningur reynt ýmislegt til þess, að merar fyljuðust, en stundum er hugsunin, sem tilraunirnar eru sprottnar af, ekki auðskilin fyrst í stað. Skipta má í þrjá flokka þeim aðgerðum, sem tekið var til í þessu skyni. Til fyrsta flokksins teljast tilraunir til að vekja losta merarinnar og auka fjör folans. 1 dönsku handriti er ráðlagt t. d. að stinga netlu í munn folans til þess að auka fjör hans, þegar hann fyljar mer- ina, en á V-Gautlandi átti að stinga netlu undir tagl á merinni, eftir að henni hafði verið haldið, til þess að ganga örugglega frá því, að hún héldi. Alls konar inn- gjafir komu til sögunnar. í Lapplandi var folanum gef- ið skjósegg til þess að auka honum fjör. Á Gotlandi var merinni gefinn eins konar sveppur, sem kallaður var „járdnyter“ og talið var, að vekti lostann. Eftir sögn Heurgrens var venjulegt á V-Gotlandi að gefa merinni ögn af líknarbelg, en í Danmörku var ráðlagt að gefa hann folanum. Þótt það hafi verið siður Lappa í Noregi að þurrka og geyma síðan vissa hluta hildanna, til þess að hreindýrarækt þeirra lánaðist vel, er þess ekki getið, að þeir hafi gefið þá inn. Meðal þeirra inngjafa, sem notaðir hafa verið í Danmörku og Svíþjóð, má nefna hunang, terpentxnu, malt, lakkrísolíu, möndluolíu, spönsk mý, eggjahvítu og unga kanínu, sem brennd hafði verið til ösku. Sven Samuelsson ráðlagði Svíum að gefa merinni skammt af antímoni og „det ádla háste- pulver,“ áður en henni var haldið og einnig á meðan og eftir. Enn fremur mælti hann með að koma ofan f hana lifandi froski tveimur klukkustundum fyrir atburðinn. Næst er að snúa sér að þeim aðgerðum, sem taka átti til, eftir að merinni hafði verið haldið. Gott var talið t. d. að reka hryssuna í vatn eða ausa köldu vatni yfir hana að aftan. Boers skýrir frá, að tilgangurinn með þessu væri að fá hana til að gleyma lostanum. Hugsunin verður skiljanlegri í ljósi þess, að ef losti lýsir sér ekki í hryssu um þriggja vikna skeið, eftir að henni hefur verið haldið, þá má yfirleitt telja, að hún sé fylfull. í sama skyni hafa sumir haft fyrir sið að ríða merinni sprett, strax eftir að henni hafði verið haldið. Plinius þekkti þennan sið, en hann minnist á hann í sambandi við ösnur, og segir frá, að legið geti ekki haldið sæði, nema ösnunni sé strax riðið sprett. Gripið var einnig til táknrænna aðgerða. í Danmörku var saumnál með garni stungið í gegnum eyra eða tagl Heima er bezt 253

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.